Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 56

Fréttablaðið - 15.04.2005, Page 56
„Þetta var skrifað fyrir 11. septem- ber,“ segir Stefán Jónsson leikstjóri um Terrorisma, leikrit eftir hina rússnesku Presnjakov-bræður sem frumsýnt verður á Nýja sviði Borg- arleikhússins í kvöld. Eins og nafnið bendir til fjallar leik- ritið um terrorisma, eða hryðju- verk, en þó ekki um sprengjuárásir og fjöldamorð af því taginu sem reglulega skjóta upp kollinum í fjöl- miðlum. „Þetta fjallar ekki um bin Laden eða IRA, en kannski eru þau alveg jafn stór, þessi hryðjuverk sem við bæði framkvæmum í prívatlífinu og látum viðgangast í umhverfi okkar án þess að gera neitt í því.“ Leikrit- ið hefst á flugvelli þar sem sprengjuhótun kemur af stað keðju- verkun og síðan er fylgst með fólki sem sogast inn í atburðarásina. Tólf leikarar leika í verkinu og eru hlutverk þeirra öll álíka stór. Dregnar eru upp myndir af fólki við ýmsar aðstæður, en smám saman átta áhorfendur sig á því að sögur þessa fólks tengjast innbyrðis. „Þessar sögur eru allar mjög hvers- dagslegar. Þær gerast á flugvelli, á vinnustað, skrifstofu, í almennings- garði og heima hjá fólki: Þetta eru allt staðir sem við könnumst við og fólk sem við könnumst við. Það sem vakir fyrir bræðrunum er ekki síst að sýna fram á keðju- verkun, hvernig hugsunin og of- beldið smitast kannski svolítið og hvernig við erum öll ábyrg. Við erum að tala svolítið um gróðursetninguna, „how to make terrorism at home“.“ Presnjakov-bræðurnir hafa notið mikillar hylli bæði í heima- landi sínu og Bretlandi þar sem verkið var fyrst tekið til sýningar í leikhúsinu Royal Court í London. Leikritið Terrorismi var frumsýnt í Moskvu árið 2002. „Það er gaman að því að bjóða leikhúsgestum upp á jafn ferskt leikrit og þetta. Oft erum við ekki svona snögg að kynna nýja höfunda.“ Leikarar í sýningunni eru Berg- ur Þór Ingólfsson, Edda Björg Eyj- ólfsdóttir, Ellert Ingimundarson, Gunnar Hansson, Hanna María Karlsdóttir, Harpa Arnardóttir, Ilm- ur Kristjánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Sveinn Geirsson og Þór Tulinius. ■ 36 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR EKKI MISSA AF… ... tónleikum Blásarasveitar Reykjavíkur í Langholtskirkju í kvöld þar sem sveitin frumflytur nýtt verk eftir Hilmar Jensson gít- arleikara. Verkið er samið fyrir blásarasveit, slagverk og raf- magnsgítar og var pantað sérstak- lega fyrir þessa tónleika. ... vortónleikum karlakórsins Fóstbræðra, sem verða í Hafnar- borg í kvöld og Langholtskirkju annað kvöld. ... sýningu Leikfélags Reykjavík- ur og Leiklistardeildar Listaháskól- ans á Draumleik eftir Strindberg á stóra sviði Borgarleikhússins. Söngnemendur Tónlistarskóla Kópavogs sýndu í gærkvöld Töfraflautu Mozarts í Salnum í Kópavogi. Aðeins tvær sýningar verða á óp- erunni, sú síðari í kvöld. Óperan hefur verið stytt nokkuð og er í þessu styttra formi orðin aðgengileg börnum. For- eldrar eru þess vegna hvattir til þess að mæta með börn sín á sýninguna. Aðgangur er ókeypis. Meðal söngvara má nefna þau Unnar Geir Unnarsson og Láru Rúnarsdóttur, sem fara með hlutverk Taminos og Taminu. Unnar Geir sló í gegn fyrir tveimur árum þegar hann fór með aðalhlutverkið í óperunni Orfeo eftir Monteverdi í uppfærslu Tónlistarskóla Kópa- vogs. Lára hefur einnig gert garðinn frægan með eigin tónleikahaldi og plötuútgáfu, þótt ekki sé það á sviði óperutónlistar. Hlutverk Næturdrottningarinnar syngur Eyrún Ósk Ingólfsdóttir, en þau Papagena og Papa- geno eru sungin af Sigríði Kristínu Helgadóttur og Ragnari Ólafssyni. Mozart samdi Töfraflautuna skömmu áður en hann lést árið 1791. Hann var þá orðinn mjög veikur og vissi að endalokin nálguðust. Kl. 20.00 Kammerkór Konunglega tónlistarháskól- ans í Stokkhólmi er staddur hér á landi og kemur fram á tónleikum í Neskirkju í kvöld. Kórinn er í fremstu röð sænskra tónlistarhópa og stjórnandi hans, pró- fessor Anders Eby, er jafnframt með meistaranámskeið hér á landi fyrir kór- stjóra. menning@frettabladid.is Töfraflautan í Kópavogi Heimatilbúin hryðjuverk ! STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT, Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 - Fáar sýningar eftir HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Aðalæfing Mi 20/4 kl 18 - UPPSELT, Frumsýning Fi 21/4 kl 14 - UPPSELT, Lau 23/4 kl 14, Su 24/4 kl 14, Su 1/5 kl 14 Su 1/5 kl 17 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN TERRORISMI e. Presnyakov bræður Frumsýning í kvöld kl 20 - UPPSELT, Mi 20/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20, Fi 5/5 kl 20 SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Su 17/4 kl. 20, Lau 23/4 Síðustu sýningar AUSA eftir Lee Hall Í samstarfi við LA. Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning - Ath: Miðaverð kr. 1.500 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Í kvöld kl 20 - UPPS., Lau 16/4 kl 20, - UPPS., Su 17/4 kl 20, - UPPS., Mi 20/4 kl. 20 - UPPS., Fi 21/4 kl 20 - UPPS., Fö 22/4 kl 20 - UPPS., Lau 23/4 kl 20 - UPPS., Su 24/4 kl 20 -UPPS., Lau 29/4 kl 20 - UPPS., Lau 30/4 kl 20 - UPPS., Su 1/5 kl 20 - UPPS., Fi 5/5 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - Aukasýningar RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds. Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS. Í kvöld kl 20, Lau 16/4 kl 20 Fö 22/4 kl 20, Lau 23/4 kl 20 AUGNABLIKIÐ FANGAÐ DANSLEIKHÚSIÐ fjögur tímabundin dansverk Fi 21/4 kl 19:09 Frumsýning Su 24/4 kl 19:09, Su 1/5 kl 19:09 Aðeins þessar 3 sýningar Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI TERRORISMI Úr leikritinu sem frumsýnt verður á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.