Tíminn - 23.05.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Föstudagur 23. mal 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
26
Hann er trúlega lögreglusnápur.
— Ég skal vef ja byssunni um eyrun á þér, ef þú hlýðir
mér ekki. Svo hlakkaði í honum. — Lögreglusnápur.
Bull. Líttu á hann. Hvar í f jandanum ætti hann að fela
lögreglumerkið?
— Farðu að ráðum föður þíns, sagði Rambo. — Hann
veit hvernig málin standa. Ef þið drepið mig, munu lög-
reglumennirnir, sem koma hér á morgun vilja komast að
því, hver gerði það. Þá beina þeir blóðhundunum á ykkar
slóð. Það skiptir ekki máli hvar þig huslið mig, eða
hvernig þið leynið lyktinni. Þeir munu..
— Kalk, sagði strákurinn lymskulega.
— Þið felið auðvitað lyktina af mér með kalkinu. En
þá lyktið þið af kalkinu pg blóðhundarnir verða settir á
ÞÁ SLÖÐ.
Hann þagnaði og horfði á skin vasaljósanna. Þeir
fengu tíma til umhugsunar.
— Ykkar vandi er sá, að ef þið afhendið mér ekki fæði,
klæði og rifilinn, þá verð ég hér kyrr þar til ég finn
bruggstöðina. Á morgun rekur svo lögreglan slóð mína
hingað. Það skiptir engu þó þið takið sundur tækin og fel-
ið þau. Ég held áfram að elta ykkur.
— Við myndum bíða með það til morguns, sagði sá
gamli. — Þú mátt ekki við því að bíða hér svo lengi.
— Ég er berfættur og kemst hvort eð er ekki mikið
lengra. Nei — þér er óhætt að trúa mér. Eins og ég er nú á
mig kominn, verður þeim ekki skotaskuld úr því að góma
mig. Þá skiptir engu þó ég láti ykkur tvo f Ijóta með.
Gamli maðurinn fór nú aftur að blóta.
— En ef þið hjálpið mér, og látið mig fá það sem mig
vantar, þá skal ég taka á mig stóran krók héðan. Þá
kemur lögreglan hvergi nærri bruggstöðinni ykkar.
Rambo gat ekki einfaldað aðstöðuna frekar. Honum
fannst hugmyndin sannfærandi. Ef þeir vildu vernda
hagsmuni sína, þá hlutu þeir að hjálpa honum. Auðvitað
gætu þvinganir hans röitt þá til reiði. Þeir gætu reynt að
drepa hann. Kannski var skyldleiki innan ættarinnar svo
mikill, að þeir væru heimskari en svo, að skilja rök-
leiðslu hans.
Það hafði kólnað. Rambo skalf þótt hann berðist á
móti því. Skordýrasuðið virtist nú enn háværara þegar
allir þögðu. Loks sagði sá gamli: — Matthew, það er bezt
að þú hlaupir upp í hús og sækir það sem hann biður um.
Röddin var gleðisnauð.
— Sæktu líka dollu af Ijósaolíu, sagði Rambo. Fyrst
þiðætlið að hjálpa til er bezt að tryggja, að þið haf ið ekki
skaða af. Ég skal væta fötin í Ijósolíu, og láta þau þorna
áður en ég fer i þau. Auðvitað týna hundarnir ekki þef-
slóðinni minni, en þá geta þeir ekki rakið hver útvegaði
mér fötin.
Ljósgeisli strálsins beindist stöðugt að Rambo. — Ég
geri það sem pabbi segir mér — ekki þú.
— Svona nú, gerðu það sem hann segir, — sagði sá
gamli.— Mér er heldur ekkert vel við hann, en hann veit
hvaða f járans vandræðum við erum i.
Ljósgeisli stráksins hvikaði ekki af Rambo svolitla
stund. Það var eins og strákurinn væri að gera upp við
sig hvort hann ætti að fara, eða reyna að bjarga heiðri
sínum. Svosveif laðistgeislinn af honum og í kjarrið. Svo
slokknaði Ijósið og Rambo heyrði þegar hann brauzt
áfram gegn um kjarrið. Ferðir hans frá húsinu að
bruggstöðinni voru líklega orðnar það margar, að hann
rataði í myrkri.
— Þakka þér fyrir, sagði Rambo við gamla manninn,
en Ijósgeisli hans skein enn á andlit hans. Svo slokknaði
hann líka. — Þakka þér fyrir þetta líka, sagði Rambo.
Hann var blindaður af Ijósinu svolitla stund.
— Bezt fyrir rafhlöðurnar.
