Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 20

Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 20
Of sölt Ef súpan eða sósan er of sölt er hægt að leysa það vandamál með hráum kartöflum. Skerðu hráar kartöflur í bita og settu út í pottinn og þær munu sjúga í sig saltið. Veiddu þær svo upp úr og hentu.[ ] Sími 533 1020 Er veisla í vændum? Reiknar þú með okkur... Skeifunni 11d Stórverslun en líka hverfisbúð Fanney Kim Du hefur verið verslunarstjóri í eitt og hálft ár en unnið í Nóatúni í tæp tuttugu ár. Um miðjan desember varð verslunin Nóatún við Hringbraut 121 eldi að bráð. Mikið tjón varð af völdum eldsins og innanstokksmunir brunnu til kaldra kola. Í vikunni fyrir páska opnaði nýtt og betra Nóatún eftir endurbætur sem stóðu mánuðum saman. „Við erum búin að breyta öllu og hér er allt alveg nýtt og fínt. Skipulagið hefur líka breyst. Við vorum með opnunartilboð þegar verslunin opnaði og það var rosalega mikið að gera. Fólk hefur tekið afskap- lega vel á móti okkur,“ segir Fanney Kim Du, versl- unarstjóri Nóatúns-verslunarinnar. Fólkið í nágrenni verslunarinnar hefur greinilega saknað Nóatúnsins síns en Fanney saknaði líka við- skiptavinanna. „Þetta er stór verslun en samt hverf- isbúð. Ég kannast við flesta sem versla hér og það er voðalega gott að vera komin aftur til starfa,“ segir Fanney en hún hefur unnið í Nóatúni í tæplega tutt- ugu ár. „Ég byrjaði þegar ég var þrettán ára en ég hef reyndar bara verið verslunarstjóri í eitt og hálft ár. Fyrir það var ég til dæmis aðstoðarverslunarstjóri og innkaupastjóri. Mér finnst mjög gaman að vera ekki að gera alltaf það sama. Ég hef gert ýmislegt innan verslunarinnar og það er gott að hafa fjöl- breytni í starfinu.“ „Við höfum aukið úrval af grænmeti og kælivöru þannig að nú bjóðum við upp á meira magn af fersk- um vörum. Síðan er bakarí í búðinni þar sem tveir starfsmenn vinna við bakstur og afgreiðslu – en áður þurfti fólk að hjálpa sér sjálft. Kjötborðið er á sama stað en er nú orðið stærra og flottara – eins og öll búðin. Það er voða gaman að vinna hér og allir ánægðir að vera komnir aftur,“ segir Fanney sem hlær dátt þegar blaðamaður spyr hverrar þjóðar hún er. „Það má segja að ég sé 75 prósent Kínverji en ég fæddist í Víetnam. Ég fylgdi með foreldrum mínum til Íslands og fékk ekki að ráða neinu,“ segir Fanney glöð í bragði og að vonum ánægð með hið nýja og endurbætta Nóatún. lilja@frettabladid.is Grænmetisborðið er orðið ansi vígalegt í nýju versluninni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Réttir kvöldsins Fordrykkur í boði hússins M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja rétta máltíð Humarsúpa kr. 850 m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði Aðalréttir Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890 m/ hvítvínssósu , grænmeti og bakaðri kartöflu Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890 m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990 m/chateaubriandsósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Eftirréttur Súkkulaðifrauð kr. 690 Borðapantanir í síma 562 1988 Veitingahúsið Madonna Rauðarárstíg 27 www.madonna.is Smoothies 100% ávöxtur engin aukaefni enginn viðbættur sykur arka

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.