Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 2
2 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Bræðsla HB Granda hugsanlega flutt til Vopnafjarðar:
Hillir undir lok síldar- og
loðnubræðslu í Reykjavík
FISKVINNSLA Í athugun er hjá HB
Granda að flytja síldar- og loðnu-
bræðslu félagsins úr Örfirisey í
Reykjavík til Vopnafjarðar. HB
Grandi starfrækir nú þegar fiski-
mjölsverksmiðju á Vopnafirði
eftir sameiningu félagsins við
Tanga fyrr á árinu.
Verði af flutningi verksmiðj-
unnar lýkur síldar- og loðnu-
bræðslu í Reykjavík en slík starf-
semi hefur verið rekin í höfuð-
borginni um áratuga skeið.
Verksmiðjan í Örfirisey var
reist í kringum 1950 en bræðsla
hófst ekki fyrr en 1965. Fyrir
hafði fiskimjölsbræðslan Klettur
verið starfrækt í Reykjavík en
þar var bræðslu hætt 1993. Mörg-
um er reykháfur Klettsverksmiðj-
unnar við Sundahöfn enn í fersku
minni en hann var felldur fyrir
nokkrum árum.
Lykt, sem sumir kalla fýlu,
lagði í eina tíð af bræðslunni í
Örfirisey og bárust fyrirtækinu
kvartanir frá borgurum auk þess
sem fullyrt var að hún fældi ferða-
menn frá Reykjavík. Aukinn
mengunarvarnabúnaður hefur
snardregið úr þessari óáran.
HB Grandi rekur líka beina-
bræðslu í Örfyrisey en ekki eru
uppi áform um að flytja hana.
- bþs
Borgarstjórn kynnir þriggja ára fjármálaáætlun:
Skuldir lækka um rúman milljarð
BORGARMÁL „Þessu teljum við
okkur geta náð á næstu þremur
árum þrátt fyrir nýjungar á borð
við gjaldfrjálsan leikskóla,“ segir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri en borgaryfirvöld
kynntu í gær þriggja ára áætlun
um rekstur, fjárfestingar og fjár-
mál borgarinnar.
Þar kemur fram að þrátt fyrir
kostnaðarauka vegna ýmissa
málaflokka er gert ráð fyrir að
skuldir borgarsjóðs lækki um
tæplega 1.3 milljarð króna til
ársins 2009 og munu þá skuldir
þannig lækka um níu prósent frá
því sem nú er og verða um 166
þúsund krónur á hvern íbúa.
Í áætluninni er gert ráð fyrir
þeirri gjaldfrjálsu leikskóladvöl
sem borgarstjóri kynnti nýlega en
talið er að kostnaðarauki vegna
þess liðar á næstu þremur árum
verði um 900 milljónir króna.
Kostnaðarauki vegna nýgerðra
kjarasamninga við kennara er
áætlaður um 1.6 milljarðar.
- aöe
Framkvæmdir stöðvaðar
við rússneska sendiráðið
Framkvæmdir við rússneska sendiráðið hafa nú verið stöðvaðar og beðið er eftir niðurstöðu borgaryfir-
valda varðandi byggingarleyfi. Framkvæmdir frá því í desember, er borgaryfirvöld báðu Rússa um að
hætta allri vinnu, voru vegna misskilnings í Moskvu.
SENDIRÁÐ Misskilningur rúss-
neskra ráðamanna í Moskvu olli
því að sex fjögurra metra stál-
stöplar voru reistir á grunni
nýrrar byggingar í bakgarði rúss-
neska sendiráðsins í trássi við
beiðni borgaryfirvalda um að
stöðva allar framkvæmdir á lóð-
inni. Þetta segir Andrei Melnikov,
sendiráðsfulltrúi sendiráðs Rúss-
lands á Íslandi.
Rússneska sendiráðið hóf
byggingu 400 fermetra húsnæðis
sem er sjö metra hátt á lóðinni
fyrir aftan sendiráð Rússlands í
Garðarstræti 33 án þess að sækja
um tilskilin byggingarleyfi hjá
Reykjavíkurborg. Í kjölfar at-
hugasemda frá nágrönnum í des-
ember var sendiráðinu gert að
stöðva byggingarframkvæmdir á
meðan unnið er að deiliskipulagi
fyrir svæðið, svo afgreiða megi
byggingarleyfisumsókn.
Melnikov segir að öllum fram-
kvæmdum hafi verið hætt fyrir
viku. „Yfirmenn í Moskvu héldu
að einhver hluti leyfis hefði feng-
ist hjá borgaryfirvöldum og því
voru þessir stálstöplar reistir.
Um leið og við komumst að því
að svo var ekki var öll vinna
stöðvuð,“ segir Melnikov.
Nágrannar sendiráðsins, sem
ekki vildu láta nafns síns getið,
sögðu Fréttablaðinu að Rússarnir
hefðu unnið sleitulaust á bygging-
arstaðnum allt frá því í septem-
ber og að þeir hafi gert meira
en að reisa stálstöplana frá því í
desember.
