Tíminn - 30.05.1975, Blaðsíða 1
aldek
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
L Jt. ..--.U.l___
Landvélarhf
BRÁÐA-
BIRGÐA-
LÖGIN OG
VIÐBRÖGÐ
VIÐ ÞEIM
™------». 0
HALLDÓR E. SIGURÐSSON UM BRÁÐABIRGÐALÖGIN:
Vegna ónógs undirbúnings
var ekki fært að þreyta
mólið lengur við þær
kringumstæður sem voru
Kópavogsbrúin ekin niður
Gsal-Rvík — A sjötta timanum i
gærdag lá við stdrslysi i Kópa-
vogsgjánni, er skurðgrafa, sem
dregin var af vörubil, rakst i
undirstöðubita brúargólfs. Bóma
gröfunnar rakst I undirstöðubit-
ann að norðanverðu, með þeim
afleiðingum, að þrir bitar brúar-
gólfsins féilu niður á vörubflinn,
sem dró gröfuna. Engin siys yrðu
á fólki, þvi að svo heppilega vildi
til, að þrátt fyrir gifurlega mikla
umferð á þessum tima, varð að-
eins vörubfllinn undir bitunum. —
Timamyndir: Gunnar.
—fj. Reykjavik. Vegna setningar
bráðabirgðalaganna i gær átti
Timinn viðtal við Halldór E. Sig-
urðsson ráðherra um ástæðurnar
fyrir lagasetningunni. Fyrsta
spurningin, sem beint var til ráð-
herrans, var um það, hvers vegna
gripið hefði verið til þessarar
lausnar i vinnudeilunni.
— Ástæðan til þessara bráða-
birgðalaga er sú, að timinn er að
renna út hjá þeim, sem þurfa að
koma vörum sfnum á markað.
En áður en ég svara spurning-
unni frekar, vil ég taka það fram,
að ég tel, að lögð hafi verið mikil
vinna i að reyna að komast að
samkomulagi. Þetta var þriðji
sólarhringurinn, sem fór i það að
reyna aðkeyra samninga áfram,
en aðþeim loknum voru menn svo
ákaflega litlu nær en áður.
Það er ljóst, að ef verkföllin
hefðu dregizt öllu lengur, hefðu
glatazt svo mikil verðmæti, að
sumt af þvi hefði verið óbætan-
legt. I þvi sambandi vil ég nefna
áburðinn. Ef verkfallið hefði
dregizt fram eftir júni, hefðu
bændum glatazt öll not af áburði á
þessu sumri. Bændur á Suður- og
Suðvesturlandi hefðu orðið verst
úti, en þar er helzta mjólkur-
framleiðslusvæði landsins. Þetta
heföi leitt til þess að neytendur á
höfuðborgarsvæðinu hefðu átt
mjólkurskort yfir höfðum sér
næsta vetur.
Hver dagur og hver vika i töf á
áburðardreifingu hefði því getað
kostað ómælanlegar fjárhæðir,
þvi þar með hefðu einnig glatazt
tekjur þeirra bænda, sem
mjólkurframleiðslu stunda.
— Voru bráðabirgðalögin þá
aðallega sett bændanna vegna?
— 1 sambandi við Áburðar-
verksmiðjuna voru lögin sett bæði
fyrir bændur og neytendur, sem
þurfa á mjólk og öðrum landbún-
aðarafurðum að halda, þvi litil
hefði framleiðslan orðið án hey-
skapar i sumar.
En lögin ná einnig til Sements-
verksmiðjunnar og Kisiliðjunnar.
Það er ljóst, að byggingastarf-
semi var þegar stórlömuð, og þar
hefði ástandið hriðversnað með
hverjum deginum, ef ekkert hefði
verið að gert. Auk þeirra, sem að
jafnaði vinna við byggingar, er nú
að koma á vinnumarkaðinn
skólafólkið, sem alltaf tekur mik-
inn þátt i byggingastarfi að sumr-
inu til. Timinn, sem þetta fólk
hefur til starfa er stuttur, og
hefðu verkföll dregizt á langinn,
hefði skólafólkið getað glatað
verulegum hluta af sinum vinnu-
tima þetta árið.
Þar við bætist, að stórfram-
kvæmdir við Sigölduvirkjun voru
að stöðvazt, og stöðvun þar heföi
þýtt drátt á þvi að framleiðsla á
dýru rafmagni hefði getað hafizt.
Auk þess hefði atvinnuleysi
þeirra, sem þar starfa, vaxið á-
fram hröðum skrefum.
I þessu sambandi vil ég einnig
geta hafnarframkvæmdanna i
Þorlákshöfn. Framleiðsla á
steyptum steinum i hafnargarð-
inn þar var stöðvuð, og hafnar-
nefnd Þorlákshafnar taldi, að ef
ekki tækist að ganga frá garðin-
um i haust, gæti farið svo, að
hann færi forgörðum á næsta
vetri, og hefði þá getað orðið um
hundruð milljóna króna tjón að
ræða.
