Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 10

Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 10
10 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Stefna á Wembley að ári „Stuðmenn höfðu einhvern tíma heyrt í okkur og hrifist af. Þeir báðu okkur alla vega að hita upp fyrir sig og við slógum til,“ segir Eiríkur G. Stephensen, skóla- stjóri í Hrafnagilsskóla og annar helmingur dúettsins Hundur í óskilum, um það hvernig það at- vikaðist að þeir voru fengnir til að hita upp fyrir Stuðmenn í Royal Albert Hall. Hinn helmingur dúettsins er Hjörleifur Hjartarson, kennari við Húsabakkaskóla í Svarfaðar- dal. Saman hafa þeir Eiríkur skemmt sér og öðrum í um áratug og eru þekktir fyrir nýstárlegar útfærslur á þekktum slögurum. Hróður Hunds í óskilum hefur borist víða og þetta var ekki í fyrsta skipti sem þeir kumpánar troða upp í útlöndum. „Við höfum spilað á þorrablótum Íslendinga í Bandaríkjunum, Danmörku og Noregi en þetta hlýtur að teljast okkar stærsta gigg hingað til,“ segir Eiríkur. Hjörleifur tekur undir það. „Það var mjög skemmtilegt að spila þarna en nú er spurning hvað tekur við. Við erum að spá í að taka stefnuna á Wembley að ári, það held ég að sé rökrétt framhald.“ Þrátt fyrir kokhreystina eru Eiríkur og Hjörleifur auðmjúkir menn og breyttu nafni dúettsins í virðingarskyni við bakhjarla tón- leikana. „Við héldum aðalfund í flugvélinni á leiðinni út og nú heitum við Hundur í óskilum Group. Það má skilja það á ýmsan veg.“ Þótt útlönd kalli þurfa Íslend- ingar ekki að óttast að missa Hund í óskilum af landinu alveg strax því þeir eru með margt á prjónunum. Framundan er viku- langur túr í grunnskóla á Vest- fjörðum. „Við reynum samt lítið að trana okkur fram,“ segir Eirík- ur. „Við yrðum þreyttir á því til lengdar og gerum þetta svo lengi sem við höfum gaman af.“ Hjör- leifur bætir við að þeir félagarnir eigi sér þann draum að taka þátt í Eurovision. „Við erum löngu bún- ir að æfa atriði og hanna búninga, sem við erum reyndar byrjaðir að vaxa upp úr. En það er aldrei of seint. Danir sendu miðaldra kenn- ara í Eurovison um árið og sáu ekki eftir því.“ bergsteinn@frettabladid.is Frábærferðaleikur! Láttu mömmu vita! Ef þú kaupir Séð og Heyrt næstu vikurnar finnur þú lukkunúmer í miðopnu sem er bara í blaðinu þínu. Sendu okkur lukkunúmerið þitt með SMS og þú átt möguleika á því að komast frítt í glæsilega sólarlandaferð með Sumarferðum með alla fjölskylduna. Ekki nóg með það heldur geturðu líka fengið ego kort með 250 þúsund króna inneign og við færum þér vandað ferðatösku- sett frá Samsonite undir farangurinn. SÓLSKINSBROS SÉÐ OG HEYRT NR. 12 - 2005 • Verð kr. 599 Vertu m eð frá byrj un! MIKLU STÆRRA BLAÐ - SAMA VERÐ Svava og B olli í Sautjá n slíta samvis tir: RISAFERÐAVINNINGAR + 250.000 KR. 24.mars- 6.apríl Besta d agskrái n! Marín Manda: ÁSTFANGIN OG ÓLÉTT! Helga Hilmars og B rynja: Á LAUSU Í LONDON Gísli Marteinn: 9 7 7 1 0 2 5 9 5 6 0 0 9 Í STUÐI MEÐ GUÐI! Gleðilega páska SEXÍ Í KJÓL! Bis kupinn glaður: SKILJA Í GÓÐU ! 01 S&H FORS Í‹A1005 TBL -2 21.3.20 05 16:13 P age 2 GERIR LÍFIÐ SKEMMTILEGRA! ÍSLENSKT RÍKISFANGSBRÉF kostar 1.350 krónur HVAÐ KOSTAR ÞAÐ? „Ég byrjaði í MA-námi í félagsfræði með áherslu á kynjafræði eftir jól og það er nóg að gera í því,“ segir Katrín Anna Guðmundsdóttir, tals- kona Femínistafélagsins og stúdent. Hún kveðst hafa haft það gott um páskana, sem hún varði að mestu leyti við smíðar, en Katrín og mað- urinn hennar eru að reisa sér 200 fermetra hús í Grafarholti. „Við skul- um segja að ég sé slarkfær smiður,“ segir hún og hlær. „Ég er mest í því að mála, pússa og spasla en er al- veg ágæt með hamar og nagla líka.