Fréttablaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2005 23
Djibril Cisse, franski framherjinnhjá Liverpool sem braut svo
hryllilega á sér fótinn í október sl.,
gæti spilað aftur fyrir þá rauð-
klæddu áður en tímabilinu lýkur.
Endurhæfing Cisse
hefur gengið mun
betur en vonir
stóðu til og er
hann nú byrjaður
að æfa með aðal-
liðinu. „Það er
möguleiki á að
hann spili með
okkur áður en mótinu lýkur. Læknar
munu ákveða hvort hann sé tilbú-
inn en það er ljóst að við munum
ekki taka neina áhættu,“ segir Rafa-
el Benitez stjóri Liverpool.
Steve Nash, leikstjórnandi Phoen-ix Suns, náði þrefaldri tvennu er
Suns tók á móti
Philadelphia 76ers í
NBA-körfuboltanum
í fyrrinótt. Nash
skoraði 12 stig, tók
13 fráköst og gaf 12
stoðsendingar og
átti stóran þátt í
stórsigri heima-
manna, 116-87. Allen Iverson var
stigahæstur gestanna með 26 stig, 9
fráköst og 4 stoðsendingar. „Ég
reyndi að leggja hart að mér allan
leikinn,“ sagði Nash sem tók 10 frá-
köst í fyrri hálfleik.
Borðtenniskappinn GuðmundurE. Stephensen féll úr leik í fyrstu
umferð Evrópu-
mótsins í borð-
tennis í gær. Mótið
stendur nú yfir í Ár-
ósum í Danmörku
og tapaði Guð-
mundur fyrir And-
rei Filimon frá
Rúmeníu. Guð-
mundur komst hins vegar alla leið í
16-manna úrslit í tvíliðaleiknum
áður en hann féll úr leik þar. Þá féll
Guðrún Björnsdóttir úr keppni í
fyrstu umferð í einliðaleik kvenna.
Pedro de la Rosa mun leysa afJuan Pablo Montoya í akst-
ursliði McLaren í formúlukappakstr-
inum um helgina.
Montoya er meidd-
ur á öxl og hafa
læknar skipað hon-
um að hvíla sig frá
akstrinum í ein-
hverjar vikur. De la
Rosa hefur verið
helsti þróunaröku-
maður McLaren í tvö ár en hefur
aldrei náð að setja mark sitt al-
mennilega þegar í keppnina sjálfa
er komið en De la Rosa ók áður
fyrir Arrows og Jagúar.
Nú er verið að slá því upp í fjöl-miðlum ytra að Liverpool og
Inter Milan muni
skiptast á leik-
mönnum í sumar.
Þeir sem um ræðir
eru vinstri væng-
mennirnir Harry
Kewell og Kily
Gonzalez, en vitað
er að Rafael Beni-
tez mun vera að missa þolinmæð-
ina gagnvart Kewell og að Kily og
Roberto Mancini stjóri Inter eru
ekki bestu mátar. Einnig lék Kily
undir stjórn Benitez hjá Valencia og
náðu þeir afar vel saman.
Ruud van Nistelrooy segist hafabeðið lengi eftir markinu sem
hann skoraði fyrir
Hollendinga í leik
liðsins gegn Armen-
íu í undankeppni
HM í fyrradag.
Markið var það
fyrsta sem Nistel-
rooy skorar eftir að
hafa meiðst fyrir
rúmum þremur mánuðum. „Marka-
þurrðin var farin að snerta sálina
svo að það var ánægjulegt að brjóta
loksins ísinn,“ viðurkenndi Nistel-
rooy eftir leikinn.
Barcelona varð fyrir áfalli í fyrra-dag þegar Carles Puyol fyrirliði
liðsins haltraði af
velli í leik Spán-
verja og
Serbíu/Svartfjalla-
lands í undan-
keppni HM í fyrra-
dag. Puyol verður
frá í um þrjár vikur
og missir því af
uppgjöri toppliðanna þegar
Barcelona mætir Real Madrid þann
10. apríl.
