Fréttablaðið - 15.04.2005, Side 48
28 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Álfkona frekar
en landsmóðir
Fósturlandsins Freyja, fagra Vanadís.
Móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís!
Blessað sé þitt blíða bros og gullin tár.
Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár.
Þessar ljóðlínur Matthíasar Jochumssonar, Minni
kvenna, eiga einkar vel við afmælisbarnið Vigdísi
Finnbogadóttur. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir flutti
henni afmæliskveðjur Fréttablaðsins.
Mér finnst merkilegt aðvera orðin 75 ára, án þessað hafa tekið eftir því,“
segir afmælisbarn dagsins, frú
Vigdís Finnbogadóttir. „Mér
fannst dálítið púkó að verða sjö-
tug, en flott að verða 75,“ segir
hún hlæjandi og neitar því að sér
finnist hún orðin gömul. „Ég finn
til með þeim sem finnst þeir
þurfa að drepa tímann. Tíminn
líður hratt þegar maður hefur nóg
fyrir stafni og heldur huganum
opnum, og svo getur maður aldrei
lofað nógsamlega góða heilsu,
þrek og orku.“
Einkalíf forseta
Frú Vigdís er áberandi ungleg og
glæsileg, fágæt blanda heims-
borgara, bóhems og gamaldags
kvikmyndastjörnu. Blá augun
tindra af fegurð og fjöri meðan
blik þeirra leikur við mjúkbláa
tóna stofunnar við Aragötu, þar
sem Vigdís heilsaði Íslendingum
ofan af svölum sínum eitt sólríkt
júníkvöld árið 1980, þá fyrst
kvenna í heiminum sem kosin var
af þjóð sinni til að gegna hlut-
verki þjóðhöfðingja, sem hún
gegndi í sextán ár samfleytt.
„Nei, það var ekki erfitt að
hætta sem forseti, það var kom-
inn tími til þess. Í raun fylgdi því
léttir að hætta því forsetaemb-
ættið er þungt að sinna og setur
persónufrelsinu skorður,“ segir
Vigdís í einlægni.
Þegar hún er spurð hvort
mögulegt hefði verið að verða
ástfangin í forsetastól, og hvort
karlmenn hafi almennt þorað að
nálgast frú forseta, segir hún for-
seta alltaf í sjálfvald sett að stýra
einkalífi sínu.
„Ég átti fjarskalega gott einka-
líf og ól dóttur mína upp á þessum
árum án þess að menn þekktu
hana í sjón. Eitt sinn var ég spurð
hvort ég saknaði þess ekki að hafa
einhvern grúví gæja með mér, en
þessu stýrði ég eins og mér sýnd-
ist. Forseti getur orðið ástfanginn
ef hann vill, rétt eins og eftir-
maður minn hefur sannað, en ég
var heppin að eiga stóran vinar-
ann. Ég nýt þess að vera með
fólki, um leið og ég verð að eiga
sjálfa mig ein og út af fyrir mig.“
Ein af okkur
Að vera í sama herbergi og frú
Vigdís er sérkennileg upplifun,
svo björt er útgeislun hennar og
umvefjandi nærvera. Hún segir
forseta ráða því sjálfan hvort
hann sé upphafinn á stall.
„Ég vona að ég hafi aldrei
verið á stalli, því mér þykir svo
vænt um fólk. Ég óskaði þess að
fólk fyndi það vinsamlega í mér,
en ekki hið gagnstæða. Ég var
bara ein af okkur, ósköp venjuleg
manneskja sem af tilviljun var
valin í þetta starf. Vinur þeirra
sem vildu vera vinir mínir. Reiðu-
búin að halda undir horn og lyfta
með átökum, því ég er í eðli mínu
dráttarklár, tilbúin að draga eða
ýta á eftir málefnum og verkum.“
Hún segir forsetaembættið
hafa breytt sér, eins og öll lífs-
reynsla sem mótar manneskjuna.
„En af og frá að ég hafi orðið
merkilegri með mig. Þvert á móti þráði ég að vera með fólkinu og
þótti ekkert skemmtilegra, við
minni sem stærri tilefni.“
Forseti er sálusorgari
Sem fyrsti kvenforseti lýðveldis-
ins virtist frú Vigdís bera móður-
lega umhyggju fyrir landsmönn-
um. Einu sinni í viku, öll sextán
árin, var skrifstofa hennar opin
gestum og gangandi.
„Frekar vildi ég nú vera álfkona
en landsmóðir,“ segir hún brosmild
í augum. „Fólk bar upp öll möguleg
hugðarefni og maður fékk mikið að
vita um óhamingjuna í þjóðfélaginu,
en fólki þótti mikils virði að setjast
niður með forsetanum og tala um
sín mál í rólegheitum. Forseti er tví-
mælalaust sálusorgari og ég reyndi
alltaf að hjálpa þegar ég gat, en
varð auðvitað að fylgja reglum
þjóðfélagsins.“
Mannskæð snjóflóð urðu á
Vestfjörðum í forsetatíð Vigdísar,
sem fylgdi hinum látnu til grafar.
„Vilji maður einhvern tímann
vera á réttum stað og fara rétt
með hlutverk sitt hlýtur það að
vera þegar standa þarf með þjóð
sinni í slíkri raun. Til allrar ham-
ingju fór ég vestur því ég hafði
mikla þörf til að skila því til fólks-
ins hve djúpt ég fann til með því.