“ Katrín býst við að ferðast innan- lands í sumar. „Ég og maðurinn minn höfum bæði ferðast mikið er- lendis, en þegar við keyrðum hring- veginn fyrir þremur árum komumst við að því að það eru alltof margir staðir á landinu sem við eigum eftir að skoða.“ Ferðin hefst á sumarbústaðarferð í Hrísey en skötuhjúin ætla að sjá hvernig landið liggur í framhaldinu. Grasrótarstarf Femínistafélags- ins er líka í fullum gangi. „Við erum að skipuleggja verkefni sem er beint gegn klámvæð- ingu,“ segir Katrín Anna. „Hinn 5. apríl ætlum við í félaginu að hittast, en það gerum við mán- aðarlega, og rifja upp Peking- ráðstefnuna í tilefni tíu ára af- mælis hennar.“ Svo er aðal- fundur Femínistafélagsins á næstu grösum en Katrín Anna segir óráðið hvort hún gefi kost á sér áfram sem talskona félagsins. Málar, pússar og spaslar HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KATRÍN ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR „Verður maður ekki að hafa smá áhyggjur þegar maður heyrir af svona faraldri út í heimi, en Ísland er nokkuð einangrað land og því kannski minni líkur en ella að þetta berist hingað,“ segir Sigurður Sveinsson handbolta- þjálfari aðspurður hvort hann óttist fuglaflensufaraldur. Fuglaflensa hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið og telur Sigurður að ekki megi sofa á verðinum. „Það hlýtur að koma að því fyrr eða síðar að það geysi skæð farsótt um heiminn. Það er orðið langt síðan það gerðist síðast. Það er kannski rétt að yfirvöld séu á varðbergi þegar fólk kemur hingað frá löndum þar sem flensan hefur greinst, en það er ekki ástæða til stórtækra að- gerða.“ Hann kveðst þó ekki svo líf- hræddur að hann byrji að ganga með grímu fyrir vitum sér á almannafæri. Sjálfur er Sigurður heilsuhraustur mað- ur og tekur ekki oft sótt að eigin sögn. SIGURÐUR SVEINSSON Á varðbergi ÚTBREIÐSLA FUGLAFLENSU SJÓNARHÓLL Anna Linda Bjarnadóttir héraðsdómslögmaður: Býður sig fram í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins Anna Linda Bjarnadóttir héraðs- dómslögmaður gefur kost á sér til setu í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðs- ins. Væri það vart í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að mótfram- boð gegn sitjandi stjórnarmönnum í lífeyrissjóðum eru fátíð og sérstak- lega er sjaldgæft að konur bjóði sig fram til slíkra starfa. Hópar kvenna hafa þó lýst yfir vilja til að taka sæti í stjórnum fyrirtækja og lífeyris- sjóða að undanförnu – án mikils ár- angurs. Ein kona, Ásdís Eva Hannesdótt- ir, situr fyrir í stjórninni og gætu þær því orðið tvær að afloknum árs- fundi sjóðsins sem haldinn er á Nor- dica hóteli síðdegis á mánudag. Samkvæmt nýlegri athugun sitja tvær konur á móti hverjum átta körlum í stjórnum lífeyrissjóðanna. „Mér finnst vanta nýtt blóð í stjórnina, fulltrúa yngri sjóð- félaga,“ segir Anna Linda sem finnst núverandi stjórn ekki endur- spegla breidd sjóðfélaganna sem eru rúmlega 30 þúsund. Anna Linda hefur rekið eigin lög- mannsstofu í tæp fjögur ár og býr meðal annars að framhaldsnámi í skattarétti. - bþs ANNA LINDA BJARNADÓTTIR Vill yngja upp í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins. FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L Stuðmenn voru í essinu sínu á tónleikunum í Royal Albert Hall á skír- dag. Þeir voru hins vegar ekki eina íslenska hljóm- sveitin sem þar lék um kvöldið því Hundur í óskilum hitaði upp. HUNDUR Í ÓSKILUM Eiríki G. Stephensen og Hjörleifi Stephensen er margt til lista lagt eins og sjá má á þessari mynd en því miður ekki heyra. Í NÁVIST MIKILMENNA Elísabetu Eng- landsdrottningu líkaði návist Eiríks ekki sérlega illa.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.