Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 46

Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 46
Ekki sagði Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, neitt sérstakt standa til vegna 45 ára afmælis hans í dag. „Um helgina er árs- hátíð hjá Skýrr og má segja að maður blandi saman afmæli og árshátíð fyrirtækisins,“ sagði hann. Hreinn hefur setið í forstjóra- stól fyrirtækisins síðan Skýrr var einkavætt árið 1997. „Ég kom úr heimi banka og fjármála, en hellti mér í tölvubransann. Tíminn hefur verið fljótur að líða og í raun ótrúlegt að í haust skuli þetta vera orðin ein átta ár síðan ég byrjaði,“ sagði hann og kvað bæði hafa verið skemmti- legt og gefandi að breyta Skýrr í „aggresívt“ fyrirtæki á hörðum markaði. Að sama skapi hafa í forstjóratíð Hreins átt sér stað nokkrar breytingar á eignar- haldi fyrirtækisins. „Opin kerfi yfirtóku fyrirtækið árið 2003 og í fyrra gerðist það svo að Kögun tók yfir Opin kerfi Group og þar með Skýrr.“ Um síðustu áramót var Skýrr fært út úr Opnum kerfum Group og er því í dag eitt átta fyrirtækja sem heyra undir Kögunarsamstæðuna. „Þetta er mjög spennandi, enda Kögunargrúppan samsteypa sem veltir líklega um 20 millj- örðum og er með um þúsund starfsmenn,“ sagði Hreinn og taldi að þótt fyrirtækið starfaði vitanlega ansi sjálfstætt opnaði það ákveðna útrásarmöguleika að tilheyra stærri samsteypu. „Slagkrafturinn til að sækja fram á erlendan markað er meiri. Við erum með mörg járn í eldinum sem við teljum að gætu átt erindi á erlenda markaði, bæði hugbúnaðar- og tölvu- rekstrarverkefni ýmiss konar.“ Almennt taldi Hreinn að bjartsýni ríkti hér í upplýsinga- tækniiðnaði, líkt og á öðrum sviðum atvinnulífs um þessar mundir. „Við stöndum mjög framarlega bæði hvað varðar net- og farsímanotkun og eftir á að hyggja má segja að við höfum blessunarlega sloppið frá fjár- festingaræðinu sem var í bólunni og sölu á leyfum til reksturs þriðju kynslóðar far- símakerfa,“ sagði hann og taldi ef til vill fullgeyst hafa verið farið í að búa til bandbreidd sem ekki væri í raun þörf fyrir. „Maður verður dálítið þreyttur á þessu byltingartali. Auðvitað er þetta þróun og tækninni fleygir fram, en stundum eru menn full- fljótir að kynna nýjungar án þess að markaður sé fyrir hendi.“ Hreinn sagðist telja Skýrr vera vel staðsett fyrirtæki upp á tækniþróun framtíðar, enda fyr- irséð að fyrirtæki muni í aukn- um mæli vilja kaupa upplýsinga- tækni sem þjónustu, frekar en að sinna þeim hlutum sjálf. „Og þannig veitum við fyrirtækjum þjónustu, sjáum um hugbúnað- arkerfin, reksturinn, öryggis- málin, gagnatengingar og allt saman. En það þarf ekki að þýða að við gerum hér allt sjálf, held- ur erum við líka í samstarfi við önnur hugbúnaðarfyrirtæki,“ sagði hann og taldi bjart yfir. „Reksturinn gengur vel, kraftur- inn er mikill og ég er með gott fólk sem auðvitað er lykilatriði. Sýnin er klár og fólk veit til hvers er ætlast af því. Meðan þessir grunnþættir eru í lagi hef ég trú á að okkur gangi vel.“ ■ 26 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR JEAN-PAUL SARTRE (1905-1980) lést þennan dag. Stefnir með Skýrr á erlenda markaði TÍMAMÓT: HREINN JAKOBSSON, FORSTJÓRI SKÝRR, 45 ÁRA „Allt þarf að reikna út, nema hvernig á að lifa.“ Franski heimspekingurinn var kvaddur í franska herinn árið 1939 og starfaði þar sem veðurfræðingur. Þýskar her- sveitir handsömuðu hann árið 1940 og mátti hann dúsa níu mánuði í fangelsi. Eftir að honum var sleppt gekk hann til liðs við frönsku andspyrnuhreyfinguna. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti lýð- veldisins, er 75 ára í dag. Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn er 42 ára í dag. Skúli Helgason, náms- maður og fyrrverandi út- varpsmaður, er fertugur í dag. Ari Matthíasson leikari er 41 árs í dag. JARÐARFARIR 11.00 Þórir Ketill Valdimarsson, Selja- braut 82, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju. 13.00 Áslaug Guðlaugsdóttir, Einimel 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju. 13.00 Ingibjörg Daníelsdóttir, Flata- hrauni 16b, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.00 Ingólfur G. Gústavsson, húsa- smíðameistari, Hraunbæ 1, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 13.00 Sigrún Hulda Jónsdóttir, Reyni- hvammi 33, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju. 14.00 Guðmundur Hreinn Árnason (Bassi), Kirkjuvegi 14, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkur- kirkju. 14.00 Ragna Gestsdóttir, hjúkrunar- heimilinu Skjaldarvík, áður Linda- síðu 2, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju. 15.00 Jóhanna Loftsdóttir, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1452 Leonardo da Vinci, listamaður og vísindamaður. 