Tíminn - 15.07.1975, Page 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖfiDUK OUHHARSSOK
SKÚLATLJNI 6 - SÍMI (91)19460
Arfaeyðir í
eiturrannsókn
Dagsetning útfærsl-
unnar í 200 mílur
verðurókveðinídag
H.V. Reykjavik. Kartöflurækt-
endur hafa átt i nokkrum erfiö-
leikum i sumar, vegna þess að ný
löggjöf, sem sett var á siðasta
þingi, um meðferð eiturefna i
garðyrkju, hefur komið i veg fyrir
sölu á eiturefninu STAM, sem
notað hefur verið sem arfaeyðir i
kartöflugörðum i mörg ár. Skort-
ur á efni þessu hefur leitt til
mikils arfagróðurs i kartöflu-
görðum , sem erfitt hefur reynzt
að komast fyrir, þar sem á
markaðnum hafa ekki verið nein
efni, sem komið geta i stað
STAM.
1 viðtali viö Timann i gær sagði
Þorvaldur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna, að löggjöfin kvæði
svo á, að öll þau efni, sem notuð
væru við garðyrkju og hefðu að
innihaldi einhvers konar eitur,
skyldu rannsökuð á vegum eitur-
efnanefndar, áður en frekari sala
eða notkun á þeim yrði leyfð.
Kvað Þorvaldur ákvæði þessi
valda kartofluræktendum nokkuð
miklum vandkvæðum nii, þar
sem enginn annar arfaeyðir
fengist i staðinn. Fyrstu tiu dag-
ana eftir niðursetningu kartaflna
mætti aö visu nota efnið Afalon,
en eftir það ekkineitt annað en
STAM. Tók Þorvaldur fram, að
notkun þess væri einnig tima-
bundin og jafnvel þótt úrskurður
bærist nú um að notkun Stam
væri heimil, væri orðið of seint að
setja það I garðana nú.
— En hvað um það, sagði Þor-
valdur. Okkur ber að fara eftir
löggjöfinni, þótt einhver hefði
litið svo á, að ekki skipti svo ýkja
miklu máli með notkun þess eitt
sumar I viðbót. Stefnan er sú að
nota sem minnst af þessum eitur-
efnum, og vissulega er það
ánægjulegt, að reynt er að koma i
veg fyrir að menn eitri og mengi
fyrir sjálfum sér og komandi kyn-
slóðum, svo það tjóar ekki að
malda I móinn.
Vissulega hefðum við þó mátt
leita að einhverjum hluta til
frænda okkar og nágranna á
Norðurlöndum, þvi þeir eru mun
reynslumeiri en við á þessu sviði,
og hefði vel mátt taka nokkurt
mið af þvi hvað þeir leyfa sinum
garðyrkjumönnum. að nota og
hvernig.
H.V. Reykjavik. —Ákvörðun um
það hvenær landhelgi okkar verð-
ur færð út i 200 mllur verður
væntanlega tekin á morgun. Þá
veröur Landhelgisnefndarfundur
klukkan 10.30 og svo rikis-
stjórnarfundur i framhaldi af
honum. Eftir þann fund ætti
ákvörðun að liggja fyrir sagði
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra i viðtali við Timann i gær.
— Ég geri ráð fyrir, að á.
þessum fundum verði fyrst og
fremst fjallað um útfærsludag-
inn, sagði utanrikisráðherra enn-
fremur, en býst tæpast viö að á
þeim verði neitt ákveðið um frek-
ari viðræður við Breta eða Vest-
ur-Þjóðverja.
Það ætti þvi að liggja fyrir þeg-
ar llður á daginn I dag, hvenær
lögsaga okkar verður færð úr 50
mllum i 200 og Tlminn hefur
fregnað að fyrir siðustu helgi hafi
FF-Reykjavik. „Aðeins” um
15 þúsund manns sóttu 15. lands
mót UMFl á Akranesi um
helgina og var það nokkru
færra, en forráðamenn mótsins
höfðu gert sér vonir um. En
mótið fór glæsilega fram i alla
staði og var ungmennahreyfing-
unni til mikils sóma. Geysileg
spenna var i stigakeppninni
milli félaganna og stúlkan á
myndinni dregur greinilega
ekkert af sér til að gera veg
félags sins sem mestan.
SJÁ GREIN
í OPNU
OG ÚRSLIT
Á BLS.
16 OG 17
sendiráð Fslands erlendis veriö
látinvita af þvl að senn drægi til
útfærslu, og meðal annars hafi
sumarleyfum sendifulltrúa veriö
frestað vegna þess.
Þess má þvi vænta að útfærsla
sé ekki ýkja langt undan.
Svíar ákveða
að kaupa
meira kjöt
og fleiri hross
af okkur
> e
Það vantar
neyðarút-
ganga á
nær alla
rútubíla
hér á landi
------► O
JAKINN SKAR GAT
_____o___ _
Á KINNUNG BÁTSINS
GS-lsafirði. — Vélbáturinn
Siggi Gummi tS 111 sökk á
sunnudagsmorgun, eftir að hafa
rekizt á Isjaka um 3,5 sjómílur
út af Hælavikurbjargi . Skip-
verjar, sem eru fjórir, komust I
gúmmibjörgunarbát, og réru i
land við Hlöðuvik, en þar er
slysavarnaskýli. Þaðan gátu
þeir gert vart við sig, en til tsa-
fjarðar komu skipbrotsmenn-
irnir á sunnudagskvöld.
Það var um klukkan fimm á
sunnudagsmorgun, sem Siggi
Gummi 1S 111 rakst á Isjakann.
Við stýrið stóð skipstjóri og
eigandi bátsins, Hermann
Sigurðsson. Hann sá ekki
jakann, sem var svo til alveg i
kafi. Jakinn skar gat á kinnung
bátsins og sjór fór strax að
renna inn i hann.
Hermann skipstjóri sneri þeg-
ar að landi, þvi að sýnt þótti að
dælur myndu ekki hafa undan
að dæla sjónum úr bátnum. Um
sjöleytið stöðvaðist vél bátsins
og klukkustund seinna sökk
hann. Þá var áhöfnin, fjórir
menn, komin i tvo gúmmi-
björgunarbáta.
Skipverjar kölluðu strax út á
neyðarbylgju og venjulegri tal-
bylgju, þegar báturinn rakst á
isjakann, en fengu ekkert svar.
Það var ekki fyrr en þeir voru
búnir að vera klukkustund i
skýlinu í Hlöðuvik, að vélbátur-
inn Sigurvon frá ísafirði,
svaraði kalli þeirra úr talstöð-
inni i skýlinu, og um leið kom
ísafjarðarradió inn i samtalið.
Mennina fjóra sakaði ekki, og
varla er hægt að segja að þeir
hafi blotnað, en þeir voru um
klukkustund að róa björgunar-
bátunum I land við Hlöðuvlk.
Það var vélbáturinn Halldór
Sigurðsson, sem náði i skip-
brotsmennina i Hlöðuvik og
komu þeir til Isafjarðar um kl.
22:00 á sunnudagskvöldið.
Vélbáturinn Siggi Gummi IS
111 var smiðaðuri Njarðvik 1943
og var 28 lestir að stæðr. Bátur-
inn var að fara á færaveiðar
þegar óhappið skeði.
A myndinni hér fyrir ofan til
hægri er Hermann Sigurðsson
(annar frá vinstri) með skip-
verjum sinum — nýkomnir til
tsafjarðar. Tlmamynd G.S.
HEIMSÆKIR
BÍLDUDAL
^ 6 og 7 <