Fréttablaðið - 15.04.2005, Síða 18
Salome Þorkelsdóttir vítti aldrei
menn í forsetatíð sinni en beitti þess
í stað mildari aðferðum til að hafa
hemil á orðljótum þingmönnum.
„Ég benti mönnum heldur á að gæta
orða sinna,“ segir Salome en viður-
kennir að í eitt skipti hefði mátt
beita vítum. „Það kom upp eitt al-
varlegt atvik sem orkaði tvímælis
um hvort ég hefði ekki átt að nota
þetta sterka orð; vítur.“
Tilvikið sem Salome vitnar til er
brigsl Ólafs Ragnars Grímssonar
um „skítlegt eðli“ Davíðs Oddsson-
ar í febrúar 1992.
Salome lét duga að biðja Ólaf að
gæta orða sinna. „Ég var gagnrýnd
fyrir að víta hann ekki og það var í
sjálfu sér ekki óeðlilegt. En þetta er
mjög vandmeðfarið ákvæði.“
Salome vill ekki leggja mat á
hvort rétt hafi verið af Halldóri
Blöndal að víta Lúðvík Bergvinsson
á miðvikudag en efast ekki um rétt
hans til þess. „Ég tók nú líka eftir
því að þingmaðurinn ávarpaði for-
setann í annarri persónu en veit
ekki hvort forseti heyrði það. Þing-
maðurinn sagði „þú“, en það á hann
alls ekki að gera.“
Salome er annt um virðingu og
orðspor Alþingis og vill að þing-
menn leggi sig fram um að halda
reglur þess í heiðri. „Þetta er æðsta
og virðulegasta stofnun þjóðarinnar
þannig að fólk þarf að haga sér vel.“ SALOME ÞORKELSDÓTTIR
18 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Gula spjaldið á loft
Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, hefur í þrígang
á þremur árum vítt þing-
menn. Þegar Halldór
greip fyrst til gula
spjaldsins hafði það legið
óhreyft í 45 ár.
„Virðulegi forseti, ég hef hér
orðið,“ sagði Lúðvík Bergvinsson,
þingmaður Samfylkingarinnar, í
umræðum um störf Alþingis á
miðvikudag. Þetta var meira en
góðu hófi gegndi að mati Halldórs
Blöndal þingforseta, sem vítti
þingmanninn.
Þingvítur voru fáheyrðar og
aðeins að finna í sögubókum fram
til ársins 2002, þegar Halldór
Blöndal vítti Ögmund Jónasson,
Vinstri grænum, fyrir að segja:
„Það þekkir hann alla vega, hátt-
vísina, hæstvirtur forseti“. Hall-
dór var hvattur af framsóknar-
þingmönnunum Magnúsi Stefáns-
syni og Valgerði Sverrisdóttur til
að víta Ögmund og tók hann þau á
orðinu.
Ári síðar, í febrúar 2003, sagði
Lúðvík Bergvinsson: „Virðulegur
forseti ætti heldur ekki að mis-
nota stöðu sína í forsetastóli“.
Starfslok fyrrverandi forstjóra
Símans voru til umræðu og kallaði
Lúðvík orð sín úr sæti sínu, líkt og
Ögmundur gerði ári áður. Á mið-
vikudag stóð Lúðvík hins vegar í
pontu.
Eldri þingvítur voru rifjaðar
upp þegar vítaskeiðið hið síðara
hófst í febrúar 2002. Lögðust fróð-
ir menn og minnugir yfir söguna
og fundu þrjú tilvik um og upp úr
miðri síðustu öld. Árið 1950 var
Magnús Kjartansson varaþing-
maður Sósíalistaflokksins víttur
fyrir meiðandi ummæli, Páll
Zóphóníasson þingmaður Fram-
sóknarflokksins var víttur 1953
fyrir að blóta í ræðu og 1957 var
Sigurður Bjarnason Sjálfstæðis-
flokki víttur fyrir að rægja fram-
sóknarmenn.
Í fundarsköpum flestra sveit-
arfélaga landsins er svo að segja
samhljóða ákvæði þar sem kveðið
er á um vítur líkt og í þingsköpum
Alþingis. Eftir því sem næst verð-
ur komist hefur ákvæðinu ekki
verið beitt á þeim bæjum.
bjorn@frettabladid.is
– hefur þú séð DV í dag?
TAPAÐI EINNI
MILLJÓN Á IDOL
VILL AÐ
SVEITAR-
FÉLAGIÐ
BÆTI SÉR
TAPIÐ
EITT SÍMANÚMER
UM LAND ALLT
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
ALGENGT VERÐ Á HJÓLBÖRUM MEÐ
100 LÍTRA BLIKKBALA ER UM 5.500
KRÓNUR.
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
„Það er allt gott að frétta,“ segir
Sigrún Bender fegurðardrottning.
Sigrún krýnir arftaka sinn í keppninni
Ungfrú Reykjavík í kvöld og var í
óðaönn að undirbúa kvöldið. „Það er
svo sem ekki mikið verk; aðallega
punta sig, fara í klippingu og bera á
sig brúnkukrem.“
Sigrún segir að undanfarið ár hafi
verið afar annasamt og mikil upplif-
un sem hún hefði ekki viljað fara á
mis við. Meðfram því að vera fegurð-
ardrottning er Sigrún í flugnámi sem
gengur vel. „Prófin fara einmitt að
nálgast. Ég stefni á að ljúka náminu
næstu jól og þá er stefnan sett á að
fá sér vinnu sem fyrst.“ Hún er ekki
búin að ráðstafa sumarfríinu, þar
sem prófum lýkur ekki fyrr en í júlí.
„Ég hef augun opin fyrir vinnu. Ég
hef yfirleitt bara verið að vinna á
sumrin, enda þarf maður að borga
námið einhvern veginn.“ Undanfarin
sumur hefur Sigrún unnið fyrir Ninu
Ricci-umboðið og finnst ekki ólíklegt
að hún verði þar líka í sumar. „Ég
gæti alveg hugsað mér að vera þar í
sumar. Þetta er mjög skemmtilegur
vinnustaður.“
Sigrún telur að keppnin í kvöld eigi
eftir að verða spennandi og erfitt sé
að spá um hver vinni. „Ég ætla að
minnsta kosti ekki að gefa það upp
að svo stöddu hverja ég veðja á. En
ég er mjög spennt að sjá hver vinn-
ur.“
Krýnir arftakann og býr sig undir próf
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGRÚN BENDER FEGURÐARDROTTNING
MORGUNVERÐUR Kínverski pandabjörn-
inn Zhu Zhu fær sér í svanginn.
Salome Þorkelsdóttir var forseti Alþingis 1991-1995:
Skítlega eðlið ekki vítt
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
HALLDÓR BLÖNDAL Hefur þrisvar vítt þingmenn á þremur árum.
HINIR VÍTTU: Lúðvík Ögmundur Sigurður Páll Magnús
M
YN
D
A
P