Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 2
2 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Par undir áhrifum fíkniefna: Rændu verslun og réðust á gullsmið LÖGREGLUMÁL Par undir áhrifum fíkniefna lét dólgslega í Gull- smíðaverslun og verkstæði Láru við Skólavörðustíg síðdegis í gær. Maðurinn stal tíu stórum silf- urhringjum eftir að hafa hrint gullsmiðnum Láru Magnúsdótt- ur sem féll og marðist við það illa á baki og stokkbólgnaði á hendi. Lögreglan yfirheyrði par í gærkvöld sem hafði ekki játað. Lára var að afgreiða konu þegar parið gekk inn og krafðist þess að fá demantsgullhring. Lára skipaði parinu að fara út. „Þegar ég gekk fram fyrir búðarborðið varð maðurinn illur. Hann hrinti mér allharkalega þannig að ég steyptist aftur fyrir mig,“ segir Lára sem undrast að parið skuli ekki hafa látið ferða- menn sem stóðu fyrir utan versl- unina eða konuna inni stoppa sig. Lára segir manninn hafa tryllst er honum var sagt að loka sýningarskáp sem hann opnaði. „Hann skellti hurðinni þannig að tvær rúður brotnuðu og náði þá að hrifsa til sín tíu hringi,“ segir Lára. Ferðamennirnir fyrir utan náðu niður númerinu á bíl pars- ins og afhentu það lögreglu. - gag REYKJAVÍK Dregið var úr umsókn- um um 30 lóðir í Lambaseli hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær. Þrjátíu númer umsækjenda voru dregin úr kökuboxi með 5.665 númerum og einnig voru dregin út 20 númer til vara. Núm- erin átti að birta á vef Reykjavík- urborgar í gær. Haft var samband við lukku- lega lóðarhafa í gærkvöld og svo verður haft samband við þá síð- ustu í dag og þeim tilkynnt um út- hlutunina eða stað á lista yfir varamenn. Umsækjendur verða beðnir um að sækja bréf um út- hlutunina í dag og á næstunni verða þeir svo að skila inn gögn- um. Lóðarhafar þurfa að fá stað- festingu um að þeir séu ekki í van- skilum, skila greiðslumati upp á 25 milljónir frá banka og vottorði úr þjóðskrá um að þeir hafi átt lögheimili í Reykjavík í eitt ár. Þegar úthlutunin hefur verið samþykkt í borgarráði þá þurfa þeir að greiða fyrir lóðina, 3,5 milljónir fyrir þá minni og 4,6 milljónir fyrir þá stærri innan mánaðar frá dagsetningu úthlut- unarbréfs. Lóðarhafi getur ekki fengið lóðarleigusamning fyrr en loka- úttekt hefur farið fram. - ghs Kort afrituð og seld á markaði Óprúttnir þjófar nota sérstakan búnað til að afrita segulrönd og leyninúmer korta sem notuð eru í hraðbönkum. Þetta þekkist erlendis en hefur ekki fundið fótfestu á hér. Íslenskir ferðamenn hafa þó ekki farið varhluta af slíku svindli. KORTASVINDL Kortasvindl er víð- feðmt vandamál sem þekkist alls staðar í heiminum, segir Jón H. B. Snorrason hjá Ríkislögreglu- stjóra. Hann segir ýmsar aðferð- ir notaðar til að afrita kort. Til dæmis stundi sumir það að vaka yfir hraðbönkum með myndavélum auk þess sem kom- ið er upp tækjum sem líkist hrað- bönkum en séu einvörðungu ætl- uð til að safna upplýsingum af segulrönd og leyninúmerum, sem síðan eru notuð til að búa til nýtt kort. Slík tækni segir Jón að hafi ekki rutt sér til rúms hjá ís- lenskum afbrotamönnum. Hins vegar hafi íslenskir ferðamenn orðið fyrir barðinu á slíku á ferðalögum. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá íslenskum hjónum sem urðu fyrir því að debetkort þeirra voru afrituð í hraðbanka á Ítalíu þar sem þau voru í skíða- ferðalagi. Þegar það kom í ljós höfðu um 550 þúsund krónur horfið af reikningum þeirra. Erfitt er fyrir fólk að vara sig á slíkum kortasvikum. Oft á tíð- um notar fólk hraðbanka í bestu trú án þess að gera sér grein fyr- ir að verið sé að afrita kortið. Þórður Jónsson, sviðsstjóri kortaútgáfu Vísa, bendir fólki á að í hvert sinn sem hraðbanki hegði sér á einhvern hátt óeðli- lega erlendis, eigi fólk hiklaust að hafa samband við kortafyrir- tæki sitt og leita ráða. Bergþóra Ketilsdóttir, for- stöðumaður upplýsingatækni hjá Mastercard, segir ýmislegt gert til að stöðva misnotkun. Til dæm- is sé vöktunarkerfi sem vari við ef kort er notað sama dag á Ís- landi og erlendis. Þá sé hringt í fólk þegar óeðlilegar færslur komi í ljós. Þórður segir upprunalönd hinna fölsuðu korta í mörgum til- fellum vera Bretland, Þýskaland og lönd í Suður-Evrópu. Hins vegar séu þau síðar notuð í öðr- um löndum. Jón H. B. bendir á að breskur maður hafi verið hand- tekinn hér á landi og dæmdur fyrir að hafa undir höndum fölsuð kort frá Þýskalandi, Sví- þjóð og Ástralíu. solveig@frettabladid.is Bláskógabyggð: Sumarhús líka heimili DÓMSMÁL Hæstiréttur úrskurðaði í gær að fimm manna fjölskylda mætti skrá lögheimili sitt í sumar- hús í Bláskógabyggð. Fjölskyldan flutti í febrúar 