Melnikov segir að rússnesk
yfirvöld hafi staðið í þeirri trú að
vandamálið væri fólgið í því
byggingin væri of nálægt lóða-
mörkum. „Borgaryfirvöld óskuðu
eftir því að við færðum bygging-
una inn á lóðina um að minnsta
kosti þrjá metra og að ef svo yrði
gert þyrfti sendiráðið ekki að
ganga í gegnum svo ítarlega mál-
skynningu. Sendiráðið uppfyllti
þessa ósk og færði bygginguna
í planinu um 4,9 metra inn í
lóðina,“ segir Melnikov.
Hann segir að rússneska
sendiráðið vilji fyrir alla muni
eiga góð samskipti við nágranna.
„Við viljum búa í sátt við þá og
eigum von á því að málamiðlunar-
lausn verði fundin,“ segir hann.
Skipulags- og byggingarnefnd
tekur málið til umfjöllunar á mið-
vikudag.
sda@frettabladid.is
jss@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Eiríkur, var kvörtunin send
með flöskuskeyti?
“Það var hugmyndin en við ætlum þó
að klára flöskuna fyrst“
Kvartanir Og fjarskipta vegna reglna Samkeppnis-
stofnunar gagnvart fjarskipta- og fjölmiðlasam-
steypum höfðu ekki borist í gær. Eiríkur Jóhanns-
son er forstjóri Og Vodafone.
SKÚRAR UNDIR BYGGINGAREFNI.
Reistir hafa verið fjölmargir skúrar á bak-
lóð sendiráðsins í Garðastræti 33 og 35.
Borgaryfirvöld hafa fengið þær skýringar
að skúrarnir hýsi byggingarefni.
BAKLÓÐ RÚSSNESKA SENDIRÁÐSINS.
Reistir hafa verið sex fjögurra metra háir stálstöplar á steyptum grunni 400 fermetra húss
í bakgarði rússneska sendiráðsins í Garðastræti 33. Nágrannar eru ekki sáttir við fyrirhug-
aða byggingu og bíða úrskurðar borgaryfirvalda.
Umferðarslys:
Snáði ekur
á systur sína
NOREGUR Betur fór en á horfðist
þegar þriggja ára snáði í Þránd-
heimi tók fjölskyldubílinn trausta-
taki og ók yfir fimm ára gamla
systur sína á þriðjudaginn. Telpan
hlaut aðeins minniháttar áverka,
beinbrot og nokkrar skrámur.
Að sögn Aftenposten voru til-
drög slyssins þau að hnokkinn
steig upp á skógrind og teygði sig
þannig í bíllyklana sem héngu á
vegg.
Því næst settist hann bak við
stýrið á fjölskyldubílnum og setti
í gang. Við ræsinguna kastaðist
bíllinn á systurina þar sem hún
rólaði sér í sakleysi sínu. ■
BRÆÐSLAN Í ÖRFIRISEY
Síldar- og loðnubræðsla í Reykjavík heyrir
að líkindum senn sögunni til.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sjálfstæðisflokkurinn:
Landsfundur
í október
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
heldur landsfund sinn 13. til 16.
október. Fundurinn er sá 36. í sögu
flokksins en síðasti landsfundur var
haldinn í mars 2003.
Landsfundur kýs formann, vara-
formann og miðstjórn flokksins.
Þar er stjórnmálastefna flokksins
jafnframt mörkuð og byggir hún á
vinnu 26 málefnanefnda sem leggja
fram ályktanir til umræðu og af-
greiðslu. - bþg
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
SKULDIR BORGARINNAR LÆKKA
Stefnt er að því í áætlun borgaryfirvalda
fyrir næstu þrjú ár að skuldir borgarsjóðs
lækki um 1.3 milljarða.
KISA Í VANDA
Aflífa þurfti köttinn sem lenti í illa frágenginni
gildru í grjótgarði við Innri-Njarðvík í gær.
Gildra nærri byggð:
Köttur lenti í
minkagildru
REYKJANES Aflífa þurfti kött sem
fannst fastur í fótbogagildru í Innri
Njarðvík. Gildran var fest milli
steina stutt frá mannabyggð þar
sem algengt er að börn séu að leik.
Lögreglan í Keflavík segir ekki
leyfilegt að leggja gildrur svo ná-
lægt mannabyggð og þá skipti ekki
máli hvort rétt sé frá þeim gengið
eður ei. Líklegt er að farið verði yfir
svæðið til að leita að fleiri gildrum.
Ekki er vitað hver kom gildrunni
fyrir en talið líklegt að henni hafi
verið ætlað að veiða mink. Lögregl-
an í Keflavík segir fáa einstaklinga
hafa leyfi til að veiða mink og ólík-
legt sé að um slíka menn sé að ræða.
- sgi
M
YN
D
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R/
H
IL
M
AR
B
R
AG
I