Fréttablaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
MIÐASALA HEFST Miðasala á við-
burði Listahátíðar í Reykjavík hefst í Banka-
stræti 2 á hádegi. Meðal viðburða eru tón-
leikar Anne Sofie von Otter og sýning
franska sirkussins Cirque.
DAGURINN Í DAG
1. apríl 2005 – 86. tölublað – 5. árgangur
RÚSSARNIR HÆTTA Framkvæmdir við
rússneska sendiráðið hafa nú verið stöðvað-
ar og beðið er eftir niðurstöðu borgaryfir-
valda varðandi byggingarleyfi. Framkvæmdir
frá því í desember, er borgaryfirvöld báðu
Rússa um að hætta allri vinnu, voru vegna
misskilnings í Moskvu. Sjá síðu 2
TUGIR KVARTA Í HVERRI VIKU
Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Hús-
eigendafélagsins, telur að hlutfallstengd
þóknun fasteignasala sé tímaskekkja. Sann-
gjarnt sé að taka til dæmis upp tímagjald
eins og tíðkast víða. Sjá síðu 6
MUGABE TRYGGIR SÉR SIGUR
Þingkosningar fóru fram í Zimbabwe í gær.
Engin hætta er talin á öðru en að flokkur
Roberts Mugabe vinni stórsigur enda leikur
lítill vafi á að forsetinn hagræði úrslitunum
sér í vil. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
158.000
126.000
*Landið allt skv. fjölmiðlakönnun Gallups, feb. 2005.
Fjöldi lesenda
á föstudögum*
VEÐRIÐ Í DAG
HVERGI MJÖG SÓLRÍKT Rigning eða
slydda austan til og stöku él á annesjum
norðan til. Gæti rignt í borginni síðdegis.
Hiti 0-5 stig að deginum. Sjá síðu 4
Jóhannes Páll II páfi:
Veitt síðasta
sakramentið
PÁFAGARÐUR Prestur veitti
Jóhannesi Páli II páfa síðasta
sakramentið í gærkvöldi. Heilsu
páfa hefur hrakað mjög að undan-
förnu og var prestur kallaður til
páfa til að veita honum sakra-
mentið sem kaþólikkum er veitt
þegar þeir liggja banaleguna eða
glíma við erfið veikindi.
Páfi þjáist af þvagfærasýkingu
og háum hita. Fyrir skömmu stað-
festi páfagarður að hann fengi
næringu í gegnum slöngu þar sem
hann gæti ekki nærst með eðli-
legum hætti. Heilsa páfa hefur
verið mjög bág síðustu tvo mán-
uði og hefur hann tvívegis verið
lagður inn á sjúkrahús í Róm, í
fjórar vikur samanlagt. - bþg
SKIKKJA FYRIR SLOPP
á
fe
rð
in
n
í v
or
ið
matur listir tíðarandi krossgáta heilsa stjörnuspá tónlist
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
1.
ap
ríl
– 7
. a
pr
íl
»
Tangó
Ástarsaga
aldarinnar
» Kristín Ingólfsdóttir verðandi háskólarektor
Skikkja fyrir
slopp
Kristín Ingólfsdóttir:
● 1. apríl ● tangó ▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
FISCHER-MÁLIÐ „Íslendingar þurfa
ekki að að hafa áhyggjur af því að
Bobby Fischer verði fjárhagsleg
byrði á landsmönnum meðan
hann dvelur hérlends.“ Þetta segir
Sæmundur Pálsson, góðvinur
meistarans, og segir að hann eigi
enn megnið af því verðlaunafé
sem hann fékk fyrir einvígið við
Spasskí í Sveti Stefan í Júgóslavíu
1992, en það nam rúmum þremur
milljónum dollara á sínum tíma.
„Fischer átti líka einhverja
fjármuni í Bandaríkjunum frá
fyrri tíð sem hann flutti til Sviss
áður en bandarísk yfirvöld komu
höndum yfir þá,“ segir Sæmundur.
Eitthvað af þessu fé hefur
Fischer notað til að framfleyta sér
undanfarin 13 ár en vextir hafa
séð til þess að höfuðstóllinn hefur
haldist að mestu óbreyttur að
sögn Sæmundar. Má áætla að sjóð-
urinn nemi um 200 milljónum
króna, þannig að Fischer skipar
sér á bekk með sterkefnuðum Ís-
lendingum. Hann gæti þó verið
mun efnaðri ef staða dollarans
væri ekki jafn veik og hún er.
