Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 6
6 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Hjálparstarf á Nias-eyju stendur yfir:
Brimbrettalæknar
fyrstir á vettvang
INDÓNESÍA, AP Slæmt veður og
erfiðar samgöngur hamla hjálpar-
starfi á Nias-eyju. Nú er talið að
um fimm hundruð manns hafi
dáið í jarðskjálftanum á sunnu-
daginn.
Hjálparstarf stendur yfir á
Nias-eyju, vestur af Súmötru, en
íbúar þar urðu illa úti í jarðhrær-
ingunum. Einna fyrstir á vettvang
voru læknar í félaginu SurfAid en
þeir höfðu verið á brimbrettum á
nálægum slóðum.
Erfiðlega hefur gengið að koma
hjálpargögnum til bágstaddra
vegna veðurs og erfiðra sam-
gangna en margir vegir skemmd-
ust auk flugvallarins á eyjunni.
Eyjaskeggjar hafa margir látið í
ljós gremju sína yfir seinagang-
inum en í gær var dreifingin farin
að ganga hraðar fyrir sig.
Enn er verið að bjarga fólki
undan braki. Í gærmorgun náðist
þréttán ára gömul stúlka á lífi úr
rústum fjölbýlishúss, 52 klukku-
stundum eftir skjálftann.
Indónesísk stjórnvöld skýrðu
frá því í gær að 279 lík hefðu
fundist og sögðu þau að ólíklegt
væri að fleiri en 500 manns hefðu
farist. ■
Telpa sýnir fádæma hugrekki:
Fann foreldrana
liggjandi í blóði sínu
BANDARÍKIN Fimm ára gömul
stúlka í New Smyrna í Flórída
sýndi fádæma yfirvegun og æðru-
leysi á mánudaginn við kringum-
stæður sem flestir hefðu bugast
undir.
Tia Hernlen vaknaði við byssu-
skot síðastliðinn mánudag, fór
fram og fann mömmu sína og
pabba liggjandi í blóði sínu. Hún
hringdi samstundis í neyðarlínuna.
„Mamma og pabbi...ég held að það
sé byssukúla á gólfinu, það blæðir
úr munninum á pabba og hann
hefur dottið úr rúminu,“ sagði hún
við starfsmann neyðarlínunnar. Því
næst rakti hún málsatvik og að-
stæður á svo skýran og yfirvegað-
an hátt að konan sem hún ræddi við
trúði ekki hversu ung hún væri.
Hægt er að lesa samtal þeirra í
heild sinni á heimasíðu Fox-sjón-
varpsstöðvarinnar.
Þegar lögreglan kom á vettvang
var móðir Tiu dáin og faðir hennar
lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.
Talið er að fíkniefnasali hafi drepið
þau en hann stóð í þeirri trú að for-
eldrar Tiu hefðu sagt lögreglunni
frá iðju hans. Maðurinn stytti sér
aldur á heimili sínu síðar um dag-
inn.
Foreldrar Tiu höfðu óttast árás
af hendi mannsins og því farið
fram á við dómara að öryggi þeirra
yrði tryggt með nálgunarbanni.
Dómarinn taldi ekki ástæðu til að
verða við beiðninni. ■
Tugir kvartana vikulega
Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, telur að hlutfallstengd þókn-
un fasteignasala sé tímaskekkja og telur sanngjarnt að taka til dæmis upp tímagjald. Björn
Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala, neitar að láta hafa nokkuð eftir sér.
FASTEIGNAMARKAÐUR Samkvæmt
lögum eiga fasteignasalar að gera
samninga fyrir fram við kaupend-
ur og seljendur um þá þjónustu
sem þeir inna af hendi. Sigurður
Helgi segir að í þessu sé pottur
brotinn og berist Húseigendafé-
laginu tugir kvartana á viku.
Sigurður Helgi segir að fast-
eignasalar geti „verið háskalegir
á marga lund“. Þeir tali upp fast-
eignaverðið enda séu það hags-
munir þeirra að fasteignaverð
haldist ávallt sem hæst þar sem
sölulaunin séu hlutfallstengd.
„Það er ekkert náttúrulögmál
að þóknun fasteignasala þurfi að
miðast við kaupverð eigna,“ segir
hann og telur ekkert til fyrirstöðu
að miða við þann tíma og fyrir-
höfn sem salan tekur og taka til
dæmis upp tímagjald eins og
tíðkast hjá mörgum stéttum.
„Hagsmunatengdar gjaldskrár
hafa verið á undanhaldi hjá flest-
um sjálfstæðum sérfræðistétt-
um,“ segir hann.
Verðskrá fasteignasala er mis-
jöfn. Á nokkrum fasteignasölum
er föst gjaldskrá upp á rúmar 124
þúsund og allt upp í 199 þúsund
krónur með virðisaukaskatti og
skiptir þá ekki máli hversu stór
eignin er. Á einni fasteignasölu er
þóknunin eitt prósent en annars
taka fasteignasalar 1,5-3,0 pró-
sent af sölu eigna. Virðisauka-
skattur bætist svo við.
Misjafnt er hvað er innifalið í
þóknun fasteignasala og hvort
greiða þurfi umsýslugjald. Í
fæstum tilfellum virðist til
yfirlit yfir það hvaða þjónusta er
innifalin í gjaldinu. Þinglýsing-
argjald er aldrei innifalið, aðeins
snúningar með samninga til
þinglýsingar.
Hraði, spenna og óðagot ein-
kennir oft fasteignaviðskipti og
það telur Sigurður Helgi að dragi
á eftir sér ýmsa vonda dilka.
