Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 50
HANDBOLTI Bikarmeistarar Stjörn-
unnar sýndu ótrúlegan karakter í
Garðabænum í gær þegar þær
fengu Íslandsmeistara ÍBV í
heimsókn í öðrum leik liðanna í
undanúrslitum Íslandsmótsins.
Stjarnan var með tapaðan leik
þegar aðeins fimm mínútur voru
eftir en heimastúlkur neituðu að
gefast upp, skoruðu fimm síðustu
mörk leiksins og tryggðu sér sig-
urinn, 24–23. Sigurmarkið skoraði
Kristín Guðmundsdóttir fjórum
sekúndum fyrir leikslok, en það
var í fyrsta og eina skiptið sem
Stjarnan var yfir í leiknum.
ÍBV alltaf skrefi á undan
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
en ÍBV var alltaf skrefi á undan
og það var vel við hæfi að það lið
leiddi með einu marki í leikhléi,
12-13. Stjarnan skoraði fyrsta
mark síðari hálfleiks, en þá komu
sex mörk í röð hjá ÍBV og Eyja-
stúlkur breyttu stöðunni úr 13-13 í
13-19.
Þá loksins rankaði meðvitund-
arlaus þjálfari Stjörnunnar, Er-
lendur Ísfeld, við sér, tók Öllu
Gokorian, sem hafði verið allt í
öllu í leik ÍBV, úr umferð og setti
ferska leikmenn í skyttustöður-
nar. Fyrir vikið kom meiri kraftur
í sóknarleik Stjörnunnar og þær
sprungu út á síðustu fimm mínút-
um leiksins. Í stöðunni 19-23 skor-
aði Hekla úr þremur vítum í röð
og síðan jafnaði Anna Blöndal úr
hraðaupphlaupi þegar tæp mínúta
var eftir. Kristín skoraði síðan
sigurmarkið eins og áður segir.
„Það er aldrei búið fyrr en það
er búið,“ sagði glaðbeittur þjálfari
Stjörnunnar, Erlendur Ísfeld, í
leikslok en hann vildi ekki meina
að Stjarnan hefði rænt sigrinum
„Við gáfumst aldrei upp. Það er
rosalegur karakter í þessu liði.
Við höfum leikið illa í úrslita-
keppninni en nú er það búið. Nú
ætlum við að leika vel og það
verður gaman að fara til Eyja.
Djöfull hlakka ég til að koma þar
aftur.“
Öruggt hjá Haukaliðinu
Haukakonur tryggðu sér sæti í
úrslitum Íslandsmótsins með
öðrum sannfærandi sigri á Val, nú
17–26 á Hlíðarenda. Haukakonur
unnu fyrri leikinn með 14
mörkum og báða leiki einvígisins
með samtals 23 marka mun.
Valsstúlkur stóðu í Haukunum
fyrstu 10 mínútur leiksins en þá
skildu leiðir ekki síst þökk sé
góðum leikkafla hjá Hörpu
Melsted sem skoraði þá fjögur
mörk í röð. Eftir var það aldrei
spurning hvar sigurinn myndi
lenda.
„Ég er ótrúlega sátt við þessi
úrslit enda var stefnan hjá okkur
að vinna þetta 2–0. Liðið beit
aðeins meira frá sér en síðast en
við hleyptum þeim aldrei inn í
leikinn og ég hafði það alltaf á
tilfinningunni að við myndum
vinna,“ sagði Harpa Melsted,
fyrirliði og besti leikmaður ásamt
Helgu Torfadóttur markverði sem
tók 26 skot eða yfir 60% þeirra
skora sem á hana komu.
henry@frettabladid.is, ÞAÞ
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16 17 18
Föstudagur
APRÍL
■ ■ LEIKIR
20.15 Tindastóll og Fjarðabyggð
mætast í Boganum í 4. riðli B-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
22.00 KS og Leiftur/Dalvík
mætast í Boganum í 4. riðli B-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
07.30 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
08.00 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
08.30 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
17.15 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
18.30 Motorworld á Sýn.
19.00 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um
Meistaradeildina í fótbolta.
19.30 Enski bikarinn á Sýn. Hitað
upp fyrir leiki helgarinnar í enska
bikarnum í fótbolta.
20.00 World Supercross á Sýn.
21.00 World Series of Poker á
Sýn.
Ótrúleg endurkoma Stjörnustúlkna
30 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
> Þvílíkt rugl …
… útsending Kýpverja frá Stjörnuleik
Evrópudeildarinnar í körfubolta í gær
var hrein hörmung frá
upphafi til enda.
