Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 24
Þeir sem versla í Nettó í Mjódd um hádegisbil eða kvöldverðarleytið veita at- hygli öllum þeim fjölda sem raðar sér upp í horninu Hjá Dóra. Þar er seldur heitur matur og hann bókstaflega rýkur út. Hvað skyldi vera í pottunum? „Við erum alltaf með sömu sex réttina sem viðskiptavinirnir ganga að vísum,“ segir Halldór Þórhallsson, veitingamaður í Mjóddinni, betur þekktur sem Dóri, og bendir á steikt lamba- læri, svínalæri með puru, rifja- steik með puru, djúpsteikta ýsu, kjúkling og kjötbollur. „Auk þess eru alltaf aðrir tveir réttir og það er mismunandi eftir dögum hvað þeir heita,“ segir hann og nefnir sem dæmi svínasnitsel, lasagna og fiskibollur. „Á föstudögum hef ég oftast hamborgarhrygg með tilheyrandi,“ tekur hann fram. Allt er þetta eldað á staðnum og þrátt fyrir að eldhúsið sé ekki stórt nýtist plássið vel. Borð eru í salnum fyrir 40-50 manns og Dóri segir margsetið við þau í hádeg- inu. „Hingað koma vinnuhópar og iðnaðarmenn í stórum stíl og svo fólk úr fyrirtækjunum í kring. Á kvöldin er þetta aðeins öðruvísi því þá er fólk að taka matinn með sér heim. Mikið er um að eldri borgarar versli hér og þeir sem búa einir, því fólki finnst ekki sniðugt að kaupa heilt lambalæri og borða það síðan í viku, heldur velur það sem passar hverju sinni.“ Dóri hefur eldað í Mjóddinni í níu ár, en var áður í Perlunni áður Viðeyjarstofu. Fyrstu tvö árin í Mjóddinni vann hann hjá öðrum en hefur rekið Hjá Dóra síðustu sjö árin og haft sama starfsfólkið allan tímann. Hann segir vinsæld- ir staðarins alltaf að aukast. „Fyrir ári hélt ég að ég hefði náð toppnum en það hefur bæst við síðan,“ segir hann. „Þetta eru svona um 400 skammtar á dag sem við afgreiðum, heldur fleiri í hádeginu en á kvöldin. Svo eru þeir enn fleiri á föstudögum. Þá geta þeir farið í 600. Fólk er upp- gefið eftir vinnuvikuna og vill eyða tíma sínum í eitthvað annað en að elda. Finnst fínt að kaupa hér eitthvað tilbúið til að taka með sér heim, henda síðan bakkanum og byrja helgina,“ segir Dóri bros- andi. gun@frettabladid.is Gúrkusalat Taktu eina gúrku og skerðu niður í litla bita. Blandaðu bitunum saman við sýrðan rjóma og saxaðan ferskan graslauk og þá er komið ferskt og gott salat með grilluðu kjöti eða fiski. [ ] Lituð handskorin kristalsglös frá Ungverjalandi í hæsta gæðaflokki. Hagstætt verð. Vaxtalausar léttgreiðslur, ef óskað er. Toppurinn á veisluborðinu Upplýsingar í síma 862 2507 Réttir kvöldsins Fordrykkur í boði hússins M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja rétta máltíð Humarsúpa kr. 850 m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði Aðalréttir Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890 m/ hvítvínssósu , grænmeti og bakaðri kartöflu Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890 m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990 m/chateaubriandsósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Eftirréttur Súkkulaðifrauð kr. 690 Borðapantanir í síma 562 1988 Veitingahúsið Madonna Rauðarárstíg 27 www.madonna.is GNOÐARVOGI 44 Opið frá 10-18:15 Nýr humar Nýlagað sushi Glæný stórlúða 990 kr. kg. Kíkt í pottana hjá Dóra Ítölsku Mastino-víninn frá Veneto verða á sérstöku tilboði næstu mán- uði í reynslubúðum ÁTVR sem svo eru nefndar; Vínbúðunum Heið- rúnu og Kringlunni. Mastino er víngarður í héraðinu Valpolicella og nefnist svæðið þar sem vínið er ræktað Classico. Vín- gerðin er í eigu hinnar frægu vín- gerðarfjölskyldu Tommasi. Mast- ino dregur nafn sitt af Mastino Della Scala, einum hinna goðsagna- kenndu fornu höfðingja Veróna. Aðalþrúgurnar í vínunum frá Mastino eru corvina, rondinella og molinera. Á næstu mánuðum verða víninn frá Mastino á sérstöku kynn- ingaverði og eru vínáhugamenn hvattir til að bera saman verð þess- ara vína við önnur sambærileg ítölsk vín. Verðlækkunin nemur allt frá 200-500 kr. og verður að segjast að leitun er að jafn hagstæðu Amarone-víni svo dæmi sé nefnt. MASTINO: ÍTÖLSK VÍN Á TILBOÐI Mastino Valpolicella: Lækkar úr 1.290 kr. í 990 kr. Mastino Ripasso: Lækkar úr 1.490 kr. í 1.290 kr. Mastino Amarone: Lækkar úr 2.990 í 2.490 kr. Dóri og hans lið hefur nóg að gera við að seðja fjöldann. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.