Fréttablaðið - 15.04.2005, Síða 37

Fréttablaðið - 15.04.2005, Síða 37
FÖSTUDAGUR 15. apríl 2005 GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217 Líttu við og kynntu þér létta, bjarta og líflega vor- og sumarlitina frá 20% afsláttur af öllum varalitum og glossum út vikuna. Allir fá sýnishorn af nýjum farða auk annara nýjunga. Þeir sem ætla að fjárfesta í nýjum glossum og varalitum fyrir sumarið ættu að kíkja við í Gullbrá í Nóatúni, en þar er veittur 20% afsláttur á þessum vörum út vikuna. Auk afsláttarins fá allir viðskiptavinir sýnis- horn af nýjum farða auk annarra nýjunga. Sumarlitirnir frá Lancóme og Helenu Rubin- stein eru sérlega léttir, bjartir og líflegir í sum- ar svo það er ekki eftir neinu að bíða. Gullbrá er í Nóatúni 17. Gloss og varalitir á tilboði Bjartir og skemmtilegir sumarlitir. Hönnun á góðu verði Rýmingarsölunni lýkur í Epal á morgun. Rýmingarsala stendur yfir í versluninni Epal og eru margvíslegar vör- ur seldar með afslætti. Þar á meðal eru sófar, sófaborð, stólar og ýms- ar Marimekko-vörur. Þá er jafnframt veittur 10% afsláttur af lömpum og gjafavöru. Verslunin Epal hefur um árabil verið þekkt fyrir að selja vönduð húsgögn eftir þekkta hönnuði og þykir leiðandi á því sviði hér- lendis. Heilmikill afsláttur er veittur á rýmingarsölunni og hægt að gera góð kaup. Tækifæri fyrir herrana Dúndurútsala í Herralagernum í bláu húsunum við Suðurlandsbraut. Öll jakkaföt eru nú á 17.980 krónur á Herralagern- um í Bláu húsunum við Suðurlandsbraut 54 og verður það að teljast kostaboð þar sem verð þeirra áður var allt að 65.000 krónur. Á Herralagernum eru föt með þekktum merkjum eins og Bellini, Sand og Boss. Útijakkar eru líka á helmingsafslætti í Herralagernum, svo og stakir jakkar og stakar bux- ur, þannig að nú er tækifæri fyrir herrana að dressa sig upp. Þessi aukaafsláttur gildir eitthvað fram í næstu viku og trúlega fram á aðra helgi, að sögn afgreiðslumanns. „Hér erum við með 20% afslátt af öllum drögtum, hvort sem um er að ræða pils og jakka eða buxur og jakka og vissulega líka ef öll þrenningin er tekin,“ segir Sigrún Vilhjálmsdóttir verslunar- stjóri. Þrátt fyrir að handagangur hafi verið í öskjunni hjá henni síðustu daga þar sem afslátturinn tók gildi á mánudag segir hún enn heilmikið úrval eftir. „Dragtirnar eru af mörgum gerðum og ég held það séu einir 15 – 20 litir,“ segir hún og sem dæmi um verð nefnir Sigrún buxnadragt sem var áður á 9.780 og fer í 7.824 á útsölunni og tekur fram að jakkinn sé fóðraður. Dragtar- dögunum lýkur á morgun. Dragtir í ótal litum Dragtardagar eru nú í Ceres og mikið um dýrðir. Verslunin er við Nýbýlaveg 12 í Kópavogi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.