Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 48

Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 Opel Astra fékk fimm stjörnur fyrir öryggi hjá EuroNcap HREINT SMEKKSATRI‹I fl‡ski gæ›ingurinn Sko›a›u Opel Astra hjá Ingvari Helgasyni og láttu flinn smekk rá›a. Samkeppnin í „litlu millistær›inni“ er ótrúlega hör› og a› okkar mati eru nokkrir framúrskarandi bílar í bo›i í flessum flokki. Me›al fleirra er Opel Astra, einn mest seldi fólksbíll Evrópu 2004. Hann er endur- hanna›ur frá grunni, sérstaklega vanda›ur og talsvert stærri en fyrri ger›ir. Hann er lipur og skemmtilegur í akstri og sérlega flægilegur í umgengni. Okkur finnst hann fallegastur í sínum stær›arflokki. En fla› er náttúrulega smekksatri›i. Á lf el g u r er u a u ka h lu tu r á m yn d N†R OPEL ASTRA Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 339.000 kr. útborgun og eftirstö›var í 84 mánu›i. A‹EINS 18.992 Kr. Á MÁNU‹I VER‹ FRÁ :1.695.000 Kr. F í t o n / S Í A F I 0 1 2 1 2 2 Fallegt fólk Til þess að verða stjarna í Amer-íku þarf fólk annaðhvort að vera leikarar, morðingjar eða kálhausar – og fallegt. Allir tilbiðja slíkan mann- skap. Ef það er leikarar, getur það ekki verið morðingjar. Leikararnir O.J. Simpson og Robert Blake voru sýknaðir af ákæru um að hafa myrt eiginkonur sínar. Þeir eru leikarar, tilheyra fallega fólkinu og geta því ekki gert neitt ljótt. Mál þeirra eru rekin í sjónvarpinu í slíkum smáat- riðum að það liggur við að þeir séu magaspeglaðir í beinni til þess að áhorfendur fái að sjá hvað þeir borðuðu í morgunmat. HANN var ekki svona heppinn hann Scott litli Peterson sem hefur fengið dauðadóm fyrir að myrða sína eiginkonu háólétta. Ef hann hefði rolast til þess að læra leiklist hefði örugglega farið betur fyrir honum. Fallegur, leikari, morðingi er uppskrift sem blífur, rétt eins og aðrar heilagar þrenningar. Það er ekki nóg að vera bara fallegur og morðingi. ANNARS er morðinginn Scott ein- hver eftirsóttasti piparsveinn lands- ins um þessar mundir. Hann er svo mikil stjarna að það þarf að hafa hann í einangrun á dauðadeildinni í sex til átta vikur til þess að meta hvaða glæponahópi hússins er hægt að treysta fyrir honum. Inn í fang- elsið rignir bréfum frá konum hvaðanæva úr Bandaríkjunum sem biðja hann að kvænast sér. Þær trúa stöðugt á sakleysi hans vegna þess að hann er svo fallegur. Einmitt. EKKI þar fyrir, ef maður ætlar að vera giftur manni sem myrðir eigin- konur sínar, er það líklega á við líf- tryggingu að honum sé haldið á bak við lás og slá. Á meðan téður Scott skoðar bréf og myndir frá tilvonandi eiginkonum, stendur þessi þrjú hundruð milljóna manna þjóð á önd- inni yfir stúlkukind sem hefur verið í grænmetisástandi í fjórtán ár. For- eldrar hennar vilja halda henni á lífi áfram og hafa víðtækan stuðning. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að þótt ekki sé hægt að greina nein merki þess í dag, var hún falleg áður en hún hrundi niður vegna átröskunar snemma á níunda áratug síðustu aldar. FALLEGT fólk er heilagt. SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.