Auk þessa hefði það vart verið
æskilegt fyrir verksmiðjufólkið,
sem var búiö að vera i verkfalli á
þriðju viku, að verkföllin hefðu
dregizt enn á langinn. Ekki er ó-
sennilegt að svo hefði farið, ef
miðað er við þann litla árangur,
sem náðist i þessari þriggja sól-
arhringa lotu, þrátt fyrir þá
miklu undirbúningsvinnu, sem
fyrir hana var unnin. Það virðist
ljóst, að enn frekari undirbúning-
ur hefði þurft að eiga sér stað til
þess aö koma samningum'giftu-
samlega i höfn, og þvi var ekki
talið fært að þreyta þetta lengur
við þær aðstæður, sem nú voru
fyrir hendi.
Það þarf ekki að taka það fram,
að til aðgerða á borð við bráða-
birgöalög I kjaradeilum er ekki
gripið nema brýna nauðsyn beri
til. Og ég held, að menn séu yfir-
leitt sammála þvi, að málið hafi
verið komið á það stig, að brýna
nauösynbæri til þessara aðgerða.
— Nú eru önnur verkföll i
gangi. Má af þessum bráða-
birgðalögum draga einhverja á-
lyktun um afstöðu rikisstjórnar-
innar til annarra kjaradeilna?
— Þaö hefur sýnt sig, að við
mjög erfiðar aðstæður var lengi
beðið með að gripa til bráða-
birgðalaganna sem lausnar, og
allan timann var lögð rik áherzla
á að reyna að ná samningum.
Mér finnst þaö næg sönnun þess,
að hér var um neyðarúrræði aö
ræða.
Rikisstjömin mun kappkosta,
að aðilar vinnumarkaðarins nái
samkomulagi hér eftir sem hing-
að til, þó að við þær kringumstæð-
ur, sem þarna voru, hafi orðið að
grfpa til þessara aðgerða.
Aðspurður i gærkvöldi um þá
samþykkt starfsmanna rikis-
verksmiðjanna að mæta ekki til
starfa, þrátt fyrir bráðabirgða-
lögin, sagði ráðherrann: „Þetta
eru nú ekki fyrstu gerðardóms-
lögin, sem sett hafa verið til að
leysa vinnudeilu, og reynslan
sýnir, að fyrri sllk lög hafa veriö
haldin. Ég hef ekki trú á þvi, að
þessi lög verði siður haldin en
önnur, enda væri þá annað sem
þvi réði en átök á vinnumarkaðn-
um.
Ég trúi þvi ekki, að svo fari, aö
menn mæti ekki til starfa á morg-
un.
Mæta ekki þrátt fyrir lagasetninguna
• •
ENGIN LOG
BH-Reykjavik. — A fundi með verkfallsmönnum i rikis-
verksmiðjunum I gær, komst Björn Jónsson, forseti Al-
þýðusambandsins svo að orði i ræðu sinni, aö hann liti ekki
á bráðabirgðalögin, sem nein lög, og slikt mætti verka-
lýðshreyfingin ekki gera vegna þess, sem á eftir færi.
Hann væri reiðubúinn að mæta hvaða ofsóknum og réttar-
sóknum sem væri, af hálfu rlkisvaldsins, og skoraöi á
verkfallsmenn að láta ekki deigan siga. Hét Björn starfs-
mönnum fullum stuðningi verkalýðshreyfingarinnar.
ASK-Reykjavik. Mikill einhug-
ur rikri á fundi starfsmanna
Aburðarverksmiðjunnar og
Sementsverksmiöjunnar, sem
haldinn var I Lindarbæ I gær.
Voru fundarmenn sammála um,
að þær aðgerðir sem rlkis-
stjórnin greip til væru sllkar að
við yrði ekki unað.
Gerði fundurinn eftirfarandi
samþykkt: „Fundur starfsfólks
i Áburöarverksmiðju rikisins og
Sementsverksmiðju rikisins
v/Artúnshöföa, haldinn I Lind-
arbæ 29. mai 1975 samþykkir
með tilliti til fundarsamþykktar
miðstjórnar ASÍ, samninga-
nefndar ASÍ og samninganefnd-
ar starfsfólks i verksmiðjum aö
sem einstaklingar mæti þeir
ekki til vinnu meðan samningar
hafa ekki tekizt með eðlilegum
hætti.” Einn fundarmanna var
á móti.
Trúnaðarmaður starfsmanns
Aburðarverksmiðju sagöi, að
einungis hluti starfsmanna
fyrirtækisins heföi mætt til
vinnu I dag og einungis hefðu ör-
fáir bilar verið afgreiddir.
Mestur hluti þeirra er mættu
voru lausráönir starfsmenn, en
fastráðnir voru fáir.
A fundinum var samþykkt að
trúnaðarmenn mynduöu nokk-
urs konar samstarfsnefnd er á-
kvæði viöbrögð starfsmanna
gegn þeim ákvörðunum er at-
vinnuveitandi þeirra kynni að
gripa til. Þá eiga trúnaðar-
mennirnir aö tengja innbyröis
samband verkamannanna.