Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 12
BLÓM OG KRANSAR
Jarðarför Rainiers heitins Mónakófursta fer
fram í dag en blóm og kransar hafa
streymt til dómkirkjunnar í Mónakó alla
vikuna.
12 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Afnám fyrninga vegna kynferðisafbrota gegn börnum:
Tæp tíu þúsund
skora á stjórnvöld
ALÞINGI Tæplega tíu þúsund manns
hafa undirritað áskorun til stjórn-
valda um afnám fyrninga sakar
þegar kynferðisbrot er framið
gagnvart barni undir 14 ára aldri,
að sögn Svövu Björnsdóttur verk-
efnisstjóra hjá Blátt Áfram sem er
forvarnarverkefniÝgegn kynferð-
islegu ofbeldi á börnum. Verkefnið
er á vegum Ungmennafélags Ís-
lands.
Svava sagði, að fyrir nokkru
hefðu um 2.700 undirskriftir um af-
nám fyrninga verið afhentar
Bjarna Benediktssyni formanni
allsherjarnefndar Alþingis. Þær
7.000 undirskriftir til viðbótar sem
safnast hefðu einungis í síðustu
viku yrðu einnig afhentar allsherj-
arnefnd. Að auki yrði áskorunin
send öllum alþingismönnum.
„Þessi undirskriftarsöfnun mun
halda áfram af fullum krafti,“
sagði Svava.
Fundur um afnám fyrningar
sem haldinn var í fyrrakvöld var
mjög vel sóttur, að sögn Ágústs
Ólafs Ágústssonar alþingismanns,
en hann er fyrsti flutningsmaður
frumvarpsins um ofangreinda
breytingu á hegningarlögum. Hann
sagði mikilvægt að náðst hefði
þverpólitísk samstaða ungliða-
hreyfinganna um málið. -jss
Tölvupóstur
verði dulkóðaður
Til skoðunar er að dulkóða tölvupóst á milli
starfsmanna ráðuneytanna til að koma í veg fyrir
að viðkvæm mál berist til óviðkomandi.
TÖLVUSAMSKIPTI Forsætisráðuneytið
íhugar að dulkóða tölvupóst vegna
hættu á að hann lendi í röngum
höndum. Fram kom í Fréttablaðinu í
gær að dæmi væru um að tölvupóst-
ur sem innihéldi viðkvæmar trún-
aðarupplýsingar, og ætlaður væri
utanríkisráðuneytinu, bærist fyrir
misskilning sendenda í hendur Láru
Stefánsdóttur, varaþingmanns Sam-
fylkingarinnar.
Fyrirtæki í eigu Láru átti lénið
utn.is og það var stillt þannig að all-
ur póstur sem sendur var á netföng
sem enda á @utn.is barst í pósthólf
Láru og gilti þá einu hver fyrri hluti
netfangsins var. Netföng starfs-
fólks utanríkisráðuneytisins enda á
@utn.stjr.is og Lára segir dæmi þess
að hún hafi fengið send mjög
viðkvæm mál, jafnvel erindi er
varðað hafa öryggi landsins.
Þrátt fyrir að Lára léti ráðuneyt-
ið vita af þessum netfangaruglingi
strax árið 2001 var það ekki fyrr en
í gær sem ráðuneytið gekk frá
samkomulagi við Láru um kaup á
léninu; eftir að Fréttablaðið bar
fréttina undir Illuga Gunnarsson,
aðstoðarmann untanríkisráðherra.
Alls heyra fjórtán ráðuneyti
undir stjórnarráð Íslands og í net-
föngum allra starfsmanna ráð-
uneytanna, nema umhverfisráðu-
neytisins og Hagstofunnar, kemur
fyrir þriggja stafa skammstöfun
sem sýnir í hvaða ráðuneyti við-
komandi starfar. Netföng starfs-
manna forsætisráðuneytisins enda
þannig á @for.stjr.is og netföng
starfsmanna samgönguráðuneyt-
isins enda á @sam.stjr.is.
Sex ráðuneyti hafa keypt
íslensku lénin þar sem þriggja stafa
skammstöfun og kennileiti ráðu-
neytanna koma fyrir. Þannig á
menntamálaráðuneytið mrn.is og
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið á
ivr.is. Í fjórum tilfellum eru lénin í
eigu óskyldra aðila og tveimur
lénanna er óráðstafað.
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrif-
stofustjóri upplýsingasamfélagsins
sem heyrir undir forsætisráðu-
neytið, segir að út frá öryggis-
sjónarmiði sé lausnin ekki að kaupa
ný og ný lén til að koma í veg fyrir
misskilning.
„Við munum skoða þetta mál af
þessu gefna tilefni en lausnin til
lengri tíma litið er fólgin í að hægt
verði að dulkóða tölvupóstinn. Það
er auðvelt að koma því á innan
ríkiskerfisins en kannski lengra í að
það verði almennt í þjóðfélaginu.