Miðað við stöðu dollarans um mitt
ár 2001 þegar staða hans var hvað
sterkust gagnvart krónunni, ætti
Fischer um 385 milljónir króna,
eða nálægt því tvöfalda þá upp-
hæð sem sjóður hans nemur nú.
Að sögn sérfróðra manna í
flutningi fjármuna milli landa er
ekkert því til fyrirstöðu að
Fischer flytji fé sitt til Íslands, og
því fylgir ekki mikill kostnaður.
Hins vegar er honum skylt sem ís-
lenskum ríkisborgara að telja
þetta fé fram til skatts hvort sem
það er geymt í Sviss eða hér á
landi, þar sem tvísköttunarsamn-
ingar eru í gildi milli Íslands og
Sviss. Og það þýðir að hann
verður að greiða tíu prósent í fjár-
magnstekjuskatt af vöxtum og
verðbótum en þar getur verið um
þó nokkra fjármuni að ræða.
Miðað við ávöxtunarkröfu lífeyr-
issjóðanna sem er 3,5 prósent
ættu vextir af 200 milljónum að
vera sjö milljónir á ári og fjár-
magnstekjuskattur af þeirri upp-
hæð því 700 þúsund krónur.
Það gæti því gerst eftir allt að
Fischer myndi greiða gott betur
til íslensks samfélags en það
lætur af hendi rakna til hans. - sþs
Fischer á um 200
milljónir króna í Sviss
Bobby Fischer skipar sér á bekk meðal sterkefnaðra Íslendinga. Hann verður að greiða skatta af
vöxtum og verðbótum hér, hvort sem hann ávaxtar fé sitt á Íslandi eða í Sviss þar sem það er nú.
Greiðslur hans til ríkissjóðs gætu numið allt að 700 þúsund krónum á ári.
RÍKISÚTVARPIÐ „Hvorki fréttamenn
né aðrir starfsmenn Ríkisútvarps-
ins líta á Auðun Georg Ólafsson
sem fréttastjóra, þótt hann komi
hér til starfa,“ sagði Broddi
Broddason fréttamaður síðdegis í
gær. Aðrir fréttamenn RÚV sem
Fréttablaðið ræddi við tóku í sama
streng. Þeir sögðu einum rómi að
þeir myndu ekki „lúta boðum“
Auðuns Georgs, enda teldu starfs-
menn RÚV að hann væri „ umboðs-
laus“ til þess að gegna starfi
fréttastjóra eins og nær 200 manna
starfsmannafundur RÚV sam-
þykkti í gær.
Auðun Georg átti fund með
Markúsi Erni Antonssyni útvarps-
stjóra í gær. Að því búni gekk hann
inn á fréttastofu Útvarps og
kastaði kveðju á þá sem þar voru
staddir. Hann stóð stutt við en
hvarf síðan á braut með þeim
orðum að hann myndi mæta í dag.
Ekki var búið að ganga frá ráðn-
ingasamningi hins nýja frétta-
stjóra síðdegis í gær.
„Við munum gera honum grein
fyrir stöðu mála,“ sagði Broddi,
spurður í gær um hvernig frétta-
menn Útvarps hyggðust taka á
móti nýja fréttastjóranum.
G.Pétur Matthíasson frétta-
maður sagði eftir starfsmanna-
fundinn í gær, að sú órofa sam-
staða sem væri á RÚV hefði að
miklu leyti myndast í kjölfar um-
mæla útvarpsstjóra í Kastljósþætti
þar sem ráðningin umdeilda var til
umræðu, því þar hefði hann ekki
bara talað „illa um fréttamenn RÚV,
heldur alla starfsmenn.“ -jss / Sjá síðu 4
Fréttamenn Útvarpsins harðna í afstöðu sinni:
Lúta ekki boðum nýs fréttastjóra
Á FRÉTTASTOFU ÚTVARPS Nýráðinn fréttastjóri Útvarps, Auðun Georg Ólafsson, mætti óvænt á fréttastofuna í gær. Hann kastaði
kveðju á þá sem þar voru, og sést á myndinni heilsa Brodda Broddasyni fréttamanni. Hann kvaðst myndu mæta í dag og hvarf á braut
við svo búið. Fréttamenn sögðust í gær ekki ætla að hlýða fyrirmælum hans, enda telji þeir hann umboðslausan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
● matur ● tilboð
Skemmtilegast
að nýta afganga
Jóhannes Ásbjörnsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
FISCHER OG SÆMUNDUR
Fischer er ekki á flæðiskeri staddur fjár-
hagslega en verður að öllum líkindum að
greiða fjármagnstekjuskatt hérlendis.
Skattgreiðslur gætu hlaupið á hundruðum
þúsunda á ári.