Rambo heyrði, að hann nálgaðist gegn um kjarrið. —
Komdu ekki nær, sagði hann við gamla manninn. — Það
er bezt að þefur okkar blandist ekki.
— Það var ekki ætlunin. Ég ætlaði bara að tylla mér
hérna á trjádrumb.
Sá gamli kveikti á eldspýtu og bar hana að pípuhaus.
Það logaði ekki lengi á eldspýtunni, en þegar sá gamli
sogaði að sér reykinn úr pípunni teygðist sem snöggvast
úr loganum. Rambosá úf inn haus og gráleitt andlit. Rétt
grillti í rauðköflótta skyrtu og axlabönd.
— Ertu með eitthvað af framleiðslunni, spurði hann.
— Getur verið.
— Mér er ekkert sérlega hlýtt. Ég myndi gjarna
þiggja sopa.
Gamli maðurinn beið svolítið, en kveikti svo á vasa-
Ijósinu og kastaði til hans krús. Hann beindi geislanum
þannig, að Rambo gat gripið hana. Krúsin var álíka þung
og bowling-kúla. Rambo var svo hissa, að hann missti
nærri krúsina. Það hlakkaði í þeim gamla. Hann kippti
úr korktappanum, blautum ískrandi. Þrátt fyrir þunga
krúsarinnar beitti hann aðeins annarri hönd þegar hann
drakk. Hann vissi að það myndi vekja virðingu þess
gamla. Hann setti vísif ingur gegn um augað við barminn
og skorðaði hana í olnbogabótinni. Framleiðslan var
sannkallað eldvatn. Hann sveið í háls og tungu. Hita-
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Erum við komin
til Rómverjanna
aftur?
Talið Trojubúar
hvað '.eruð þiö
' að gera hér
bak við linur
Grikkja?
Föstudagur
23. mai
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Sigriður Eyþórsdóttir
les söguna „Kára litla I
sveit” eftir Stefán Júlíusson
(4). Unglingapróf lensku kl.
9.05: Verkefni og skýringar
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Yehudi
Menuhin og hijómsveitin
Philharmonia leika
„Poéme” tónverk fyrir fiðlu
og hljómsveit op. 25 eftir
Ernest Chausson/Felicja
Blumental og Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leika
Pianókonsert I brasillskum
stfl op. 105 nr. 2 eftir Hekel
Tavares/ Sinfóníuhljóm-
sveitin I Utah leikur „Hita-
beltisnóttina”, sinfónlu, nr.
1 eftir Louis Moreau Gotts-
chalk.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
- Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynnningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A
vigaslóð” eftir Jamcs
Hilton Axel Thorsteinson les
þýðingu sina (4).
15.00 Miðdégistónleikar
Félagar i tékkneska fil-
harmonlublásarakvintettin-
um leika Sónatlnu fyrir óbó,
klarlnettu og fagott eftir
Michal Spisak. Gotthelf
Kurth syngur Fimm ljóða-
söngva eftir Karl Heinrich
David Rolf Maser leikur á
píanó/Smyth Hympreys og
Hugh McLean leika Dúó
fyrir lágfiðlú og pianó eftir
Barböru Pentland.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.30 „Bréfiöfrá Peking” eftir
Pearl S. Buck Málmfrlður
Sigurðardóttir les þýðingu
slna (2).
18.00 Slðdegissöngvar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 Frá sjónarhóli neytenda
20.00 Pianótrió i Es-dúr op. 1
nr. 1 eftir Beethoven
20.30 Heilög Birgitta Sveinn
Asgeirss. les þýðingu slna á
ritgerð eftir Vilhelm
Moberg.
21.00 Dönsk tónlist Willy Han-
sen, kór og hljómsveit
Konunglega leikhússins I
Kaupmannahöfn flytja
„Einu sinni var”, eftir
Lange-Muller: Johan Hye-
Knudsen stjómar.
21.30 Ctvarpssagan:
„Móöirin,” eftir Maxim
Gorkl
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir tþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.35 Afangar Tónlistarþáttur
I umsjá Ásmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.25 Fréttir 1 stuttu máli.
Dagskrárlok.
23. mai
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Tökum lagið Breska
hljómsveitin „The Settlers”
leikur og syngur létt lög.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
21.05 Kastljós Fréttaskýringa-
þáttur. Umsjónarmaður
Eiður Guðnason.
22.00 T ö f r a m a ð u r in n
Bandarlskur sakamála-
myndaflokkur. Banvæn
viðskipti. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.50 Dagskrárlok.