Fréttablaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 555 7500
®
Þakviðgerðir
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
Framsóknar-
fóbían
Vonandi hafa alþingismennmeiri burði að ávaxta pund al-
mennings en sitt eigið. Þingmenn
framsóknar og vinstrigrænna hafa
opinberað fjárhag sinn á Netinu, og
sé þar allt rétt fram talið virðist
enginn maður í þessum hópi vera
meira en rétt bjargálna – nema for-
sætisráðherrann sem erfði sirka 80
kúlur eftir foreldra sína. Engum
kemur á óvart að vinstrigrænir
skuli reynast fátækir eins og
förumunkar, hitt er stórfrétt að
framsóknarmennirnir skuli ekki
vera moldríkir eins og mafíósar.
EIGNAYFIRLIT framsóknar-
manna og sérstaklega forsætisráð-
herrans hlýtur að koma eins og
reiðarslag yfir þá sem predika að
Framsóknarflokkurinn sé ekki
miðjuflokkur í stjórnmálum heldur
dulargervi fyrir samtök samvisku-
lausra glæpamanna sem í forherð-
ingu sinni hafi komið á kvótakerf-
inu til að gera formann sinn að
milljarðamæringi, auk glæparegist-
urs sem of langt yrði upp að telja,
allt frá hvarfi Reynisstaðabræðra
til Geirfinnsmálsins.
ÝMSAR dylgjur og svívirðingar
sem framsóknarmenn hafa mátt
þola flokkast undir íslenska stjórn-
málaumræðu eins og hún verður
lágkúrulegust. En sá margslungni
spillingarvefur sem spunninn hefur
verið upp utan um Framsóknar-
flokkinn minnir nú helst á þann vef
sem vefaranir óheiðarlegu slógu í
ævintýrinu um nýju fötin keisar-
ans, að því leyti að fötin reyndust
ímyndun ein rétt eins og auðsöfnun
framsóknarþingmannanna.
ÞRÁTT FYRIR þessa viljayfirlýs-
ingu um siðferðilega endurreisn
mun framsóknarfóbían halda
áfram. Vinstri menn hafa ímugust á
Framsóknarflokknum fyrir að taka
upp sæti sem þá sjálfa dreymir um
í ríkisstjórn, og sjálfstæðismenn
eru pirraðir á því að þurfa á stuðn-
ingi framsóknar að halda. Og þessi
yfirbót dugir skammt til að öðlast
syndakvittun fyrir léttúðugt líferni.
Engu að síður er ánægjulegt að sjá
fyrstu merki iðrunar – þótt auðvit-
að hefði verið verklegra að fara í
bað en þvo sér um handarkrikana.
Því miður bendir klunnaleg gaman-
semi framsóknarþingmanna um
aðild að hrútavinafélagi og bad-
mintonhópi ekki til þess að allir á
bænum geri sér ljóst að iðrun er
alvara. Dauðans alvara.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR