Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 43
■ MÁL MICHAELS JACKSON
Gamanmyndin Get Shorty sló
hressilega í gegn árið 1995 enda
hafði hún allt til að bera sem þarf
að prýða góða bíómynd. Leikara-
liðið var glæsilegt og í toppformi
með John Travolta, í hlutverki
handrukkarans Chilli Palmer,
fremstan meðal jafningja.
Myndin byggði á skemmtilegri
sögu meistara Elmore Leornard
um Palmer sem gafst upp á glæp-
astarfsemi og nýtti reynslu sína
úr undirheimunum til að hasla sér
völl í Hollívúdd. Be Cool er fram-
hald á Get Shorty og þegar hér er
komið sögu er Palmer orðinn leið-
ur á bíóbransanum en flækist fyr-
ir tilviljun inn í tónlistarbransann.
Þar þarf hann að taka á honum
stóra sínum þar sem það eru allir
glæponar í plötuútgáfu og mót-
staðan því öllu harðari en í Hollí-
vúdd.
Be Cool stendur get Shorty
nokkuð langt að baki og þar er
helst við þvælt handritið að
sakast. Sagan nær aldrei almenni-
legu flugi og spennan er í lág-
marki. Þetta eru viss vonbrigði
þar sem að öðru leyti er byggt á
sömu formúlu; leikararnir eru
hver öðrum betri og allt yfirbragð
myndarinnar er jafn eitursvalt og
persónurnar. Travolta er auðvitað
svalastur og rennir sér blindandi í
gegnum myndina og er nánast
aukapersóna þar sem kostulegar
aukapersónurnar skyggja á Pal-
mer sem er samt vitaskuld kóng-
urinn í öllum sínum senum.
Það eru samt sem áður fyrst og
fremst geggjaðar aukapersónur í
meðförum frábærra leikara sem
lyfta myndinni upp og bjarga
henni um leið frá því að kolfalla í
samanburðinum við Get Shorty.
Vince Vaughn nýtur sín í botn í
hlutverki nautheimsks og illa inn-
rætts plötuútgefanda sem fylgir
tískustraumum melludólga.
James Woods klikkar heldur ekki
í smáhlutverki og Robert Pastor-
elli er þrælskemmtilegur sem
subbulegur leigumorðingi og það
gustar af Cedric the Entertainer í
hlutverki byssuglaðs rappútgef-
anda. Senuþjófur myndarinnar og
hin raunverulega stjarna myndar-
innar er samt glímutröllið The
Rock (The Scorpion King,
Walking Tall) en þessi meinti
hæfileikalausi leikari fer á alger-
um kostum sem samkynhneigði
lífvörðurinn Elliot Wilhelm sem
sveiflar rauðri hafnaboltakylfu og
dreymir um frægð í Hollívúdd.
Kletturinn er greinilega misskil-
inn snillingur.
Þórarinn Þórarinsson.
BE COOL
LEIKSTJÓRI: F. GARY GRAY
AÐALHLUTVERK: JOHN TRAVOLTA, UMA
THURMAN, VINCE VAUGHN
NIÐURSTAÐA: Þvælt handritið verður til þess
að sagan nær aldrei almennilegu flugi og
spennan er í lágmarki en geggjaðar aukaper-
sónur í meðförum frábærra leikara lyfta mynd-
inni upp og bjarga henni um leið frá því að
kolfalla í samanburðinum við Get Shorty.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Sjaldgæfar
ásakanir
Sálfræðingurinn Stan Katz, sem
var sá fyrsti til að greina yfirvöld-
um frá ásökunum um að popparinn
Michael Jackson hefði misnotað 13
ára gamlan dreng, segir það afar
sjaldgæft að barn á þessum aldri
setji fram falskar ásakanir um
slíka misnotkun. Sagði hann að
börn eldri en fimm ára settu nánast
aldrei fram ákærur sem þessar og
héldu þeim til streitu. Ekki gat
hann þó stutt þessa fullyrðingu
með sönnunargögnum.
Jackson hefur alla tíð neitað
ásökununum og segir að fjölskylda
drengsins ásælist auðæfi sín. ■
Moby hefur gagnrýntsöngkonuna Gwen
Stefani fyrir að yfirfylla plöt-
una sína, Love Angel Music
Baby, af frægum vinum sín-
um og gestasöngvurum. Að
mati Mobys hefði platan átt
að vera mun einfaldari, jafn-
vel bara með Gwen og óraf-
mögnuðum gítar. Í staðinn
eru listamenn eins og André
3000, Missy Elliott,
New Order og Eve á
plötunni með Gwen.
„Ég kann mjög vel við
Gwen sem persónu og
hún hefur líka gert
margar frábærar plötur.
En þessi þykir mér yfir-
full af fólki. Það er ekki
nóg af Gwen á plöt-
unni.“
FRÉTTIR AF FÓLKI
Miðasala hefst á morgun
Miðasala á tónleika skosku
hljómsveitarinnar Franz Ferdin-
and í Kaplakrika 27. maí hefst á
morgun. Enn hefur ekki verið
ákveðið hverjir munu hita upp
fyrir Ferdinand en ljóst er að
upphitunarbandið verður úr röð-
um íslenskra tónlistarmanna.
Miðsalan fer fram í verslun-
um Skífunnar og í verslun 12
Tóna við Skólavörðustíg. Einnig
verða seldir miðar í verslunum
BT á Akureyri og Selfossi.
Miðaverð er 4750 krónur og
verða 2500 miðar seldir á tón-
leikana. ■
■ TÓNLIST
FRANZ FERDINAND Miðasala á tónleika
skosku sveitarinnar í Kaplakrika hefst á laug-
ardag.
Madonna virðist seint ætla aðhætta að eignast óvildarmenn.
Poppdívan hefur haft það fyrir sið
að hneyksla og uppskorið ýmis við-
urnefni meðal siðprúðra manna.
Væntanlega hefur hún þó ekki verið
kölluð norn á opinberum vettvangi
og þaðan af síður af háttsettum að-
ila innan kaþólsku kirkjunnar. Þetta
voru þó viðbrögð
bandarískra kaþ-
ólikka þegar hún
ásamt Guy Ritchie,
eiginmanni sínum,
mætti klædd upp
sem nunna og
Ritchie sem páfinn
á árlega hátíð Kab-
balah-safnaðarins í
London. Tímasetningin þykir vera
mjög vafasöm enda liggur páfinn
mjög veikur fyrir og gat til að mynda
ekki tekið þátt í páskahaldi Vatík-
ansins í fyrsta skipti á ferli sínum.
Þessi háttsetti einstaklingur innan
kaþólsku kirkjunnar sagði að hann
hefði haldið að kirkjan væri laus við
þessa norn þegar hún uppgötvaði
Kaballah-trúna. „Þetta var mikil
óvirðing við okkur,“ lét hann hafa
eftir sér.
Flippaðir smákrimmar