Fréttablaðið - 15.04.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
ROBINSON MEÐ ERINDI Í tengslum
við 75 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur
fer fram ráðstefna undir heitinu Samræður
menningarheima. Á meðal fyrirlesara í dag
er Mary Robinson, fyrrverandi forseti Ír-
lands. Hún flytur erindi klukkan 13 í Há-
skólabíói.
DAGURINN Í DAG
15. apríl 2005 – 100. tölublað – 5. árgangur
RÁN Í SKARTGRIPAVERSLUN Fíkni-
efnaneytandi réðst á Láru Magnúsdóttur
gullsmið og rændi skartgripaverslun hennar
við Skólavörðustíg. Lára marðist illa á baki
og stokkbólgnaði eftir árásina. Sjá síðu 2
NÝTT INNFLYTJENDARÁÐ Stefnt er
að því að stofna innflytjendaráð til að sinna
brýnum málefnum innflytjenda og bera
ábyrgð á móttöku flóttamanna. Sjá síðu 4
VILL SKÝRAR REGLUR Verkalýðs-
hreyfingin krefst þess af stjórnvöldum að
erlendar starfsmannaleigur verði viður-
kenndar hér á landi og settar verði skýrar
reglur um þær. Sjá síðu 6
SELT FYRIR ÁTTA MILLJARÐA Fjár-
festingarbankinn Straumur seldi í gær um
38 prósenta eignarhlut sinn í Tryggingamið-
stöðinni fyrir átta milljarða króna. Sund ehf.
keypti stærsta hlutann. Sjá síðu 16
Kvikmyndir 38
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 30
Sjónvarp 40
● matur ● tilboð
Veiðir og matreiðir
hreindýr
Guðlaugur Þór Þórðarson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
VEÐRIÐ Í DAG
SUÐLÆGAR ÁTTIR UM HELGINA
OG VINDASAMT Rigning víða sunnan
og vestanlands. Hiti 0-8 stig. Sjá síðu 4
Afmæli fyrrverandi forseta:
Vigdís 75 ára
TÍMAMÓT Vigdís Finnbogadóttir er
75 ára í dag. Í viðtali við Frétta-
blaðið segist hún vona að sem for-
seti hafi hún
aldrei verið á
stalli, því henni
þyki svo vænt
um fólk.
„Ég óskaði
þess að fólk
fyndi það vin-
samlega í mér,
en ekki hið
g a g n s t æ ð a , “
segir Vigdís.
„Ég var bara ein af okkur, ósköp
venjuleg manneskja sem af til-
viljun var valin í þetta starf. Vin-
ur þeirra sem vildu vera vinir
mínir. Reiðubúin að halda undir
horn og lyfta með átökum, því ég
er í eðli mínu dráttarklár, tilbúin
að draga eða ýta á eftir málefnum
og verkum.“ Sjá síður 28 og 29
bregður á leik
stjörnur tíska heilsa persónuleikapróf matur tónlist bíó
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
15
. a
pr
íl –
21
. a
pr
íl
Matur »
í minningu páfa
G
u
n
n
h
ildu
r &
H
elgi í D
jú
pu
lau
gin
n
i
»
úr m
ism
unandi hornum
en furðulega lík
Sumar 2005
» í miðju blaðsins
Furðulega lík
Krakkarnir í Djúpu lauginni:
● sumar ● matur ● tíska ▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
FÉLAGSMÁL Rúmlega 40 einstak-
lingar eru skráðir með lögheim-
ili hér á landi en eru án ríkis-
fangs, með öðrum orðum land-
lausir. Á svonefndri utangarðs-
skrá eru átta manns. Þessar upp-
lýsingar fengust á Hagstofu Ís-
lands.
Guðni Baldursson hjá Þjóð-
skrá Hagstofunnar sagði að
munurinn á þessu tvennu væri
sá að á utangarðsskránni væri
fólk sem væri hér til bráða-
birgða, en hefði ekki dvalarleyfi.
Í sumum tilvikum væru menn að
bíða eftir því að komast inn á
þjóðskrá. Þetta fólk væri án rík-
isfangs í öðrum löndum. Hinir
fyrrnefndu hefðu landvistarleyfi
og öll önnur leyfi í lagi.
Ekkert hefur gerst í málefn-
um Aslans Gilaevs, mannsins
sem kom skilríkjalaus hingað
fyrir um það bil fimm árum og
Fréttablaðið ræddi við fyrir
skömmu. Dvalarleyfi hans, sem
er til bráðabirgða, rennur út 1.
