Tíminn - 25.06.1975, Síða 16
r - : ; -1
Nútíma búskapurparfnast
BAUER
hauqsuqu .
Guöbjörn
Guöjónsson
•T?
Gl-ÐI
fyr irgó áa n m ai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Átök í Tyrklandi
— innan þings sem utan
Amin forseti um sendimann Elísabetar
drottningar:
Kom ruddalega fram
og var drukkinn
Eeuter-London/Nairobi. Idi Amin
Ugandaforseti sendi Elisabetu
Bretadrottningu ný skilaboð i
gær. í þeim boðum — sem reynd-
ar er fimm siöna langt skeyti —
kom fram óánægja Amin með
framferöi annars af sendimönn-
um þeim, er drottning sendi á
hans fund til að fá hann til að
þyrma lifibrezka háskólakennar-
ans Denis Hills.
1 skeytinu segir Amin, að Sir
Chandos Blair hershöfðingi hefði
komið ruddalega fram — eins og
hann væri enn yfirmaður minn.
(Hershöfðinginn var yfirmaður
herdeildar Amin, er forsetinn var
I nýlenduher Breta i Uganda.)
Aður hafði Amin sakað Blair
um að hafa verið drukkinn,
meðan á Ugandadvölinni hefði
staðið. Hershöfðinginn visaði
þessum ásökunum algerlega á
bug, en hann kom til London i gær
með skilaboð frá Amin. I þeim
boðum segir, að Hills verði tekinn
af lifi þann 4. júli n.k. — nema
James Callaghan utanrikisráð-
herra bregði sér til Uganda til
viðræðna við forsetann. Callag-
han hefur lýst yfir, að hann láti
hvorki einn né neinn neyöa sig til
að fara eitt né neitt.
Callaghan: Veröur
áskorun Amin?
hann við
Gandhi svipt þing-
mannsréttinum
Fingralangur
vasaþjófur
Reuter-London. Ferðamaður
frá iran varö i fyrrakvöld fyr-
ir baröinu á vasaþjófi I mið-
borg London. Það er i sjálfu
sér ekki I frásögur færandi.
Hins vegar er peningaupphæð
sú, er þjófurinn hafði upp úr
krafsinu, sú hæsta, er sögur
fara af — a.m.k. i Bretlandi:
7000 pund (u.þ.b.2,5 milijónii
isl. krónur).
Eins og segir i Reuters-frétt,
varð ferðamaðurinn 7000
pundum fátækari á aðeins
tveim sekúndum, meöan hann
beið eftir lest á neðanjarðar-
stöðinni við PiccadillyGircus.
Lögreglan i London' vinnur
nú að uppljóstrun þessa vasa-
þjófnaðar. Einn af yfirmönn-
um hennar lét svo um mælt i
gær, að þjófurinn hefði
áreiðanlega orðið undrandi,
þegar hann hefði uppgtövað
verðmæti þýfisins. Venjulega
bera vasaþjófar aðeins u.þ.b.
20 pund úr býtum i einu.
NTB-Nýju Delhi. Indira
Gandhi ætlar sér að gegna
áfram forsætisráöherraemb-
ætti á Indlandi. Erfiðleikar
hennar eru þó engan veginn að
baki.
Einn af dómendum ihæsta-
rétti landsins — en Gandhi
hefur áfrýjað dómi undirrétt-
ar, er svipti hana embættis-
gengi i sex ár vegna meints
kosningamisferlis — kvað i
gær upp bráðabirgðaúrskurð i
máli hennar. Úrskurðurinn
felur m.a. i sér, að forsætis-
ráðherrann má ekki sitja
fundi indverska þingsins með
fullum réttindum — aftur á
móti er henni leyfilegt að
ávarpa þingið i krafti ráð-
herradóms sins.
Þessi úrskurður — er hæsti-
réttur einn getur breytt — er
mikið áfall fyrir Gandhi og
stuðningsmenn hennar.Leið-
togar Kongress-flokksins
komu i gær saman á heimili
forsætisráðherrans til að ræða
hin nýju viðhorf. Bæði Gandhi
og aðrir þeir, er sátufundinn,
neituðu að ræða við frétta-
menn að honum loknum.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Stjórnarandstæöingar hafa nú
hótað að hefja áróðursherferð
fyrir afsögn Gandhi — láti hún
ekki af embætti af fúsum vilja.
NTB/Reuter-Atlanta/Washing-
ton. Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandarfkjanna, sagði i
gær, að kambódiska þjóðin hefði
orðiö að þola miklar raunir af
völdum hinna rauðu „khmera”,
cr tóku völd i landinu fyrir tveim
mánuðum.
Kissinger lét svo um mælt á
fundi með fréttamönnúm i borg-
inni Atlanta i Georgiu-fylki i gær.
Hann sagðist hafa áreiðanlegar
heimildir fyrir þvi, að fjöldi
manna hefði beinlinis verið rek-
Reuter-Ankara. Til mikilla átaka
hefur að undanförnu komið I
Tyrklandi. Bulent Ecevit, leiðtogi
tyrknesku stjórnarandstöðunnar,
sagði i þingræðu I gær, að Tyrk-
landsstjórn bæri ábyrgð á ókyrrð-
inni I landinu og ætti þvi að segja
af sér.
inn út i dauðann — þ.e. rekinn úr
borgunum út I sveitir, þar sem
ekki væri uppskeru von, fyrr en i
nóvember.
