Tíminn - 15.07.1975, Page 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 15. júlí 1975.
EINAR ÁGÚSTSSON, UTANRÍKISRÁÐHERRA:
Athuaasemd
við
Tímafrétt
Látið bólusetja
ykkur gegn
taugaveiki, ef
þið hyggið á
ferð til S-Evrópu
Vegna fréttar um tauga-
veikitilfelli i Bretlandi meðal
fólks, sem dvalist hafði á
Mallorca, vill landlæknir ein-
dregið hvetja þá sem hyggja á
ferðir til Suður-Evrópu til þess
að láta bólusetja sig gegn
taugaveiki.
Islendingar, sem þaðan
koma eru hvattir til árvekni,
ef þeir fá hitasótt eða niður-
gang innan 2ja-3ja vikna eftir
heimkomuna og leita þá
læknis.
Þeir sem hafa verið bólu-
settir 2svar með minnst 10
daga millibili gegn taugaveiki
og taugaveikibróður eru
varðir en þó er bólusetning
ekki einhlit.
Sérstaklega er mikilvægt að
þaðfólk, sem vinnur við mat-
væli sé vel á verði.
„örfá orð, sem eftir mér eru
höfð I Timanum s.l. miðvikudag
virðast hafa valdið nokkru
fjaðrafoki, en vegna sumarleyf-
is undanfarna viku hef ég ekki
komið þvi i verk að gera við
frétt þessa nokkrar athuga-
semdir, en það skal nú gert.
Ég leyfi mér að benda á, að
fyrirsögn blaðsins gefur alls
ekki rétta mynd af efni viðtals-
ins, en i fyrirsögninni segir, að
islenzkum stjórnvöldum sé
ókunnugt um varnarbúnað
varnarliðsins.
Ef menn lesa það, sem eftir
mér er haft i fréttinni, þá er
ljóst að þessi orð hef ég alls ekki
viðhaft.
Það sem ég sagði er orðrétt
þetta: „Við höfum alls ekkert
hernaðarlegt eftirlit með störf-
um og búnaði varnarliðsins i
NATÓ-herstöðinni i Keflavik.”
Þetta þýðir að sjálfsögðu alls
ekki það, að við vitum ekkert
um það, hvaða starfsemi fer
fram á vellinum. Þvert á móti
fæ ég mjög oft skyrslur bæði frá
aðmirálnum á Keflavikurflug-
velli og sendiráði Bandarikj-
anna hér i Reykjavik, og ég leyfi
mér að halda þvi fram, að ég
hafi a.m.k. ekki siður en aðrir
utanrikisráðherrar fylgzt með
þvi, sem er að gerast á Kefla-
vikur-flugvelli.
Hins vegar hélt ég, að allir ts-
lendingar vissu, að við höfum
enga hernaðarsérfræðinga i
okkar þjónustu og höfum aldrei
haft. Það var nákvæmlega
þetta, sem ég átti við með þeim
ummælum, sem eftir mér voru
höfð i áðurnefndu viðtali.
Það má svo vafalaust deila
um það, hvort hér eigi að koma
upp sveit manna, sem hafi
hernaðarlega þekkingu, og taki
beinan þátt i hernaðaraðgerð-
um, en um það ræði ég ekki
frekar i þessari athugasemd.”
Nýr bdtur frd Vör hf.
ASK—Akureyri. — Nýr bátur hefur verið afhentur frá Skipasmiöa-
stöðinni Vör h/f á Akureyri og ber hann nafniö Ægir Jóhannsson
ÞH-212. Eigendurnir eru fimm ungir menn frá Grenivik.
Ægir Jóhannsson er 29 tonn að stærð, búinn öllum venjulegum
siglingar.og fiskileitartækjum. Aða.vél er Volvo Penta 300 hestöfl.
Báturinn er teiknaður af Páli Hjartarsyni, en hann hefur teiknað
alla báta Varar h/f,sem með Ægi Jóhannssyni eru orðnir sex tals-
ins. Skipstjóri á Ægi er Sævar Sigurðsson.
Miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar hjd
Sólborg d Akureyri
Fá styrk til
að rannsaka
heilsufar
starfsfólks
Kísiliðjunn-
ar/Mývatn
Visindadeild Atlantshafs-
bandalagsins hefur nýlega veitt
hópi læknanema við Háskóla Is-
lands, sem unnið hefur að ýmsum
læknisfræðilegum könnunum,
styrk til visindalegrar rannsókn-
ar á heilsufari starfsfólks Kisil-
iðjunnar við Mývatn, sem skipu-
lögð hefur verið með tilsögn há-
skólakennara og i samráði við
heilbrigðisyfirvöld.
Styrkurinn er að fjárhæð B.fr.
160,000.00 eða jafnvirði um 695
þúsund króna.
Hér er um að ræða einn af svo-
nefndum umhverfismálastyrkj-
um bandalagsins, en þeir eru
þáttur i starfsemi bandalagsins á
sviði vaniamála nútimaþjóð-
félags.
Styrkjum var að þessu sinni út-
hlutað til tiu umsækjenda i 9
aðildarrikjum.
Veturliði
framlengir
Gsal—Reykjavik. —Mjög góð að-
sókn hefur verið að málverkasýn-
ingu Veturliða Gunnarssonar i
Norræna húsinu og hafa 48 mynd-
ir selzt. Málverkasýningunni átti
að ljúka á sunnudagskvöld, en
hún hefur nú verið framlengd, og
verður siðasti sýningardagur i
dag, þriðjudag. Málverkasýning
Veturliða er opin til kl. 22 i kvöld.
ASK—Akureyri. 1 sumar verður
hafist handa um viðbyggingu hjá
vistheimilinu Sólborgá Akureyri.
Um er að ræða fyrsta áfanga af
þremur og reiknað með að hon-
um verði lokið eftir tvö ár. Fyrsti
áfanginn er ætlaður fyrir örvita,
en það hefur háð starfsemi Sól-
borgar um langa hrið að ekki
hefur verið hægt að sundurgreina
sjúklinga eftir þvi á hvaða sjúk-
dómsstigi þeir eru. Fjárveiting til
fyrstááfanga eru um 20 milljónir
en að sögn Jóhannesar Ó.
Sæmundssonar stjórnarformanns
Sólborgar nægir fjárveitingin til
að grafa grunninn og ganga frá
honum fyrir veturinn.
Upphaflega var Sólborg miðuð
við 32 sjúklinga en eins og málin
standa í dag eru þar 56 manns
þannig að brýn þörf er á fram-
kvæmdum. Sé miðað við 1980 þá
ættu þessar byggingar að nægjá
fyrir Norðurland þegar þeim er
lokið, en tæplega getur það orðið
fyrr en eftir þann tima.sé miðað
við venjulegan framkvæmdar-
hraða hjá opinberum aðilum.
1 fyrsta áfanga á að vera eins
og áður var minnst á, örvitadeild
fyrir um 12-15 manns, en i öðrum
áfanga vinnuaðstaða, sundlaug
og skrifstofur, en þriðji áfangi er
hugsaður aðallega sem tengiálm-
AIR VIKING LEIGIR ÞOTU
Air Viking hefur tekið á leigu
þotu sömu tegundar og þær tvær
vélar, sem félagið á. önnur
þeirra þarf innan tiðar að fara i
umfangsmikla skoðun, en vegna
annrikis á flugvélaverkstæðum
erlendis getur ekki orðið af henni
fyrr en i haust og varð Air Viking
þvi að taka á leigu vél til að geta
Leiguþota Air Viking á
Keflavikurflugvelli
RÁÐUNEYTIÐ TÓK EKKI
UNDIR ÓSKIR UM SÝSLU■
FULLTRÚA Á ÞÓRSHÖFN
ASK-Akureyri. Eins og mörg-
um er kunnugt þá kom út i marz
siöastliðnum Byggðaþróunar-
áætlun Norður-Þingeyjasýslu.
Þar var meðal annars bent á þá
nauðsyn, að fulltrúi sýslu
manns hefði aðsetur á Þórs-
höfn, þannig að þar geti farið
fram afgreiðsla á öllu, er varð-
ar veðmálabækur, almanna-
tryggingar og þessháttar.
