Fréttablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 8
1Hvaða þingmann vítti Halldór Blön-dal, forseti Alþingis, í fyrradag?
2Hvaða Evrópulönd fá aðild að Evr-ópusambandinu árið 2007?
3Hvar í Asíu hafa þúsundir flúið heim-ili sín vegna eldgoss?
SVÖRIN ERU Á BLS. 42
VEISTU SVARIÐ?
8 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Guðlaugur Þór Þórðarson:
Samsæri við neytendur
REYKJAVÍK Guðlaugur Þór Þórðar-
son borgarfulltrúi gagnrýnir
borgaryfirvöld fyrir að gera
samning við einkaaðila um að
kaupa byggingarlóðir í Norðlinga-
holti „með góðu eða illu og standa
að eignarnámi ef eigendur vilja
ekki selja“. Borgaryfirvöld bjóða
síðan út á hæsta verði og miða
lóðaframboð sitt út frá þessum
samningi.
Fyrirsjáanlegt er að hagnaður-
inn af útboðinu verði um tveir
milljarðar króna. Samkvæmt
samningi borgarinnar við einka-
aðilann fær einkaaðilinn 40 pró-
sent hagnaðarins, um 800 milljón-
ir, og borgin 60 prósent, eða 1.200
milljónir króna.
„Þetta er það sem ég kalla sam-
særi við neytendur,“ segir Guð-
laugur Þór. „Reykjavíkurborg
sem langstærsta sveitarfélagið
hefur áhrif á hækkun á verði og
samkeppni. Ef Reykjavík er með
lítið framboð af lóðum hækkar
verðið, fyrst og fremst í Reykja-
vík en líka á öllu höfuðborgar-
svæðinu, og það er það sem
Reykjavíkurborg og einkaaðilinn
græddu á, litlu framboði á lóðum,
neyð borgarbúa. Það er gríðarleg-
ur lóðaskortur í borginni.“ - ghs
Kjartan Gunnarsson:
Landið er
verðmætara
NORÐLINGAHOLT Eignarnám borgar-
innar á landi Kjartans Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, í Norðlingaholti
er komið til Gunnars Eydal borg-
arlögmanns.
Kjartan Gunnarsson segist hafa
gert borginni tilboð sem borgin hafi
ekki tekið og hann sé því fallinn frá
þeim tilboðum. „Landið er greini-
lega mun verðmætara en ég hélt
upprunalega,“ segir hann.
Ekki náðist í Gunnar Eydal í
gær til að fylgjast með hvernig
málinu liði en Kjartan segir frum-
kvæði málsins í höndum borgar-
yfirvalda. - ghs
Sprengjumaður í stríði:
Gegn fóstur-
eyðingum
ATLANTA, AP Dómstóll í Atlanta í
Georgíuríki hefur dæmt Eric
Rudolph í ferfalt lífstíðarfangelsi
fyrir fjögur sprengjutilræði, þar á
meðal sprengingu í al-
menningsgarði rétt
fyrir ólympíuleikana
1996. Tveir biðu bana
í tilræðunum og 120
slösuðust.
L ö g f r æ ð i n g a r
Rudolph lögðu fram
yfirlýsingu í réttinum
þar sem þessi fyrrver-
andi sprengjusérfræðingur í hern-
um lýsir ástæðum sínum fyrir til-
ræðunum. Hann kveðst vera í stríði
gegn fóstureyðingum, sem hann
kallar helför. Rudolph sprengdi upp
tvær heilsugæslustöðvar þar sem
fóstureyðingar voru gerðar en
einnig bar fyrir samkynhneigða. ■
Síðbúin stefnu-
skrá frjálslyndra
Breskt herlið verður kallað heim frá Írak í byrjun
næsta árs ef frjálslyndir demókratar komast í valda-
stöðu. Flokkurinn kynnti stefnuskránna i gær.
BRETLAND Frjálslyndir demókratar
kynntu í gær stefnuskrá sína fyrir
bresku þingkosningarnar. Litlar
breytingar virðast á fylgi flokk-
anna samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum.
Íhaldsmenn og Verkamanna-
flokkurinn kynntu báðir stefnu-
mál sín í vikunni. Frjálslyndir
demókratar ætluðu að kynna sín
mál á þriðjudaginn en þar sem
Charles Kennedy, leiðtoga flokks-
ins, og konu hans fæddist sonur
dróst kynningin fram til gærdags-
ins.
