Fréttablaðið - 15.04.2005, Síða 54
34 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Síðast þegar Moby gaf út
plötu var ég ekki mjög blíður við
hann. Sagði að það eina sem
hægt væri að nota diskinn í væri
sem glasamotta eða skotskífa
fyrir riffiláhugamenn. Núna
snýr Moby aftur með plötuna
Hotel.
Um daginn mætti Moby svo á
hverfispöbbinn minn í London,
þar sem ég vinn sem barþjónn.
Ég vissi ekki hvort ég ætti að
biðja hann afsökunar eða sparka
í sköflunginn á honum.
Ég get sagt með hreinni sam-
visku að Hotel sé betri plata en
sú síðasta. Hér leyfir hann sér að
tappa af innri tilfinningum, og
syngur nánast alla plötuna sjálf-
ur. Greinilega ákveðinn í því að
skila persónulegri plötu en áður.
Góð hugmynd en það breytir því
ekki að þessi plata er merkilega
leiðinleg.
Moby sagði í viðtali um dag-
inn að hann ætti lager af lögum
sem myndu aldrei fást gefin út
vegna þess að þau væru hrein-
lega ekki nógu góð. Miðað við
þau lög sem enduðu á þessari
plötu er ég hreinlega byrjaður að
halda að maðurinn ætti að íhuga
að skipta um starf. Lögin hljóma
eins og þau sé samin af 12 ára
krakka, og textarnir eru grynnri
en vatnsglas.
Þetta finnst mér alveg merki-
lega leiðinleg og sálarlaus tón-
list. Moby er slys í tónlistarsög-
unni og það er ótrúlegt að honum
sé ennþá leyft að gefa út plötur.
Birgir Örn Steinarsson
Úff, ekki meira!
MOBY:
HOTEL
NIÐURSTAÐA: Moby gefur út enn eina plötuna,
og hverjum er ekki sama? Merkilega sálarlaust,
ódýrt og óáhugavert. Tími Moby er liðinn.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Ragnheiður verðlaunuð
Ragnheiður Gestsdóttir, rithöf-
undur og myndlistarmaður, hlýtur
Norrænu barnabókaverðlaunin
2005 fyrir höfundarferil sinn sem
rithöfundur og myndlistarmaður,
með sérstakri áherslu á unglinga-
bókina Sverðberann sem út kom
fyrir síðustu jól.
Norrænu barnabókaverðlaunin
eru heiðursverðlaun og hafa verið
veitt frá árinu 1985, af Nordisk
skolebibliotekarforening, nor-
rænum samtökum skólasafns-
kennara, sem Félag skólasafns-
kennara á Íslandi er aðili að. Verð-
launin eru listmunur og viður-
kenningarskjal. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra mun afhenda þau miðviku-
daginn 29. júní næstkomandi á
norrænni ráðstefnu samtakanna.
Þetta er í þriðja sinn sem ís-
lenskur höfundur hlýtur Norrænu
barnabókaverðlaunin. Kristín
Steinsdóttir fékk verðlaunin árið
2003 fyrir bókina Engill í Vestur-
bænum og Guðrún Helgadóttir
árið 1992 fyrir bókina Undan ill-
gresinu.
Dómnefnd er skipuð fulltrúum
frá öllum Norðurlöndunum og
Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir,
skólasafnskennari í Langholts-
skóla, er fulltrúi Íslands. ■
RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR Hlýtur Norrænu barnabókaverðlaun fyrir Sverðberann og
höfundarferil sinn.