Nú nýlega hefur Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið lagzt
gegn þvi, og talið slika upp-
byggingu óæskilega, meðal
annars vegna kostnaðar, sem af
þvi hljótist og ráðuneytið telur
sizt minni en rekstur eiginlegr-
ar sýslumannsskrifstofu. Þá
samrýmist fyrirkomulag það,
er áætlunin gerði ráð fyrir,
ekki ákvæðum réttarfarslaga
um ábyrgð dómara á dómara-
verkum fulltrúa sinna. Að lok-
um taldi ráðuneytið ibúa
vesturhluta sýslunnar hafa tak
annað miklum flutningum, sem
framundan eru hjá félaginu.
1 fréttatilkynningu Air Viking
um leiguna á flugvélinni segir
m.a. svo:
„Viðhald og smærri skoðanir
(A og B) eru allar unnar af is-
lenzkum starfsmönnum á Kefla-
vlkurflugvelli, en stærri
skoðanirnar (C og D) verður að
framkvæma erlendis, þar sem
aðstaða er ekki á Keflavikurflug-
velli ennþá fyrir stærri skoðanir á
flugvélum. önnur þota Air Viking
fór á siðastliðnu vori i C-skoðun á
Irlandi, en hin þotan á nú innan
tlðar að fara i D-skoðun, sem
einnig þarf að framkvæma er-
lendis og tekur um 6 vikur. Vegna
mjög mikils annrikis á flugvéla-
verkstæðum þeim sem til greina
koma við slik verkefni, getur
þetta verk ekki orðið unnið fyrr
en I septemberlok.
Vegna mikils annrikis hjá Air
Viking var tekin á leigu i Banda-
rlkjunum þota af sömu gerð og
þotur þær sem Air Viking á. Inn-
réttingar eru þó að nokkru frá-
brugðnar. 1 vélinni er rúm fyrir
176farþega. Umsaminn leigutimi
er 3 mánuðir. Áhafnir Air Viking
fljúga að sjálfsögðu vélinni og
flugvirkjar fyrirtækisins annast
viðhald vélarinnar, þar sem I
leigusamningnum er ekkert
keypt af hinum erlendu aðilum
nema not sjálfrar vélarinnar.
Ef stóraukin erlend verkefni
hjá Air Viking kæmu til sögunnar
áður en leigutímabilinu lýkur, er
kostur á þvi að framlengja leig-
una eða kaupa vélina og rynni þá
um 45% af þegar greiddri leigu
sem greiðsla til eigenda.
Hjá Air Viking eru annars ekki
á döfinni nein áform um frekari
aukningu á flugflota.”
Nú verða hundaeigendur að
fara að landslögum
BH-Reykjavik. — Ég tók þá
ákvörðun, eftir nýfallinn dóm
hæstaréttar f máli hundaeiganda,
mörkuð not af fulltrúa staðsett
um á Þórshöfn.
Þar sem ráðuneytið taldi þá
leið, er sett var fram I byggða-
þróunaráætluninni, ófram-
kvæmanlega, voru af heima-
mörinum settar fram ekki alls
fyrir löngu nýjar hugmyndir,
sem miða að þvi að á hverjum
stað verði nokkurs konar um-
boðsmennsem geti framkvæmt
smæstu þætti dómsvaldsins.
Þar kom meðal annars fram sú
hugmynd um að vikka valdsvið
hreppstjóra og gera starf þeirra
viðameira, auk þess sem talið
var nauðsynlegt að amk. tveir
umboðsmenn sætu til dæmis á
Þórshöfn og Raufarhöfn, enda
er aðstaða staðarbúa I lágmarki
varðandi opinbera þjónustu.
að beina þeirri áskorun til þeirra,
sem eiga hunda hér i borginni, að
þeir ráðstafi hundum sinum án
tafar burt úr borginni, og er þar
með að undirstrika það, sem öll-
um má ljóst vera, að það er ekki
heimilt að hafa hunda hér i
Reykjavikurborg.
Þannig komst Sigurjón
Sigurðsson lögreglustjóri að orði,
þegar Timinn hafði samband við
hann vegna auglýsingar frá lög-
reglustjóraembætdnu sem birtist
i blaðinu i dag. Við inntum lög-
reglustjóra eftir þvi, hvort þetta
þýddi herferð til útrýmingar
hundum.
— Ég vil á þessu stigi alls ekki
segja neitt um málið annað en
það, að ég treysti því, að menn
geri sér ljóst, hvað landslög segja
um þetta mál, og það er á það,
sem við viljum benda með aug-
lýsingu þessari, svaraði Sigurjón
Sigurðsson lögreglustjóri.