Þá kvað hann Bandaríkjastjórn
hafa traustar heimildir fyrir þvi,
að bardagar geisuðu nú á landa-
mærum Kambódiu og Suður-Viet-
nam, og ættust þar við hersveitir
hinna nýju valdhafa.
1 fyrrakvöld hélt Kissinger
ræðu, þar sem hann varaði
bandamenn Bandarikjamanna
1 gær kom til átaka milli stú-
denta i Ankara með þeim
afleiðingum.að tveir létu lifið og
fleirisærðust alvarlega. Heitt var
i kolunum á þingi i gær, meðan
rætt var um átökinog kom m.a.s.
til átaka milli þingmanna stjórn-
ar og stjórnarandstöðu.
við að storka þeim, t.d. með þvi
aö hóta aö slitahernaðarsamvinnu
við þá. A fundinum i gær kvaðst
hann aðspuröur hafa átt viö hvern
sem væri — en ekkj sérstaklega
Tyrki, er hótað hafa að visa á
brott þeim bandariskum her-
mönnum, er nú dvelja i Tyrklandi
— verði ekki tekin upp að nýju
sala á bandariskum vopnum til
Tyrklands. (Bandarikjaþing
lagði sem kunnugt er bann við
slikri vopnasölu vegna framferðis
Tyrkja i Kýpurdeilunni.)
Guillaume fámáll
— er hann kom fyrir rétt í gær
Reuter-Dusseldorf. Gunter
Guillaume, fyrrum aðstoðar-
maður Willy Brandt kanslara,
kom í gær fyrir rétt — sakaður
um njósnir I þágu Austur-
Þjóðverja. Sömuleiðis var
eiginkona hans leidd fyrir rétt
— ákærð um njósnir.
Þegar ákæran á hendur
Guillaume hafði verið lesin,
sagði hann: — Ég vil ekki láta
hafa neitt eftir mér. Og kona
hans hefur notfært sér rétt
sinn til að neita að gefa vitna-
skýrslu i máli manns sins.
Akæran á hendur Guillaume
byggist fyrst og fremst á játn-
ingu hans sjálfs, en i henni
koma fram ýmsar markverð-
ar staðreyndir — t.d. er hon-
um gefið að sök aðhafa tekið
ljósmyndir af vestur-þýzkum
leyndarskjölum með örsmárri
myndavél.
Réttarhöldin fara fram fyrir
luktum dyrum,og verður þeim
fram haldið á föstudag. Guill-
aume á yfir höfði sér lifstiðar-
fangelsi, en kona hans eins árs
fangelsi, verði þau fundin sek
um ákæruatriðin.
Kissinger ómyrkur í máli:
Kambódíska þjóðin hefur
þolað miklar raunir
Ótryggt stjórnmálaástand í Líbanon:
Eru ný stórátök í vændum?
Tveir létu lífið í gær og fjöldi særðist í götubardögum
Reuter—Beirut. Enn á ný er friö-
ur úti I Beirut, höfuðborg Libanon
— eftir þriggja vikna langt hlé.
Hin nýju átök varpa ljósi á stjórn-
málaástandið I landinu, sem er
ótryggt, þar eð Rashid Karami
hefur enn ekki tekizt að mynda
starfhæfa stjórn, þrátt fyrir íang-
ar og strangar tiíraunir.
Um miönætti i fyrrinótt hófst
vélbyssuskothrið og sprengju-
dunur I úthverfum Beirut. Atökin
stóöu fram eftir nóttu og af og til I
gær mátti heyra stöku skothvell.
Ljóst er, að hinir fornu féndur —
hægrisinnaöir falangistar og
palestinskir skæruliðar — áttust
viö, enda virtust átökin hvað
hörðust á mörkum tveggja út-
hverfa, þar sem annars vegar
búa kristnir menn og hins vegar
múhameðstrúarmenn.
Fréttaritari Reuters sá fjölda
unglinga — klædda hinum græna
herbúningi falangista og með
skotvopn I hendi — hlaupa eftir
einni af götum borgarinnar.
Flokkur öryggisvarða Libanon-
stjórnar stóö hjá og hafðist ekki
að. Aðspurður, hverju það sætti,
svaraði foringi þeirra, aö þeir
heföu ekki fengið fyrirskipun um
að taka I taumana.
Átökin i gær kostuðu a.m.k. tvo
lifiö og fjöldi annarra særöist.
Talið er, að þau hafi byrjað með
rifrildi. .
Ibúar Beirut óttast nú, að ný
átök á borð við þau, sem urðu
fyrir tæpum mánuði, séu I vænd-
um. Fulltrúar falangista og
skæruliða sátu á fundum i gær_,
með lögregluyfirvöldum, til að”
reyna að koma i veg fyrir frekari
átök. Ekki lá ljóst fyrir I gær-
kvöldi, hvort samkomulag hefði
náðst um einhverjar gagnráð-
stafanir.
Götuvirki I Beirut, er reist var I átökunum fyrir tæpum mánuöi.
VÖRU
SÝNINGAR
SALUR
Húsbyggjendur
ALLT
Á EINUM STAÐ