Og finni maður ekki réttu orðin
til að segja, þá segir maður þau
með faðmlagi í staðinn. Ég þarf
ekki að biðjast afsökunar á því að
vera ákaflega mannleg. Ég kvíði
yfirleitt fyrir og fer aldrei með
sérstaklega léttan hug út í það
sem tekur á. Skárra væri það nú
ef ég hefði ekki grátið með fólk-
inu. Það er hægt að búa til skel
utan um sig, en aldrei svo harða
að menn geti ekki grátið.“
Ögrun að standa sig
Forsetaframboð Vigdísar átti
uppruna sinn í kvennafrídegin-
um, þegar lýðnum varð ljóst að
þjóðfélagið hvíldi jafnt á öxlum
kvenna og karla. Enginn varð
meira hissa en Vigdís sjálf er hún
sá nafn sitt þar á meðal hugsan-
legra frambjóðenda í blöðum.
„Það varð að áhrifaríkri áskorun
þar sem fólk kom unnvörpum og
sagðist standa á bak við mig, færi
ég í framboð sem oddviti þess. Það
fannst mér fallegt,“ segir Vigdís og
brosir að minningunni.
„Mér var því ýtt út í þetta.
Ákvörðunin kostaði mikinn kjark
og er ég var kosin án þess að búast
við því hófst alveg nýtt skeið. Ég
hafði aldrei hugsað út í að verða
fyrsta konan í heiminum kjörin
forseti og því mikil ögrun að
standa sig. Nú gengi ekki að
hrynja niður á tröppum Alþingis
og gefast upp.“
Hún segist aldrei hafa litið á
þjóðhöfðingja, kónga og frægðar-
fólk sem hún hitti í embættinu
sem meiri stórmenni en annað
fólk.
„Litla stelpu úr Vesturbænum
dreymdi aldrei um það í alvöru að
hitta kónga og drottningar, en ég
var alltaf svo innilega velkomin
og þótti óskaplega gaman að
heimsækja þetta fólk, sem var
svo eðlilegt og indælt.“
Ómæld virðing fyrir Íslendingum
Hún segir besta veganestið
tungumálin sjö, sem hún talar
eins og infædd.
„Ég get aldrei nógsamlega tal-
að fyrir því hve mikilvæg erlend
tungumál eru þjóð eins og okkar,“
segir Vigdís, sem ein í heiminum
gegnir embætti velgjörðasendi-
herra í tungumálum Sameinuðu
þjóðanna, þar sem hún stendur
vörð um tungumál í útrýmingar-
hættu, sem teljast helmingur
þeirra 6.500 tungna sem talaðar
eru í heiminum.
„Á meðan við tölum íslensku
erum við þjóð, eilítið öðruvísi en
allir aðrir, sem gefur okkur
karakter sem við megum aldrei
týna. Við búum við þá hættu sem
er svo ríkjandi á Vesturlöndum að
peningahyggjan er upphafin á
kostnað einhvers annars. Menn
halda að þar liggi hamingjan, en
hamingjan liggur fyrst og fremst
í því að vita hver maður sjálfur
er. Ég er alltaf jafn fegin og
hreykin af því að vera Íslending-
ur. Það er litið á okkur með miklu
meiri virðingu og tillitssemi en
við vitum sjálf, enda erum við
friðsöm þjóð og eigum þá sér-
stöðu að hafa haldið tungumáli og
menningu okkar í rúm ellefu
hundruð ár. Það er borin ómæld
virðing fyrir því.“
Ræktun barna
Órjúfanleg persónu Vigdísar er
ást hennar á náttúru og gróður-
fari. Og nú er hún með nýja kenn-
ingu.
„Ég vil að við ræktum börnin
eins og við ræktum tré, með því
að hlúa að þeim, fylgjast með
þeim vaxa fögrum og laufi
prýddum, dást að þeim og leyfa
þeim að finna að kynslóðinni sem
elur þau upp er annt um þau og
framtíð þeirra. Sjálfsagi og sterk
sjálfsmynd er það besta sem við
getum gefið börnunum, því sjálf-
krafa kemur sjálfsvirðing.“
Unglingar komu oft að máli við
Vigdísi í forsetastóli og gera enn.
„Unglingar fá oft ekki nægi-
lega jákvæða athygli, eins og þeir
eru glæsilegir, vel gerðir og vel
gefnir. Það verður að leggja rækt
við þá og segja þeim hvað þeir
eru skemmtilegir.
Við höfum öll verið unglingar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
R
V
30
37
Eldvarnartæki á góðu verði
Fyrir heimilið, vinnustaðinn
og bílinn
6.350 kr.
Duftæki 2kg
með mæli og
bílfestingu
1.056 kr.
Reykskynjari 9V
3.459 kr.
Eldvarnarteppi
Rekst
rarvö
rulist
inn
er ko
minn
út
8.612 kr.
Dufttæki 6kg
með mæli og
veggfestingu
AFMÆLISBARN DAGSINS OG FYRSTI KVENFORSETI VERALDAR Frú Vigdís Finnbogadóttir er 75 ára í dag. Hún segir forsetaemb-
ættið hafa breytt sér, en síst á þann veg að hún hafi orðið merkilegri með sig. Hún hafi alltaf verið ein af okkur, venjuleg manneskja sem
af tilviljun var kosin í virðulegasta embætti lýðveldisins.