ÚR SPORTINU
Einar Bollason spáir í einvígi Keflavíkur og Snæfells:
Keflvíkingar eru með
dúndrandi sjálfstraust
KÖRFUBOLTI Lokaúrslit Intersport-
deildarinnar í körfuknattleik
hefjast í kvöld en þá tekur Kefla-
vík á móti Snæfelli. Þrjá sigra
þarf til að hampa Íslandsmeist-
aratitlinum en þessi lið áttust við í
lokaúrslitum síðasta árs þar sem
Keflavík hafði betur, 3-1. Einar
Bollason hallaðist að sigri Kefl-
víkinga í spá sinni í Fréttablaðinu.
Keflvíkingar þykja sigur-
stranglegri í seríunni og fór liðið
gjörsamlega hamförum gegn liði
ÍR í undanúrslitunum. Frétta-
blaðið fékk Einar Bollason, fyrr-
um landsliðsþjálfara og leikmann,
til að spá í viðureign kvöldsins.
„Þarna mætast stálin stinn, tví-
mælalaust tvö bestu lið landsins
og engin tilviljun að þau skuli
mætast aftur,“ sagði Einar. „Ant-
hony Glover er auðvitað sterkur
leikmaður en hefur ekki náð að
fylla skarð Derrick Allen sem var
frábær í fyrra. Það veikti liðið að
missa Fannar Ólafsson en aftur á
móti eru aðrir leikmenn í Kefla-
víkurliðinu sem eru að spila betur.
Efstur á blaði er Sverrir Sverris-
son sem hefur aldrei leikið betur
en nú.“
Einar sagði að margir vildu
meina að Keflavíkurliðið væri
ekki ekki jafn sterkt og í fyrra.
„Ég get að mörgu leyti tekið
undir það en það er engu að síður
dúndrandi sjálfstraust hjá liðinu.
En Keflvíkingar þurfa að passa
sig á einu og það er að dramb er
falli næst. Þeir hafa verið ansi
brattir í yfirlýsingum og allt að
því gert lítið úr andstæðingum
sínum.“
Týnist Sigurður í kvöld?
„Snæfellingar eru náttúrulega
ekki árennilegir í fráköstunum,
alveg massíft frákastalið. Snæfell
hefur aldrei unnið leik í Keflavík
en liðið verður að vinna einn leik
þar til að eiga möguleika. Ég held
að Snæfell muni ná því að vinna
leik þar en það verður ekki í
kvöld. Ég er á því að Keflavík
vinni þennan leik eftir mikla bar-
áttu. Keflavík flýgur mjög hátt
þessa dagana og það mun fleyta
liðinu í gegnum þennan leik. Þetta
verður skemmtileg rimma en
þetta eru tvö sterkustu varnarlið
deildarinnar. Í liði Snæfells verða
menn eins og Sigurður Þorvalds-
son að muna að leikurinn er 40
mínútur. Það þýðir ekki að koma
inn með glans annað slagið en týn-
ast þess á milli. Þetta er mjög
hæfileikaríkur körfuboltamaður
en týnist allt of mikið inn á milli.
Það er stór spurning hvernig trú
Snæfellingar hafa á sér að mæta á
leikvöll sem þeir hafa aldrei unnið
sigur á og með fullt hús af áhorf-
endum. Það á náttúrulega enginn
körfuboltaáhugamaður að láta sig
vanta á þessar viðureignir,“ segir
Einar.
„Annars er ég ekki í vafa um að
Sigurður Ingimundarson, sem er
að mínu mati fremsti þjálfari
landsins, nái að stilla allra strengi
fyrir viðureign kvöldsins og leiða
Keflavík til sigurs,“ sagði Einar
Bollason.
smari@frettabladid.is
Í LOFTKOSTUM
Sverrir Sverrison hefur
aldrei leikið betur að
mati Einars Bollasonar.