„Menn flýta sér um of undir
pressu oftar en ekki frá fasteigna-
sölum og gá ekki að sér. Þess
vegna er hrapað til samninga
þrátt fyrir lausa enda. Þetta hefur
í för með sér eftirmál með tilheyr-
andi kostnaði og leiðindum,“ segir
hann.
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, neit-
ar að láta nokkuð eftir sér hafa.
ghs@frettabladid.is
Fischer-nefndin:
Leituðu til
sveitarfélaga
FJÁRÖFLUN Lítið safnaðist í fjáröfl-
unarátaki Fischer-nefndarinnar
fyrir Japansferð þeirra í mars,
segir Einar H. Guðmundsson
sem sá um fjáröflunina fyrir
nefndina. Töluverðar skuldir eru
útistandandi eftir Japansferð
nefndarinnar en ekki fékkst upp-
gefið hversu miklar þær eru.
Erindi voru send til nokkurra
sveitarfélaga og þar á meðal
Reykjavíkurborgar en alls stað-
ar var dræmt tekið í beiðnina.
Einar segir að þeir sem styrktu
nefndina hafi aðallega verið
skákáhugamenn. - sgi
Tölvunám eldri borgara
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Grunnur
30 kennslustunda byrjendanámskeið. Engin undirstaða nauð-
synleg, hæg yfirferð með þolinmóðum kennurum. Aldurs-
takmark 60 ára og eldri. Á námskeiðinu er markmiðið að
þátttakendur verði færir að nota tölvuna til að skrifa texta,
setja hann snyrtilega upp og prenta, fara á internetið, taka á
móti og senda tölvupóst. Þátttakendur læra að koma sér upp
ókeypis tölvupóstfangi.
Kennsla hefst 6. apríl
og lýkur 27. apríl.
Kennt er mánudaga
og miðvikudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,-
Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa
byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
• Upprifjun
• Æfingar í Word ritvinnslu
• Leit og vinnsla á internetinu og meðferð tölvupósts.
• Excel kynning
Kennsla hefst 7. apríl og lýkur 28. apríl.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald II
30 kennslustunda námskeið ætlað þeim sem lokið hafa fyrra
framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilegan grunn og
vilja enn meiri þekkingu og þjálfun. Byrjað er á upprifjun og
svo er haldið áfram og kafað dýpra með framhaldsæfingum
í ritvinnslu, á netinu og tölvupóstinum ásamt Excel. Einnig er
fjallað um stafrænar myndavélar og meðferð ljósmynda í
heimilistölvunni. Ýmislegt fleira skv. óskum þátttakenda.
Kennsla hefst 7. apríl og lýkur 28. apríl. Kennt er mánudaga
og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 17.000,-
■ NOREGUR
Ertu búin(n) að skila skatt-
skýrslunni?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú með yfirdrátt í bankan-
um?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
38%
62%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
SJÓRÆNINGJAR RÁÐAST Á
NORÐMENN Sjö norsk skip urðu
fyrir árásum sjóræningja á
síðasta ári. Flest sjóránin voru
framin í Austur-Indíum en
Gíneuflói suður af Nígeríu þykir
einnig varasamur. Að sögn
Verdens Gang víluðu ekki litlir
flokkar ræningja fyrir sér að
ráðast á stór flutningaskip.
MATVÖRUKAUPMENN ÁSAKAÐIR
UM MÚTUÞÆGNI Matvöruverð
er óvíða hærra í heiminum en í
Noregi. Nú er hafin rannsókn á
viðskiptaháttum á matvöru-
markaðnum. Að sögn Dagens
Næringsliv eru mörg dæmi um
að kaupmenn láti birgjana
greiða sér stórfé fyrir að stilla
vörum þeirra upp á áberandi
hátt en slíkt er ólöglegt.
LÍTT MEIDD EN ÁHYGGJUFULL
Yasmina, íbúi í Gunung Sitoli, var þungt hugsi þegar hún hélt á Ramadhan, syni sínum, í
gær. Þótt Ramadhan hafi ekki slasast alvarlega þá var systir hans ekki eins heppin, því
taka varð af henni annan handlegginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Kærður fyrir nauðgun:
Saklaus en
engar bætur
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur sýknaði í gær konu af
skaðabótakröfu manns sem fór
fram á sjö milljóna króna bætur
fyrir ærumissi og missi atvinnu
og íbúðar eftir að konan sakaði
hann um nauðgun.
Starfaði maðurinn sem hús-
vörður á elliheimili að Sléttu-
vegi en var gert að segja upp
eða vera rekinn ella eftir kæru
konunar. Við rannsókn lögreglu
kom ekkert í ljós sem sannaði
sekt mannsins og fór hann því
fram á bætur. Dómurinn komst
að því að þar sem kæran hefði
farið eftir reglubundnum leið-
um hefði verið um frumhlaup
hjá hússtjórn að ræða við upp-
sögn mannsins og konan því
sýknuð. ■
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI
Verðskrá fasteignasala miðast oftast við hlutfall af íbúðaverði en nú eru nokkrar fasteignasölur farnar að hafa fasta söluþóknun.
SIGURÐUR HELGI
GUÐJÓNSSON
„Það er ekkert nátt-
úrulögmál að þókn-
un fasteignasala
þurfi að miðast við
kaupverð eigna.“
BJÖRN ÞORRI
VIKTORSSON
Formaður Félags
fasteignasala, neitar
að láta hafa nokk-
uð eftir sér um
þetta mál.