1707 Leonhard Euler, stærðfræðingur. 1843 Henry James, rithöf- undur. 1858 Émile Durkheim, fé- lagsfræðingur. 1894 Bessie Smith, blús- söngkona. 1912 Kim Il-Sung, einræðis- herra Norður-Kóreu. 1938 Claudia Cardinale, leikkona. 1944 Dave Edmunds, tón- listarmaður. 1959 Emma Thompson, leikkona. 1966 Samantha Fox, söng- kona. 1968 Stacey Williams, ofurfyrirsæta. 1990 Emma Watson, leikkona. ANDLÁT Guðríður Hansdóttir, áður til heimilis á Vatnsstíg 11, Reykjavík, lést á Franciskusspítalanum í Stykkishólmi sunnudaginn 11 apríl. Snorri Jóhannesson, Garðavegi 14, Hvammstanga, lést þriðjudaginn 12. apríl. HREINN JAKOBSSON Forstjóri Skýrr á 45 ára afmæli í dag. Hann segist lítið ætla að gera með daginn enda verði nóg um hátíðarhöld á árshátíð fyrirtækisins um helgina. Á þessum degi árið 1998 lést kambódíski harðstjórinn Pol Pot, réttu nafni Saloth Sar, 73 ára að aldri. Pot stofnaði hin alræmdu skæruliðasamtök Rauðu Khmerana í frum- skógum Kambódíu á sjöunda áratugnum. Takmark þeirra var að útrýma öllum vest- rænum áhrifum í Kambódíu og setja á út- ópískt samfélag sem lifði eingöngu af akur- yrkju. Árið 1970 voru Khmerarnir þegar búnir að sölsa und- ir sig þriðjung lands í Kambódíu með aðstoð Norður- Víetnama og fimm árum seinna hertóku þeir höfuð- borgina, Pnom Penh, steyptu stjórninni og stofnuðu Alþýðulýðveldið Kampútseu. Pol Pot beið ekki boð- anna og hóf strax að rýma borgir, loka verksmiðjum og skólum og afnema einkaeign. Menntað fólk var tekið af lífi; oft var það dauðasök að ganga með gler- augu því það benti til að viðkomandi væri læs. Nauðugu viljugu var fólki smalað úr borgun- um í samyrkjubú í sveitum og frumskógum landsins. Talið er að tvær milljónir manna hafi verið teknar af lífi eða dáið í vinnubúð- um eða úr hungri á árunum 1975 til 1978. Khmerarnir höfðu átt í skærum við Víet- nama á landamærunum og árið 1979 réð- ust Víetnamar inn í Kambódíu og hertóku höfuðborgina. Pol Pot og lið hans hrökklað- ist aftur í frumskóginn en hélt skæruhernaði áfram næstu árin. Pol Pot var leiðtogi hreyfingarinnar þar til samherjar hans snerust gegn honum árið 1997, bol- uðu honum úr embætti og dæmdu í ævilangt stofu- fangelsi. Margir vonuðust til að Pot yrði framseldur svo hægt yrði að dæma hann fyrir glæpi gegn mann- kyni. Hann dó áður en af því varð. Í viðtali sem tekið var skömmu fyrir dauða hans lýsti Pol Pot því yfir að samviska hans væri hrein. POL POT ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1817 Fyrsti ameríski heyrnleys- ingjaskólinn opnar í Hart- ford í Connecticut. 1865 Andrew Johnson verður 17. forseti Bandaríkjanna eftir að Abraham Lincoln var ráðinn af dögum. 1924 Berklavarnafélag Íslands stofnað í Reykjavík. 1972 Fyrsta náttúruverndarþing- inu lýkur í Reykjavík. 1986 Fimmtán starfsmenn kjúklingasláturhússins á Hellu fluttir á sjúkrahús eft- ir að hafa andað að sér klórgufu. 1987 Seðlabankahúsið formlega tekið í notkun. 1990 Eldur kemur upp ofan á tanki Áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi. Borgar- stjóri og nokkrir þingmenn Reykjavíkur krefjast þess að verksmiðjunni verði lokað. Pol Pot deyr í stofufangelsi Tilkynningar um merkisat- burði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og systur Sigrúnar Elísabetar Ásgeirsdóttur Höfðavegi 7b, Húsavík. Enn fremur færum við öllu heilbrigðisstarfsfólki sem hefur kom- ið að málum um árabil þakkir og sérstaklega Óskari Þór Jóhanns- syni lækni á Landspítala - háskólasjúkrahúsi fyrir ómetanlegan stuðning og samfylgd. Theodór Árnason, börn, tengdabörn, barnabörn og systkin. Vegna jarðafarar Sigrúnar H. Jónsdóttur er Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. lokað frá hádegi föstudaginn 15. apríl. www.hjarta.is • 535 1800 Minningarkort 535 1825 Í tilefni af 100 ára afmæli Verzlunar- skólans á þessu ári tóku starfsmenn skólans sig til og gáfu skólanum mál- verk sem afhent var í gærmorgun með viðhöfn í Bláa sal skólans. Málverkið var málað sérstaklega af þessu tilefni af Ólöfu Kjaran Knudsen, sem einnig er kennari við skólann. Efnið tengist sögu skólans því í verkinu getur á að líta þróun grunnflata skólans frá stofnun árið 1905 til dagsins í dag. Eftir að Þorvarður Elíasson skólastjóri veitti málverkinu viðtöku var boðið upp á köku í tilefni dags- ins. Verkið var svo hengt upp fyrir framan skrifstofu skólans á þriðju hæð. ■ Færðu skólanum málverk MÁLVERK AFHJÚPAÐ Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verzlunarskólans, afhjúpaði í gær- morgun málverk Ólafar Kjaran Knudsen sem starfsmenn skólans gáfu skólanum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.