Tíminn - 30.05.1975, Síða 4
4
TÍMINN
rTTTtOOQBTTTTT
Föstudagur 30. mai 1975
FORD-FORSET ASYNIRNIR
OG HERSKYLDAN
MiKE FORD
★
Sala Lada-
bifreiða í
Englandi
tvöfaldaðist
Lada-bifreiðin, sem framleidd
er f borginni Togliatti við Volgu,
er nú orðin ein af mest seldu bif-
reiðunum i Englandi. Englend-
ingar hafa i ár pantað fleiri bila
frá verksmiðjunum en i fyrra.
Enskir sérfræðingar um bifreið-
ar telja, að meðal margra góðra
kosta Lödunnar séu gangvissa
og sparneytni fremstir. Þannig
skrifar sérfræðingur
„Guardians”, að Lada gæti
mjög auðveldlega orðið „billinn
fyrir alla” i Stóra-Bretlandi.
Reyndar hefur sala á öðrum
sovézkum einkabil, Moskwich,
einnig aukizt mjög. Komið hefur
verið á fót stórri þjónustumið-
stöð, sem hefur stöðugt sam-
band við þjónustudeild verk-
smiðjanna og aðstoðar við-
geröarverkstæði viðsvegar um
landiö.
Nýtt verk eftir
Katsjaturian
Hið heimsfræga, sovézka tón-
skáld, Aran Katsjaturian, hefur
samið nýtt verk, sem höfundur-
inn nefnir „Fánaberi sigurs-
ins”. Verkið er samið i tilefni af
30 ára afmæli sigursins yfir
fasismanum. Er það gert fyrir
hljómsveit, og tekur flutningur
þess 5 minútur. Samkvæmt upp-
lýsingum UNESCO er „Sverð-
dans” Katsjaturians mest
leikna tónverk I heimi.
Enginn ungur Bandarikjamað-
ur hefur verið kvaddur til her-
þjónustu siðan árið 1972, en það
er dregið um það á hverju ári,
hverjir af þeim sem á þvi ári
eru 19 ára skuli fara i herinn, ef
neyðarástand skapaðist. Sá,
sem stjórnar herkvaðningU’
ungra manna i Bandarikjunum,
heitir Byron Pepitone, og er
eftir honum haft, — að ástandið
Iheimsmálunum sé þannig, eins
og sjá megi og heyra af fréttum,
að nauðsynlegt sé að vera við-
búinn öllu, en vona hið bezta.
Þetta er eins og nokkurs konar
„happdrætti”, þegar dregin eru
út nöfn ungra manna til her-
þjónstu. Nýlega fékk Steve
Meigs Ford „happdrættisvinn-
ing” nr. 81, og með þessu lága
númeri er hann einn af þeim
fyrstu, sem yrði kallaður i her-
inn ef alment herútboð færi
fram. Síðastliðið sumar fékk
hann aðvörun frá heryfirvöld-
um, þvi að þá átti hann 18 ára
afmæli, en 30 dögum fyrir eða
eftir 18 ára afmæli sitt eru
Bandarikjamenn skyldaðir til
að.láta skrá sig. Steve var 72
dögum of seinn að láta skrá sig,
og hefði það dregizt mikið leng-
ur, þá gat farið svo,.að hann
hefði þurft að sæta refsingu.
Þyngsta refsing fyrir vanrækslu
af þessu tagi, er 10.000 dollara
sekt, eða jafnvel allt að 5 ára
fangelsi. Aumingja Steve skrif-
aði afsökunarbréf sem er dags.
30. ág. I T.C. Williams High
School i Alexandria, Va., og þar
i sagði hann, — að skrásetningin
hefði gleymzt hjá sér i
spenningnum, þegar faðir hans
var skipaður forseti og I öllu
„flutningsstandinu”, og var af-
sökun hans tekin til greina.
Steve á tvo eldri bræður, þá
Mike, sem fæddur er 14. marz
1950 (25ára) og Jack, fæddur 16.
marz 1952. Þeir hafa báðir verið
mikið heppnari með sin her-
skyldunúmer. í þessari grein,
sem segir frá vandræðum
Steve, vegna gleymsku hans að
skrá sig, segir einnig, að þrátt
fyrir hiö lága herskyldunúmer
sitt, þá þurfi forsetasonurinn að
öllu óbreyttu ekki að óttast að
verða kallaður i herinn, þvi að
sjálfboðaliðar bjóðist alltaf, og
jafnvel miklu fleiri, en þörf sé á.
Margir ungir menn, sem eiga
erfitt með að kosta sig til
mennta, ganga I herinn, til þess
að komast á ýms námskeið og fá
menntun, sem þeim stendur þar
til boða. Einnig er sagt, að þeg-
ar atvinnuleysi aukist fjölgi
alltaf sjálfboðaliðunum. Hér
sjáum við myndiraf Steve, Jack
og Mike Ford, — hinum
myndarlegustu piltum.
Adam er hinum
meqin
í Amerlku er nú farið að fram-
leiöa pússluspil með biblíu-_
myndum. Hér sjáum við eitt,
sem sett er saman úr 500 bitum,
og þegar búið er að setja þá
saman, kemur i ljós mynd af
Evu. En ekki nóg með það. Hin-
um megin á pússluspilinu er
mynd af Adam, og þeir sem
vilja sjá hann, verða að raöa
bitunum 500 saman aftur, þvl
ekki er hægt að snúa Evu við, án
þess að allt hrynji I 500 parta.
JACK FORD