2004 í húsið í óþökk sveitarfélags- ins þar sem forsvarsmönnum þess þótti of kostnaðarsamt að veita þeim sem það kysu lög- bundna þjónustu. Einn dómaranna fimm skilaði séráliti. Fjölskyldan hafi óskað eftir að byggja sumarhús en ekki heimili. Málið hafi því ekki snúist um hvort fólk mætti ráða hvar það byggi eins og meirihlutinn taldi. - gag Danadrottning: Varar við öfgamönnum DANMÖRK Margrét Þórhildur Danadrottning segir í nýút- kominni ævisögu sinni að Danir verði að sporna við uppgangi heit- trúaðra múslima í landinu. Jafn- framt hvetur hún innflytjendur af arabísku bergi brotnu að læra dönsku til að einangrast ekki frá samfélaginu. Blaðakonan Anne Blistrup skrifar bókina með Margréti en þar er drottningin ómyrk í máli í garð innflytjenda. Hún er sögð hafa vanþóknun á „þessu fólki sem lætur allt sitt líf snúast um trúarbrögð“. 150.000 múslimar búa í Dan- mörku, þeir eru um þrjú prósent þjóðarinnar. ■ Ný samgönguáætlun: Skiptir fénu upp á nýtt SJÓRNMÁL Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður bæjarráðs í Kópavogi, hyggst fljót- lega birta nýja samgönguáætl- un sér að skapi. „Ég tel að fjármagni til vegamála á Ís- landi sé mis- skipt. Það er of lítið af þeim f j á r m u n u m sem fara til höfuðborgar- s v æ ð i s i n s , “ segir hann. Gunnar seg- ir að hann eigi ekki von á öðru en að samgönguáætlun hans hljóti stuðning, en hann vill ekki greina frá því hvaða breytingar hann geri í nýju áætluninni frá þeirri opinberu: „Það kemur í ljós.“ - gag Óskað eftir gæsluvarðhaldi: Þrír teknir með hass LÖGREGLUMÁL Þrír menn á aldrin- um 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi í fórum sínum. Þeir gista fangageymslur og hefur lögregl- an óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald. Daníel Snorrason, lögreglufull- trúi á Akureyri, segir eldri menn- ina tvo áður hafa komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefna- mála, líkamsárása, hótana og fleiri afbrota. Hassmagnið er eitt það mesta sem lögreglan á Akur- eyri, í samvinnu við lögregluna á Blönduósi, hefur lagt hald á. Talið er að söluverðmætið sé á milli 800 til 900 þúsund krónur. - gag Samfylkingin: Ágúst Ólafur í framboð STJÓRNMÁL Ágúst Ólafur Ágústs- son mun formlega tilkynna í dag að hann muni gefa kost á sér sem v a r a f o r m a ð u r Samfylkingar á næsta landsfundi. Fyrr í vikunni hvatti fram- k v æ m d a s t j ó r n Ungra jafnaðar- manna, ungliða- hreyfingar Sam- fylkingarinnar, Ágúst Ólaf til að bjóða sig fram og hafði hann þá ekki gert það upp við sig hvort hann ætlaði í framboð, en Frétta- blaðið hefur heimildir fyrir því að hann hafi hringt í vel flesta, ef ekki alla þingmenn Samfylkingar í gær til að afla sér stuðnings í varaformannsembættið. Útvarpið sagði frá því í gær að skorað hefði verið á Jóhönnu Sig- urðardóttur að bjóða sig einnig fram. - ss Alltaf hagstætt www.ob.is 14 stöðvar! SPURNING DAGSINS Bergur, má ekki reykja þessar kanínur og bjóða gestum á Þjóðhátíð? Við viljum heldur reykja lundann. Að sjálfsögðu þykir okkur vænt um kanín- ur en við myndum heldur vilja sjá þær annars staðar. Bergur Elías Ágústsson er bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum. Villtar kanínur eru orðnar alvarlegt vandamál í Heimaey þar sem þeim fjölgar ört. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa sent um- hverfisráðuneytinu bréf og óskað er eftir aðstoð við að halda fjölda þeirra í skefjum. Kanínurnar eru það margar að lundanum stendur hætta af. DREGIÐ ÚR UMSÓKNUM Vagnbjörg Magnúsdóttir og Ágúst Jónsson, starfsmenn framkvæmdasviðs, mættu með kökubox og númer umsækjenda. Örgjörvakort á markað Örgjörvakort munu líta dagsins ljós á þessu ári í stað venjubundinna korta með segulrönd. Þetta er gert til að stemma stigu við kortasvindli af ýmsum toga en mun erfið- ara verður að afrita kubbinn, að sögn Berg- þóru Ketilsdóttur forstöðumanns upplýs- ingatækni hjá Mastercard. Segulröndin verður áfram á kortinu fyrir gamla kerfið en stefnan er að skipta út öllum búnaði í bönkum, pos- um og hugbúnaði kassakerfa í búðum. ■ KORTASVIK Erfitt er að átta sig á kortasvikum. Ferða- mönnum er bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sín ef hraðbankar erlendis hegða sér á einhvern hátt óeðlilega. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Dregið um lóðir í Lambaseli: Númerin dregin úr kökuboxi GUNNAR I. BIRGISSON Gagnrýndi sam- gönguáætlun ríkis- stjórnarinnar á Al- þingi á dögunum. LÁRA MAGNÚSDÓTTIR Hér er Lára fyrr um daginn og fyrir ránið. Hún fagnar þessa dagana þrjátíu ára af- mæli verslunarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.