Öll umræða vekur menn til um-
hugsunar og ýtir á eftir verkefnum
og því er vel hugsanlegt að þetta
mál verði til að flýta því,“ segir
Guðbjörg. kk@frettabladid.is
Hvalfjarðargöng:
Lokuð á
morgun
HVALFJARÐARGÖNG Vegna almanna-
varnaæfinga verða Hvalfjarðar-
göngin lokuð á morgun frá
klukkan átta til þrjú síðdegis.
Ökumenn á þjóðvegi eitt munu
því þurfa að aka gömlu leiðina
um Hvalfjörðinn en sá vegur er
í ágætu standi.
Æfingin snýst um að æfa við-
brögð við hópslysi þar sem ætl-
unin er að sviðsetja árekstur
rútu og tveggja fólksbíla neðst í
göngunum. Ætla má að allt að
200 manns taki þátt í æfingunni,
sem er sú fyrsta sinnar tegund-
ar í veggöngum hérlendis.
- áhi
Negroponte:
Yfirheyrður
af þingnefnd
WASHINGTON, AP Nefnd öldungar-
deildarþingmanna hefur hafið yfir-
heyrslur yfir John
Negroponte, sendi-
herra í Írak, en
George W. Bush for-
seti hefur tilnefnt
hann sem yfirmann
yfir leyniþjónustu-
stofnunum Banda-
ríkjanna.
Búist er við að
öldungardeildarþingmenn beggja
flokkanna muni á endanum styðja
Negroponte í embættið en demó-
kratar vilja þó að hann lýsi því yfir
að hann verði hlutlaus og óháður í
störfum sínum. Yfirmannsstaðan er
ný en með henni er brugðist við
gagnrýni á leyniþjónustuna í kjölfar
rangra upplýsinga um gereyðingar-
vopn Íraka. ■
JOHN
NEGROPONTE
Baráttumál í höfn hjá SÍNE:
Yfirdráttarlán
í erlendri mynt
NÁMSMENN „Þetta er nokkuð sem
við höfum barist fyrir í einhvern
tíma, að afnema
gengisáhættu ,“
segir Heiður
R e y n i s d ó t t i r ,
f r a m k v æ m d a -
stjóri Samtaka ís-
lenskra náms-
manna erlendis
(SÍNE) um þá ný-
breytni Spari-
sjóðs vélstjóra að
bjóða námsmönnum erlendis upp
á yfirdráttarlán í erlendri mynt.
„Við sendum bréf til allra
banka í byrjun árs og spurðum
hvort hægt væri að bjóða upp á
yfirdrátt í erlendri mynt. Spari-
sjóður vélstjóra brást skjótt við
og er farinn að bjóða þessa þjón-
ustu. Þetta er mikið framfara-
skref og ætti að koma í veg fyrir,
eins og þróunin hefur verið, stór-
fellt gengistap.“
Heiður segir nema erlendis
hafa tapað á því að undanförnu
að vegna styrkingu krónunnar
hafi lán LÍN verið lægra í ís-
lenskum krónum en reiknað
hafði verið með að hausti.
„Námsmaður getur því ekki
hreinsað upp yfirdráttinn. Með
þessu skiptir gengi krónunnar
engu máli fyrir námsmanninn og
við hljótum að eiga eftir að sjá
fleiri banka og sparisjóði fara
sömu leið.“ – ss
Verðstríð Krónunnar og Bónuss:
Kostar hundruð milljóna
MATVÖRUMARKAÐURINN Verðstríðið
á matvörumarkaði hefur fram að
þessu kostað nokkur hundruð
milljóna króna í heildina, varlega
áætlað. Forsvarsmenn Krónunnar
og Bónuss segja að verðstríðið sé
enn í fullum gangi og verðið mjög
lágt þó að „bullið“ sé úr sögunni.
Sigurður Arnar Sigurðsson, for-
stjóri Kaupáss, segir að um 500 til
1.000 verðbreytingar eigi sér stað
hjá Krónunni á dag. Krónan hafi
ætlað sér að vera valkostur á lág-
vörumarkaði og það hafi tekist.
Hann vill ekkert segja um það
hvað verðstríðið svokallaða hafi
kostað Krónuna. „Það er verið að
selja ákveðnar vörur undir kostn-
aðarverði og það er dýrt,“ segir
hann.
Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss, segir
að erfitt sé að henda reiður á því
hvað verðstríðið hafi kostað fyrir-
tækin en í rauninni sé verið að
framleiða tap. Það sé engin skyn-
semi í því að selja vörur langt
undir heildsöluverði. - ghs
FYRNINGAFUNDUR
Almennur fundur um afnám fyrninga sakar
í kynferðsibrotamálum gegn börnum var
vel sóttur og kom fram mikill stuðningur
við frumvarp þess efnis.
HEIÐUR
REYNISDÓTTIR
M
YN
D
/A
P
RÍKISSTJÓRNIN
Nú er í deiglunni að allur tölvupóstur til ráðherra og starfsmanna ráðuneyta verði dulkóð-
aður eftir að upp komst að viðkvæmar upplýsingar höfðu oft borist í rangar hendur.