Fréttablaðið - 15.04.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,10 63,40
118,92 119,50
80,92 81,38
10,86 10,92
9,83 9,88
8,83 8,88
0,58 0,59
94,82 95,38
GENGI GJALDMIÐLA 14.04.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,81 -0,33%
4 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Japanskur þingmaður um milliríkjadeiluna við Kínverja:
Ágreiningur verður leystur
JAPAN Japan og Kína eiga svo
mikilla sameiginlegra hags-
muna að gæta, ekki síst eftir að
þau nánu efnahagslegu tengsl
komust á sem þróast hafa hratt
á síðustu árum, að vart er annað
hugsanlegt en að þau leysi þann
ágreining sem gætir nú í sam-
skiptum þessara mestu stór-
þjóða Asíu. Þetta segir japanski
þingmaðurinn Shinako Tsuchi-
ya, sem á sæti í utanríkismála-
nefnd Japansþings og er for-
maður stefnumótunarnefndar
japanska stjórnarflokksins LDP
í utanríkismálum.
Tsuchiya var meðal ræðu-
manna á málþinginu „Samræður
menningarheima“, sem haldið
er til heiðurs Vigdísi Finnboga-
dóttur. Á fyrirlestrinum sem
Tsuchiya flutti í Háskóla Ís-
lands í gær talaði hún um stöðu
kvenna í Japan nútímans. Rakti
hún meðal annars það hvernig
lýðfræðileg þróun japansks
samfélags kallaði á aukna at-
vinnuþátttöku kvenna. Eftir-
spurn eftir vinnuafli í Japan eigi
eftir að aukast þegar fámennari
árgangar verða kjarninn í
vinnuaflinu. Þessari eftirspurn
verði ekki einvörðungu svarað
með innflutningi vinnuafls,
heldur kalli hún á að fleiri konur
vinni úti. Eins og er sé hlutfall
útivinnandi kvenna í Japan til-
tölulega lágt í samanburði við
önnur þróuð lönd, eb sú hefð að
giftar konur vinni heima en
karlinn úti sé að víkja fyrir nýj-
um og sveigjanlegri háttum. -aa
Stjórnvöld stofna
innflytjendaráð
Stefnt verður að því að stofna innflytjendaráð til að sinna brýnum málefnum inn-
flytjenda og bera ábyrgð á móttöku flóttamanna. Ráðið mun heyra undir félagsmála-
ráðuneyti, en vera skipað fulltrúum fjögurra ráðuneyta og Sambands sveitarfélaga.
STJÓRNMÁL Stefnt verður að því að
stofna innflytjendaráð, tilrauna-
verkefni til fimm ára, sem mun
sinna málefnum innflytjenda og
bera ábyrgð á flóttamannamót-
töku. Þetta kom fram í máli Árna
Magnússonar félagsmálaráð-
herra í utandagskrárumræðu um
kynþáttafordóma og aðgerðir
gegn þeim í gær. Gert er ráð fyr-
ir að slíkt ráð geri þjónustusamn-
inga við þá sem best séu til þess
fallnir að sinna brýnum verkefn-
um innflytjenda.
Þetta eru tillögur nefndar sem
fjallað hefur um framkvæmd
þjónustu við útlendinga sem
skipuð var í fyrrasumar. Hún
skilaði af sér tillögum og drögum
af endanlegri skýrslu til félags-
málaráðherra í gær.
Árni segir að næsta mál á dag-
skrá sé að gera grein fyrir tillög-
unni í ríkisstjórn í næstu viku. Í
framhaldi verður kostnaður við
innflytjendaráðið metið og at-
hugað hvort þurfi einhverjar
lagabreytingar. Hann vonar að
tillögurnar komi til fram-
kvæmda strax á næsta ári.
Lagt verður til að innflytj-
endaráð muni heyra und-
ir félagsmálaráðu-
neytið, en verði
skipað fulltrúum
félagsmálaráðu-
neytis, mennta-
málaráðuneytis,
dómsmálaráðu-
neytis, heil-
b r i g ð i s r á ð u -
neytis og Sam-
bands sveitar-
félaga. Eftir
nokkrar umræð-
ur á þingi tók Árni
einnig jákvætt í þá
hugmynd að fulltrúi
innflytjenda muni
sitja í innflytjenda-
ráði.
Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóða-
húss, segir að honum
lítist vel á hug-
myndina við
fyrstu heyrn.
„Þetta er
fyrsta heil-
steypta hug-
myndin um stefnumörkun
stjórnvalda í málaflokknum. Nú
bíð ég bara eftir að einhverjar
krónur komi til að fylgja
þessu eftir.“ Hann segir
boltann nú vera hjá
menntamálaráðherra
til að gera eitthvað
róttækt í íslensku-
kennslu og að
byggja upp for-
dómafræðslu á öll-
um fræðslustig-
um. svan-
borg@frettabladid.is
Rassía:
Tíu þúsund
bófar teknir
BANDARÍKIN Á aðeins einni viku hafa
lögreglusveitir um gervöll Banda-
ríkin klófest 10.340 glæpamenn sem
eftirlýstir voru fyrir margvísleg
brot. Að sögn CNN eru 162 grunaðir
eða dæmdir morðingjar þar á með-
al, 553 nauðgarar og 638 menn grun-
aðir um vopnuð rán.