Langdregin og
skipulagslaus dagskrá
var toppuð með
skelfilegri myndatöku og
óskiljanlegum sjónarhornum.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum …
… kvennaliði Stjörnunnar í
handknattleik fyrir að
sýna mikinn karakter og
gefast aldrei upp gegn
ÍBV í gær. Þær sýndu
með leik sínum að
allt er hægt í
íþróttum ef viljinn er
fyrir hendi. Það
verður gaman að
fylgjast með oddaleik
þessara liða.
Aðal frétt vikunnar
Ítalskar knattspyrnubullur enn og
aftur í sviðsljósinu
Leik Internazionale og AC Milan í átta
liða úrslitum meistaradeildar Evrópu
var flautaður af eftir að stuðnings-
menn Inter köstuðu brenndandi
blysum sem og öllu öðru lauslegu
inn á völlinn í mótmælaskyni þegar
mark liðsins var dæmt af.
Línutröllið Sigfús Sigurðsson, oft uppnefndur Rússajeppinn, er
byrjaður að leika með Magdeburg á nýjan leik eftir þrálát
bakmeiðsli. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, talaði um
það fyrr í vetur að hann saknaði Sigfúsar sárt úr vörninni og
hann er verulega ánægður með að hafa endurheimt Sigfús
úr helju en á tíma óttuðust menn að hann gæti ekki leikið
handknattleik á ný.
„Hann hefur staðið sig mjög vel í vörninni
og það munar verulega um hann þar.
Hann er sterkur, stýrir varnarleiknum
vel og lætur duglega í sér heyra. Það
er stórmunur á varnarleiknum eftir
að hann kom aftur,“ sagði Alfreð en
hann hefur aðeins notað Sigfús í
vörninni það sem af er. „Hann þarf
að koma sér í betra form áður en
hann fer í sóknina en það kem-
ur. Úthaldið er ágætt en það
tekur tíma að ná toppformi á
nýjan leik.“
Sigfús var mættur í vörnina hjá Alfreð þegar
Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitum EHF-
keppninnar með 34-32 sigri á Gummersbach
en Alfreð og félagar töpuðu fyrri leiknum 25-
24, þannig að aðeins munaði einu marki á
liðunum samanlagt. Alfreð segir baráttuna ekki
hafa verið eins jafna og hún lítur út fyrir að
vera.
„Við vorum komnir með tíu marka forystu,
28-18, á tímabili þannig að þetta var
mjög öruggt. Við vorum byrjaðir að
halda upp á sigurinn átta mínútum
fyrir leikslok, sungum með áhorf-
endunum. Ég leyfði ungu strák-
unum að spila undir lokin og
þetta var mikil stemning.
Verulega gaman,“ sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari Magdeburg.
Haukakonur komust í lokaúrslit Íslandsmóts kvenna í handbolta með 26–17 sigri á Val í gær en Stjarnan
tryggði sér oddaleik í Eyjum eftir að hafa unnið upp fjögurra marka forskot ÍBV á lokasekúndunum.
RÚSSAJEPPINN MÆTTUR TIL LEIKS Á NÝ: ALFREÐ GÍSLASON GRÍÐARLEGA SÁTTUR
Stórmunur á vörninni með Fúsa
NR. 14 - 2005 • Verð kr. 599
Ungfrúreykjavík
2005
AUKABLAÐ UM UNGFRÚ REYKJAVÍK
Vinnur þú
sólarferð!
tyggjó
fylgir!
V6
Allar stelpurnar í
máli og myndum
Miklu stærra blað!
15.-21.apríl
Besta dagsk
ráin!
Ellý Ármanns
og nýi kærastinn:
Logi Bergmann
og Inga Lind
góðir vinir:
SAMAN Í
BADMINTON SJÓÐHEIT Á
ÁRSHÁTÍÐ!
9 771025 956009
HITTI LÍTINN
SNILLING!
Davíð Örn
missti fótinn
í slysi:
Þórey
Vilhjálms:
ÓFRÍSK
OG ÁNÆGÐ!
Bara í
Evróvisjón-farinn Se
lma:
ÉG HÉLT Á
BLÓÐUGUM
FÆTINUM
GERIR LÍFIÐ SKEMMTILEGRA
!
LEIKIR GÆRDAGSINS
Evrópukeppni félagsliða
SPORTING–NEWCASTLE 4–1
0–1 Kieron Dyer (20.), 1–1 Marius Niculae (40.),
2–1 Sá Pinto (72.), 3–1 Beto (78.), 4–1
Rockemback (90.)
