Fréttablaðið - 02.05.2005, Síða 31
13MÁNUDAGUR 2. maí 2005
Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar leggur til
að framkvæmdaleyfi verið veitt til endur-
bóta á Þingeyrarflugvelli.
Endurbætur á
Þingeyrarflugvelli
Framkvæmdir ekki líklegar
til að hafa umtalsverð um-
hverfisáhrif.
Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar
leggur til við bæjarstjórn að Flug-
málstjórn verði veitt fram-
kvæmdaleyfi til endurbóta á Þing-
eyrarflugvelli, en þetta kemur
fram á vefsíðu Bæjarins bestu á
Ísafirði. Um er að ræða lengingu
um 260 metra, frágang á öryggis-
svæðum og lagningu slitlags á
flugbrautina, auk þess að færa
þarf þjóðveginn sem liggur ofan
við flugbrautina að sunnanverðu.
Málið hefur verið til umfjöll-
unar í umhverfisnefnd um tíma,
meðal annars vegna efnistöku
sem nauðsynleg er vegna fram-
kvæmdarinnar. Fyrir liggur skoð-
un Skipulagsstofnunar um að
framkvæmdin sé ekki líkleg til að
hafa í för með sér umtalsverð um-
hverfisáhrif og skuli því ekki háð
mati á umhverfisáhrifum. Í af-
greiðslu umhverfisnefndar kem-
ur fram að eftirlit með efnistöku
verði í höndum tæknideildar Ísa-
fjarðarbæjar. ■
Guðmundur Ingólfsson, Þórleifur Jónsson
sem tók við styrknum fyrir hönd Atla
Seelow, Egill Guðmundsson, Pétur H. Ár-
mannsson og Guðrún Guðmundsdóttir
tóku við styrk úr minningarsjóði Guðjóns
Samúelssonar.
Styrkir úr sjóði
Guðjóns Samú-
elssonar
Fimm styrkir voru veittir.
Nýverið voru veittir fimm styrkir
úr Minningarsjóði prófessors dr.
phil. húsameistara Guðjóns Samú-
elssonar og fékk Arkitektafélag
Íslands hæsta styrkinn, að upp-
hæð 360.000 krónur, til að setja
upp sýningu á íslenskri bygging-
arlist. Samstarfshópur AÍ hlaut
350.000 kr. styrk til að koma bygg-
ingarlist inn sem kennslugrein í
grunnskólum og Byggingarlistar-
deild Listasafns Reykjavíkur fékk
250.000 kr. framhaldsstyrk til að
halda áfram að vinna skrá yfir
verk Guðjóns Samúelssonar. Auk
þessa hlutu Guðmundur Ingólfs-
son ljósmyndari og Atli Magnús
Seelow arkitekt styrki.
10 Reykjavík: Nýtt einbýlishús á einni hæð
Móvað 37: Sérlega fallegt og vel hannað hús á eftirsóttum stað.
Húsið er samkvæmt teikningu
með þremur góðum barnaher-
bergjum og stóru hjónaher-
bergi. Stór stofa með mikilli
lofthæð og stóru miðrými.
Mjög gott eldhús með góðri
borðaðstöðu. Tvö baðherbergi,
geymsla og þvottahús ásamt
tvöföldum innbyggðum bílskúr.
Gert er ráð fyrir hita í gólfum
og allar neysluvatnslagnir verða
rör í rör. Útveggir eru stein-
steyptir og múrhúðaðir í ljós-
um lit.
Annað: Húsið skilast fullbúið
að utan og fokhelt að innan og
stendur á 816 fm lóð.
101 Reykjavík: Draumahús rétt við Tjörnina
Bjarkargata 14: Hæð og ris með æðislegu útsýni.
Sameiginlegur inngangur og teppalagð-
ur gangur er upp á hæðina. Á hæðinni
er glæsilegt eldhús, parkett á gólfi, tengt
fyrir uppþvottavél, borðkrókur og stórar
suðursvalir. Tvær samliggjandi stofur
með parketti á gólfi. Frábært útsýni.
Snyrting með flísum á gólfi og hluta
veggja. Gott tölvuherbergi með parketti
á gólfi. Í risi er flísalagt hol. Þar eru
einnig tvö svefnherbergi, annað nýlega
flísalagt og hitt með góðu skápaplássi
og máluðu gólfi. Baðherbergið er upp-
runalegt en býður upp á mikla mögu-
leika.
Úti: Sameiginlegur garður í góðri rækt.
Annað: Húsið er rétt við Tjörnina.
Fasteignasala: 101 Reykjavík Stærð: 109,6 fermetrar Verð: 31,9 milljónir
Húsið er á vinsælum stað rétt við Tjörnina.
Fasteignasala: Höfði Fermetrar: 230,8 Verð: 37,5 milljónir