Sumir glæpamannanna höfðu
strokið úr fangelsi en aðrir höfðu
verið látnir lausir gegn tryggingu
og ekki mætt til réttarhaldanna.
Nokkrir þeirra eru taldir afar
hættulegir og fannst einn í jarðhýsi
undir eldhúsi ættingja sinna. ■
Samkynhneigðir:
Hjónabönd
dæmd ógild
SALEM, AP Hæstiréttur Oregon-ríkis
í Bandaríkjunum hefur ógilt næst-
um 3.000 hjónabönd samkyn-
hneigðra.
Síðastliðið ár hafa hommar og
lesbíur í Oregon getað látið gefa sig
saman í einni sýslu ríkisins þrátt
fyrir að lög þess kveði á um að
hjónabönd gagnkynhneigðra séu
þau einu leyfilegu. Því komst dóm-
stóllinn að þeirri niðurstöðu að sýsl-
unni væri ekki stætt á að gefa sam-
kynhneigða saman. ■
■ LÖGREGLUMÁL
■ BANDARÍKIN
VIGDÍS OG TSUCHIYA
Japanski þingmaðurinn Shinako Tsuchiya ásamt Vigdísi Finnbogadóttur á málþinginu í
Háskóla Íslands í gær.
Samfylkingin:
Vítum
mótmælt
STJÓRNMÁL Þingflokkur Samfylking-
ar hefur sent forsætisnefnd Alþing-
is bréf, þar sem því er harðlega
mótmælt að orð Lúðvíks Bergvins-
sonar hafi verið af því tagi að hann
hafi átt það skilið að vera víttur af
forseta Alþingis á miðvikudag.
Telur þingflokkurinn að ekki
verði séð að ákvæði þingskapa þar
sem kveðið er á um þingvíti hafi átt
við. Í þeirri grein þingskapa segir:
„Ef þingmaður talar óvirðulega um
forseta Íslands eða ber þingið eða
ráðherra eða einhvern þingmann
brigslyrðum eða víkur með öllu frá
umtalsefninu skal forseti kalla til
hans; „Þetta er vítavert,“ og nefna
þau ummæli sem hann vítir.“
Orð Lúðvíks sem þóttu vítaverð
voru; „Forseti, ég hef orðið.“
-ss
FÓRNAÐI SÉR FYRIR EIGANDANN
Hundurinn Bob sýndi það í vikunni
að þessir ferfætlingar eru bestu
vinir mannsins. Cindy Hernandez,
íbúi í Flórída, lenti næstum í gini
krókódíls en Bob réðist að kvikind-
inu þannig að Hernandez tókst að
sleppa. Því miður hafnaði Bob
sjálfur í skolti ófreskjunnar.
SLYS Á VESTURLANDSVEGI Ökumað-
ur missti stjórn á bifreið sinni við
Höfðabakkabrú í gærmorgun með
þeim afleiðingum að hann ók út af
veginum og lenti á undirstöðum
brúarinnar. Kvartaði ökumaðurinn
yfir eymslum.
RANNSÓKN Á LOKASTIGI Rannsókn
lögreglu á Akranesi í máli bræðr-
anna tveggja sem lenti saman með
þeim afleiðingum að annar þeirra
stakk hinn með hnífi er á lokastigi.
Fara þarf fram geðmat á hnífs-
stungumanninum og ákvörðun um
framhald verður tekin að því loknu.
BRUNI Í KEFLAVÍK Slökkvilið var
kallað að heimahúsi í Keflavík um
hádegisbil í gær. Hafði þar kviknað
lítill eldur í eldhúsi en slökkvistarf
gekk greiðlega og skemmdir urðu
litlar sem engar.
KONA MEÐ OPIÐ BEINBROT Ung
kona hlaut opið beinbrot þegar hún
féll af snjósleða á Lyngdalsheiði, á
milli Þingvalla og Rauðavatns. Kon-
an, sem er 25 ára, var með hópi á
fimm vélsleðum. Hún féll af sleða
og brotnaði fóturinn fyrir neðan
hné. Hún var mjög kvalin og föl
þegar þyrla Landhelgisgæslunnar
kom á vettvang. Ekki er vitað meira
um líðan konunnar þar sem hún var
ekki komin á sjúkrahús þegar blaðið
fór í prentun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
VERKEFNI INNFLYTJENDARÁÐS:
– að tryggja þeim sem hér hafa atvinnu-
og dvalarleyfi leiðsögn um íslenskt sam-
félag.
– að afla og halda utan um tölfræðileg
verkefni á sviði innflytjendamála.
– að samræma miðlun nauðsynlegra
upplýsinga til útlendinga á Íslandi.
– að gera áætlun um túlkaþjónustu.
– að sinna þjónustu við sveitarfélög.
– að beita sér fyrir rannsóknum og þró-
unarstarfi á högum og aðlögun innflytj-
enda.
ÁRNI MAGNÚSSON
Félagsmálaráðherra
upplýsti á Alþingi í
gær að stefnt verði
að stofnun innflytj-
endaráðs sem muni
sinna málefnum
innflytjenda