ágúst. Alþjóðadeild lögreglunnar
hefur grafist fyrir um uppruna
mannsins en hefur enn ekkert
fundið sem getur gefið vísbend-
ingu um hvaðan hann er. Hans
mál hefur því nokkra sérstöðu
hvað varðar ríkisfang.
Jóhann Jóhannsson hjá Út-
lendingastofnun sagði að skipta
mætti hinum ríkisfangslausu í
þrjá flokka. Hluti þeirra væri
svokallaðir kvótaflóttamenn sem
þurfa að dvelja hér í fimm ár
áður en þeir fá ríkisfang hér, ef
þeir óska eftir því á annað borð.
„Síðan er eitthvað af fólki
sem hefur verið heimilað að
koma hingað, til að mynda í fjöl-
skyldusameiningu,“ sagði Jó-
hann. „Það hefur áður verið
flóttafólk sem hefur fengið bú-
setuleyfi hér þótt það sé ríkis-
fangslaust. Þá er hópur ríkis-
fangslausra frá Eystrasaltsríkj-
unum sem hafa fengið að koma
hingað. Það fólk hefur ekki
fengið ríkisborgararétt í þessum
löndum. Dæmi um ástæður þess
má nefna Rússa sem lokuðust
inni í baltnesku löndunum þegar
Sovétríkin liðuðust í sundur, en
þeir fengu ekki ríkisfang í nýju
ríkjunum.“ Spurður hvað yrði
um hina ríkisfangslausu hér á
landi sagði Jóhann að flestir
yrðu um kyrrt og fengju ríkis-
borgararétt, aðrir færu aftur úr
landi.
-jss
Fjörutíu án ríkisfangs
Rúmlega 40 einstaklingar sem eru með lögheimili hér á landi eru hvergi með ríkisfang. Einkum
er um að ræða svokallaða kvótaflóttamenn og fólk frá Eystrasaltsríkjunum. Þá eru átta manns á
svonefndri utangarðsskrá, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
BAGDAD, AP Átján manns biðu bana
og 36 særðust þegar tvær bíl-
sprengjur sprungu nálægt skrif-
stofum innanríkisráðuneytisins í
Bagdad í gærmorgun. Al-Kaída í
Írak kveðst bera ábyrgð á tilræð-
unum.
Eftir fremur friðsælt skeið í
Írak að undanförnu hefur síðasta
vika verið óvenju ofbeldisfull. Á
þriðjudaginn fórust fimm í tilræði
í Mosul og í fyrradag týndu
sautján lífi í sprengingum í
Bagdad og Kirkuk. Fylgismenn al-
Kaída í Írak virðast vera að færa
sig upp á skaftið því auk árásar-
innar í gær segjast þeir ábyrgir
fyrir tilræðunum á miðvikudag. Í
yfirlýsingu á netinu segir Abu
Musab al-Zarqawi, talsmaður
þeirra, að sprengjunum sé beint
gegn lögreglumönnum í landinu.
Bandarískir hermenn fundu bíl
í Bagdad í gær með ósprungnum
sprengjum og sprengdu þeir bíl-
inn á öruggum stað.
Í borginni Baqouba skutu upp-
reisnarmenn lögregluþjón og
nærri Kirkuk voru sex lögreglu-
þjónar stráfelldir af byssumönn-
um. Skæruliðasamtökin Ansar al-
Sunnah stóðu á bak við þær árásir
en í yfirlýsingu sinni í gær kveð-
ast þau hafa hafið samstarf við
liðsmenn al-Kaída í Írak. ■
Uppreisnarsamtök taka höndum saman:
Ófriðarbálið í Írak magnast á ný
KALT Á TÁNUM Vorið er á næsta leiti. Það mátti berlega sjá við Elliðaárnar í gær þar sem þeir
Gunnar Reynir, Arnar Örn, Guðjón Helgi og Þorsteinn Jón óðu berfættir og lítið klæddir á ánni. Þeim var töluvert kalt en var þó alveg
sama þótt þeir yrðu veikir því að þá myndu þeir ekki þurfa að fara í skólann daginn eftir. Sögðu þeir húsverðina í skólanum sínum allt of
stranga því þeir leyfi strákunum ekki að fara í hana- og riddaraslag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÖFLUGAR SPRENGJUR
Bandarískir hermenn sprengdu bíl í gær
sem þeir höfðu fundið fullan af sprengiefni.
Ferskleiki
og gæði
íslenskrar
matvöru
gerir hana
að úrvals kosti
fyrir heimilin
í landinu.
M
YN
D
/A
P
ASLAN GILAEVS
Einn af rúmlega fjörutíu manns sem eru
ríkisfangslausir hér á landi.
VIGDÍS
FINNBOGADÓTTIR