Fréttablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 15. apríl 2005
Smáralindin fagnar sumri
Vorútsala í flestum verslunum í tíu daga.
„Við erum að fagna sumri og
bjóða tiltölulega nýjar vorvörur á
verulegum afslætti,“ segir Jane
María Sigurðardóttir, markaðs-
fulltrúi Smáralindar, um vor-
útsöluna sem nú er hafin í versl-
unarmiðstöðinni og stendur í tíu
daga, til 24. apríl. Jane segir lang-
flestar verslanirnar í Smáralind-
inni taka þátt og bjóða sérstök til-
boð þessa daga.
„Við erum að rýma fyrir nýj-
um sumarvörum,“ segir hún. Af-
slátturinn nemur allt að 50% af
einstökum vörum og má sem
dæmi nefna Blash-boli í Jack og
Jones. 30% afsláttur er algengur
á vorútsölunni. Hann gildir til
dæmis þegar keyptir eru vasar
hjá Hirti Nielsen, silkiblóm hjá
Home Art, Oakley-buxur hjá
Optical studio og valdar herra-
skyrtur hjá Ralph Lauren. ■
Nú standa yfir svaka-
skódagar hjá versl-
uninni Outlet í Faxa-
feni 10, en hún sér-
hæfir sig í að selja
merkjavöru á lægra
verði en gerist og
gengur.
Þessa dagana er
hægt að fá skó með
allt að 75 prósenta af-
slætti en ódýrustu
skórnir eru á 990
krónur. Til dæmis er
hægt að fá hina vinsælu Adidas
Shelltoe á 2.990 krónur, Bullbox-
er-skó á 2.990 krónur, Camper-
stígvél á 7.990 krónur og Con-
verse-skó á 4.990 krónur svo eitt-
hvað sé nefnt.
Fleiri skómerki er hægt að fá á
frábæru verði eins og Nike, X-18,
Poplife, Again&again, Bronx,
Diesel, Skechers, Gola, Kickers
og Billi Bi. Einnig er hægt að fá
boli frá 990 krónum, gallabuxur
frá 2.490 krónum, peysur frá
1.490 krónum, jakka frá 2.490
krónum, jakkaföt frá 12.500 krón-
um og dragtir frá 7.990 krónum.
Svaka-skódagar
Skór eru seldir með allt að 75% afsætti í Outlet í Faxafeni.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
ÞRIÐJUDAGUR MÁNUDAGUR
SUNNUDAGURFIMMTUDAGUR
- mest lesna blað landsins -
AUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000