Fréttablaðið - 01.04.2005, Qupperneq 21
Smáflöskur eru hentugur kostur fyrir þá sem vilja drekka eitt
og eitt rauðvínsglas en ekki opna heila flösku auk þess að
vera góður kostur í móttökum. Nú fæst hið vinsæla Santa Rita
vín frá Chile í hentugri öskju með fjórum smáflöskum. Vín
fyrirtækisins þykja afar hagstæð miðað við gæði og var Santa
Rita m.a. útnefnt „hagstæðasti vínframleiðandinn“ í tímaritinu
Wine & Spirits árið 2002.
Santa Rita 120 vínlínan hefur sögulega tilvísun í sjálfstæðis-
baráttu landsins. Snemma á 19. öld, er landsmenn reyndu að
komast undan ofríki spænsku krúnunnar, földu 120 hermenn
uppreisnarmanna sig í kjöllurum víngerðarinnar og herjuðu
þaðan á hermenn Spánarkonungs. Voru hermennirnir 120
undir stjórn hershöfðingjans Bernardo OíHiggins, sem varð
einn af leiðtogum landsins er það hlaut sjálfstæði. Santa Rita
120 Cabernet Sauvignon er frísklegt og ávaxtaríkt vín sem
ræður við flestan mat.
Verð í Vínbúðum 1.400 kr. fyrir
fjórar smáflöskur í hentugri öskju.
3FÖSTUDAGUR 1. apríl 2005
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR
FLJÓTLEGAN MAT Á FÖSTUDEGI
Lax með spínati, kókós og sætri kartöflu
Það segir sig sjálft að réttur eins og þessi, sem samsettur er úr hrá-
efnunum sem hvert fyrir sig er ómótstæðilegt sælgæti, getur ekki
orðið annað en frábær. Samt sem áður er það galdur sósunnar sem
gerir útslagið. Hárfínt jafnvægi af sterku, súru og sætu og bragðlauk-
arnir lifna við!
Smyrjið botninn á ofnföstu fati með ólífuolíu og setjið síðan allt
spínatið í fatið. Raðið laxasneiðunum ofan á spínatið. Saltið og piprið.
Flysjið sætu kartöfluna og skerið hana í strimla og dreifið þeim jafnt
yfir réttinn. Blandið saman í sér skál: kókósmjólk, karrímauki, fiski-
sósu, límónusafa og pálmasykri. Hrærið vel í þar til karrí og sykur
hafa leyst upp. Hellið sósunni yfir réttinn og bakið í 200 gráðu ofni í
25 til 30 mínútur. Berið fram með soðnum hrísgrjónum og/eða góðu
salati. ■
4 laxasneiðar
1 sæt kartafla
1/2 poki ferskt spínat
1/2 dós kókósmjólk
1 tsk. rautt karrímauk
1 msk. fiskisósa
safi úr 1/2 límónu
1 tsk. pálmasykur
salt og pipar
ólífuolía
SANTA RITA: Fjórar smáflöskur í öskju
EVERTON: Rauðvínið,
ekki fótboltaliðið!
Everton er ekki bara fótboltalið frá Liverpoolborg á
Englandi. Nú fæst í Vínbúðunum vín frá ástralska vín-
framleiðandanum Brown Brothers sem heitir Everton.
Brown Brothers er fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt
vín í Viktoríu-fylki í Ástralíu síðan á ofanverðri 19. öld og
hefur getið sér gott orð fyrir fyrirtaks vín. Hérlendis hafa
verið til sölu fjórar tegundir víns frá fjölskyldunni og
heita þau eftir þrúgunum sem notaðar eru: cabernet
sauvignon, merlot og shiraz auk áðurnefnds víns,
Everton, en það er blanda úr þrúgunum cabernet
sauvigon og malbec. Vínið þykir einkar ljúft og falla vel
að smekk almennra neytenda.
Verð í Vínbúðum 1.190 kr.
Kjúklingabringur
Fersk salvíublöð (helst stór )
Parmesanostur
Hráskinka
Gróft salt ( t.d. Maldon )
Íslenskt smjör
Tannstönglar
Hvítvín
Aðferð
Hver bringa er sneidd í um fjóra bita.
Parmesanosturinn er skorinn í sneiðar og
þær lagðar eftir endilöngum bringunum.
Hráskinkan er lögð þar ofan á og svo er
salvíublað sett ofan á skinkuna og þetta
síðan fest saman með tannstöngli.
Pannan er hituð mjög mikið og smjör og
gróft salt sett á pönnuna. Bringurnar
steiktar í 3-4 mínútur á hvorri hlið, fyrst á
hliðinni með ostinum til að hún lokist.
Sósa
Eftir að bringurnar hafa verið steiktar er
töluvert af gumsi á pönnunni, smjör og
salt og tilheyrandi. Þá er smá skvettu af
hvítvíni bætt á pönnuna, hrært aðeins í
og hellt yfir bringurnar á fati.
Salat
Rucola salat, niðursneiddur mozarella-
ostur og cherry-tómatar. Sletta svo yfir
það balsamediki, jómfrúarolíu og
oreganokryddi.
Soðin hrísgrjón (klassi að sletta smá
basilolíu í vatnið þegar grjónin eru soðin)
Salt in bocca að hætti Jóa
JÓHANNES ÁSBJÖRNSSON GEFUR LESENDUM GÓÐA OG GIRNILEGA ÍTALSKA
UPPSKRIFT. SALT IN BOCCA MERKIR „SALT Í MUNNI“.