Ólíkt íhaldsmönnum og Verka-
mannaflokknum, sem hafa lofað
að hækka ekki skatta, segjast
frjálslyndir ætla að auka álögur á
hátekjufólk. Í staðinn boða þeir
hærri ellilífeyri og lægri gjald-
töku í heilbrigðiskerfinu auk þess
sem þeir vilja stórfjölga lögreglu-
mönnum og kennurum.
Frjálslyndir hafa alla tíð verið
andvígir hernaðinum í Írak og
hvetja í stefnuskrá sinni til að
herlið Breta verði kallað heim
snemma á næsta ári. Bæði
Íhaldsflokkurinn og Verka-
mannaflokkurinn studdu innrás-
ina á sínum tíma þrátt fyrir
mikla andstöðu almennings og
því ætti afstaða frjálslyndra í
þessum efnum að koma þeim til
góða þann 5. maí.
Michael Howard, leiðtogi
Íhaldsflokksins, réðst harkalega
að Tony Blair forsætisráðherra í
morgun eftir að Kamel Bourgass
var dæmdur í gær til fangelsis-
vistar fyrir að skipuleggja árás á
almenning með eiturefninu rísín.
Bourgass kom til Bretlands árið
2001 sem flóttamaður og hafði
mál hans velkst í kerfinu í langan
tíma. Howard sagði að ef Verka-
mannaflokkurinn hefði staðið við
gefin loforð í málefnum flótta-
manna hefði Bourgass aldrei ver-
ið hleypt inn í landið.
Þrátt fyrir líflega viku hafa
litlar breytingar orðið á fylgi
flokkanna samkvæmt skoðana-
könnunum. Dagblaðið The Guard-
ian birti í gær könnun þar sem
Verkamannaflokkurinn hafði
bætt við sig dálitlu fylgi, fengi 39
prósent atkvæða ef gengið yrði til
kosninga nú. Íhaldsmenn tapa
aftur á móti örlitlu fylgi, fengju
33 prósent atkvæða, en frjálslynd-
ir demókratar standa hins vegar í
stað, fengju 21 prósent atkvæða
ef kosið yrði nú.
sveinng@frettabladid.is
ALÞINGI Í utandagskrárumræðum
um framkvæmdir á Kárahnjúk-
um í gær spurði Steingrímur J.
Sigfússon Valgerði Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra hvort Lands-
virkjun væri treystandi til að
halda byggingu Kárahnjúka-
stíflu áfram í ljósi þess sem fram
hefði komið um óvandaðan und-
irbúning framkvæmdarinnar,
meðal annars þess að samkvæmt
nýrri skýrslu væru gerðar aukn-
ar kröfur til stíflunnar um jarð-
skjálftaþol. Þá sagði Steingrímur
að erfiðleikar við framkvæmd-
ina, þar sem undirstaðan væri
mun sprungnari en gert hefði
verið ráð fyrir, hefðu tafið verk-
ið um mánuði og valdið milljarða
viðbótarkostnaði.
Sigurður Arnalds, talsmaður
Kárahnjúkavirkjunar, segir við-
bótarkostnað vegna þessara
auknu krafna vera um 150 millj-
ónir, bæði vegna hönnunar og
framkvæmda. Hins vegar hafi um
áramót verið gerður sérstakur
samningur við Impregilo, þar sem
gerðar hafi verið upp allar breyt-
ingar á verkinu fram að þeim
tíma. Þar sé með talinn aukinn
kostnaður vegna gljúfursins,
auknar öryggisgirðingar og varn-
ir og tafir sem hafi orðið vegna
flóða. Ekki er gefið upp um hvaða
fjárhæð er að ræða, en það rúm-
ast innan varasjóðs sem gert var
ráð fyrir vegna ófyrirséðs kostn-
aðar, sem er 10 prósent af áætluð-
um byggingakostnaði. Virkjunin á
að kosta 90 milljarða á verðlagi
2005. - ss
MEÐ FRUMBURÐINN Í FANGINU
Charles Kennedy og Sarah kona hans eignuðust sitt fyrsta barn í vikunni. Sonur þeirra
hefur hlotið nafnið Donald James.
ERIC
RUDOLPH
LÓÐASKORTUR Í BORGINNI
Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag-
ið og hefur því áhrif á lóðaverð með því að
stuðla að eða draga úr framboði á lóðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Steingrímur J. Sigfússon:
Vantreystir Landsvirkjun
ER LANDSVIRKJUN TREYSTANDI?
„Það hefur gætt ískyggilegrar tilhneigingar
til skoðanakúgunar og til að tortryggja alla
þá, þar með talið jafnvel virtustu, vísinda-
menn sem ekki makka rétt með stóriðju-
rétttrúnaðarstefnunni,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon á Alþingi í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P