Sporting Lisabon frá Portúgal komst áfram 4–2
samanlagt.
ALKMAAR–VILLARREAL 1–1
1–0 Perez (8.), 1–1 Lucho (72.).
Alkmaar frá Hollandi omst áfram 3–2 samanlagt.
AUXERRE–CSKA MOSKVA 2–0
1–0 Lachuer (9.), 2–0 Kalou, víti (79.).
CSKA Moskva frá Rússlandi komst áfram 4–2
samanlagt.
PARMA–AUSTRIA VÍN 0–0
Parma frá Ítalíu komst áfram með fleiri mörkum
skoruðum á útivelli, 1–1 samanlagt.
Í undanúrslitum UEFA-bikarsins mætast Parma
og CSKA/Moskva annarsvegar og Sporting Lisbon
og Alkmaar hinsvegar. Leikirnir fara fram 28. apríl
og 5. maí og eiga lið Parma og Sporting Lissabon
fyrri leikinn í undanúrslitunum.
Átta liða úrslit Evrópukeppni félgasliða í gærkvöldi:
Sporting sló út Newcastle
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarliðið
Newcastle fór ekki í neina
frægðarför til Lissabon í Portúgal
í gær og varð að lokum að sætta
sig við 4–1 tap og það að missa af
undanúrslitaleik UEFA-bikarsins.
Þetta leit reyndar ekki illa út í
upphafi eftir að Kieron Dyer kom
Newcastle 0–1 yfir og enska liðið
fékk auk þess góð færi til að auka
muninn og bæta við 1–0 forskot
frá því í fyrri leiknum. Það tókst
ekki og Potúgalarnir jöfnuðu fyrir
hlé og skoruðu síðan þrjú mörk í
seinni hálfleik.
„Þegar við fáum á okkur fjögur
mörk þá eigum við ekki skilið að
komast áfram. Þetta leit mjög vel
út í 60 mínútur en þá sprakk þetta
hjá okkur. Þetta er mikil synd því
við áttum góða möguleika á því að
vinna þessa keppni. Nú þurfum
við að vera fljótir að rífa okkur
upp fyrir undanúrslitaleikinn í
bikarnum um helgina,“ sagði
markaskorinn Kieron Dyer eftir
leik.
Í undanúrslit keppninnar
komust auk Sporting, hollenska
liðið Alkmaar, rússneska liðið
CSKA Moskva og hið ítalska
Parma. -ooj
DHL-deild kvenna
STJARNAN–ÍBV 24–23 (12–13)
Mörk Stjörnunnar: Hekla Daðadóttir 7/4, Anna
Blöndal 4, Kristín Guðmundsdóttir 4, Kristín
Jóhanna Clausen 4/3, Ásdís Sigurðardóttir 1,
Hind Hannesdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 1,
Elzbieta Kowal 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 13/1, Helga Vala
Jónsdóttir 0.
Mörk ÍBV: Alla Gokorian 8/1, Anastasia
Patsion 6, Eva Björk Hlöðversdóttir 4/1,
Darinka Stefanovic 3, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 2.
Varin skot: Florentina Grecu 22/3.
DHL-deild kvenna
VALUR–HAUKAR 17–26 (7–12)
Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 6/3, Anna
María Guðmundsdóttir 4, Lilja Valdimarsdóttir 3,
Arna Grímsdóttir 1, Katrín Andrésdóttir 1, Hafrún
Kristjánsdóttir 1, Díana Guðjónsdóttir 1/1.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 16.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 7, Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 7/1, Ramune Pekarskyte 3,
Ragnhildur Guðmundsdóttir 3, Inga Fríða
Tryggvadóttir 2, Anna Guðrún Halldórsdóttir 2,
Martha Hermannsdóttir 2.
Varin skot: Helga Torfadóttir 26, Kristina
Matuzeviciute 1/1.
HETJA STJÖRNUNNAR Kristín Guðmundsdóttir skoraði sigurmark Stjörnunnar fjórum
sekúndum fyrir leikslok gegn ÍBV í gær og tryggði Garðabæjarliðinu oddaleik í Eyjum á
Laugardaginn. Hér brýst Kristín í gegnum Eyjavörnina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÚR LEIK Alan Shearer og félagar hans í
Newcastle gengu niðurlútir til búnings-
herbergja eftir leikinn við Sporting í
Lissabon í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP