Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 23

Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er föstudagur 15. apríl, 105. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 5.55 13.28 21.02 AKUREYRI 5.33 13.12 20.54 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður var settur út af sakramentinu eftir að hann eldaði fyrstu máltíðina handa konunni sinni. Nú er hann tekinn til við eldamennskuna á ný. „Já, hún dró þá ályktun eftir þessa máltíð að hún væri betur til þess fallin að elda. Ég skil reyndar ekki alveg af hverju, ég man ekki betur en þetta væri prýðismatur hjá mér,“ segir Guðlaugur og hlær. „Þetta hefur hins vegar þróast þannig að ég tek virkari þátt nú og hef mjög gaman af.“ Guðlaugur segir sinn helsta galla í eldhús- inu hvað hann sé lengi að nostra við matinn. „Ef ég væri með veitingastað tækist mér ekki að þjónusta marga viðskiptavini í einu.“ Eiginkona Guðlaugs er Ágústa Johnson íþóttakennari, sem er mjög meðvituð um mataræði og hreyfingu. Guðlaugur viður- kennir að það hafi haft áhrif á sig. „Hún segist muna þegar ég pantaði mér hamborgara að ég bað alltaf um að græna draslið væri tekið af. Ég geri það ekki lengur.“ Guðlaugur segist finna mikinn mun á sér eftir að mataræðið batnaði, hann sé miklu frískari og þurfi minni svefn. „Ég finn til dæmis alltaf hvað ég verð þungur ef ég borða mikinn sykur og ef ég slæ slöku við í líkams- ræktinni hneigist ég til að borða óhollari mat. Það er eins og líkaminn kalli á hollan mat þegar maður hreyfir sig reglulega.“ Uppáhaldsmatur Guðlaugs er annars veg- ar sushi og hins vegar hreindýrakjöt. „Við erum orðin hálfgerð sushi-“frík“. „Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum árum að ég yrði húkkaður á hráum fiski hefði ég sagt viðkom- andi að leita sér hjálpar. Hinn uppáhaldsmat- urinn minn er hreindýr. Ég fer á hverju ári með pabba á hreindýraveiðar og það er stór- kostlegt að vera í félagsskap Hákons Aðal- steinssonar og Stefán Geirs leiðsögumanns, og eltast við hreindýrstarfa um fjöll og firn- indi. Það er toppurinn,“ segir Guðlaugur og gefur lesendum uppskrift að dýrindis hrein- dýrasteik. „Galdurinn við hreindýrið er að elda það með einföldum hætti. Þetta er slíkt gæðakjöt að það þarf enga tilgerð við elda- mennskuna.“ ■ Nostrar við matargerðina tilbod@frettabladid.is Sumardekk eru á tilboði hjá Bílkó á Smiðjuvegi 34 og þar sem sumardekkjatíminn er runninn upp eru slíkar fréttir góðar. Afslátturinn nemur í kringum 30% af þeim gerðum sem um ræðir. Gallapils og galla- buxur eru meðal þess sem verslun- in Flash á Laugavegi 54 býður nú á hálfvirði. Gallafatnaður- inn er til dæm- is á 1.990 með- an þessi „vorhrein- gerning“ stendur yfir í versluninni. Toppar, buxur og pils eru þar líka á þúsund kall. Fæðubótarefni eru nú á veru- lega lækkuðu verðin í Hreysti í Skeifunni 19 í Reykjavík. Þar má nefna 75 skammta af Myopro próteini sem nú seljast á 4.995 en voru áður á 7.000 og 20 bréf af Myoplex diet sem nú kosta samtals 4.795. Tvö þúsund króna afsláttur er líka á Rope Yoga bæklingum og spólu. Línan, húsgagnaverslun á Suðurlandsbraut 22 selur nú amerískar dýnur á dúndurtilboði. Þær eru í stærðinni 135x203 og listaverð á þeim er 63.900 en staðgreiðslu- verð á þeim nú er 44.900. Innifalið í verðinu er dýna, boxdýna og undirstöður. Guðlaugur Þór er liðtækur í eldamennskunni núorðið þó hann hafi nánast verið gerður brottrækur úr eldhúsinu fyrir nokkrum árum. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í tilboðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Þetta heitir sódavatn og er eiginlega eins á bragðið og þegar maður fær náladofa! Svaka-skódagar BLS. 5 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.