Fréttablaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 63
19MÁNUDAGUR 2. maí 2005
Innifali› í 3 ára ábyrg› eru 3 fríar fljónustusko›anir, me› síum og olíuskiptum
3 ára ábyrg›
Nánari uppl‡singar á www.komatsu.is
Sterkur leikur
KRAFTVÉLAR EHF. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3509 · www.kraftvelar.is
Gjá milli réttarvit-
undar fólks og dóma
Það er merki um djúpa gjá á
milli réttarvitundar almennings
og meðferðar kynferðisbrota-
mála að 14.000 undirskriftir
skuli hafa safnast fyrir því að
fyrningar verði afnumdar í kyn-
ferðisbrotamálum gegn börnum.
Það voru þær systur Svava og
Sigríður Björnsdætur hjá Blátt
áfram sem stóðu að söfnuninni
til stuðnings frumvarpi Ágústs
Ólafs þess efnis. Þessa gjá er
nauðsynlegt að brúa og það ætti
að vera auðvelt. Enginn vill
kannast við að við eigum ekki að
gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til þess að taka á slíkum brot-
um og það skemmtilega við það
verk er að það er ekki spurning
um peninga heldur aðeins for-
gangsröðun og vilja. Þess vegna
er óskiljanlegt að slík vinna hafi
ekki þegar farið fram.
Seinast í morgun fengum við
skeyti frá systursamtökum
okkar í Danmörku þar sem þau
voru að kynna okkur nýja
aðgerðaáætlun danskra stjórn-
valda til þess að fylgja eftir eldri
áætlunum. Slík endurnýjuð áætl-
un var kynnt í Noregi sl. haust. Í
Svíþjóð var birt opinber skýrsla í
des. sl. þar sem tekið var saman
hvernig til hefði tekist eftir tíu
ár frá því kynferðisbrotakafli
sænsku laganna var endurnýjað-
ur. Allir okkar nágrannar hafa
sýnt í verki skilning sinn á alvar-
leika kynferðisbrotamála og lagt
sig fram um að bregðast við af
alvöru. Allir nema við.
Hjá Stígamótum höfum við
lagt á það megináherslu gagn-
vart ráðherrum dóms- og jafn-
réttismála að á Íslandi verði ráð-
ist í metnaðarfulla þverfaglega
vinnu til þess að semja nýjan
kynferðisbrotakafla og að samin
verði aðgerðaáætlun ríkisstjórn-
arinnar í kynferðisbrotamálum.
Félagsmálaráðherra lofaði lið-
sinni, dómsmálaráðherra hafði
færri orð um sinn skilning, en
þolinmæði okkar er á þrotum.
Bjarni Benediktsson formað-
ur allsherjarnefndar sem tók við
undirskrifalistunum f.h. þings-
ins hefði átt að taka alvarlega
þau skilaboð sem í undirskriftun-
um fólust. Við afhendinguna
sagði hann bæði góðar fréttir og
slæmar. Hann sagði að frum-
varpið nyti ekki stuðnings og
yrði væntanlega ekki samþykkt
óbreytt, en hins vegar má fagna
því að hann sagði að væntanlega
yrði undirskriftunum beint til
dómsmálaráðuneytisins þar sem
vinna ætti að aðgerðaáætlun
gegn kynferðisofbeldi.
Hjá Stígamótum höfðum við
samband við dómsmálaráðuneyt-
ið til þess að leita fregna af
þeirri vinnu sem Bjarni vitnaði í.
Þar fengust þær fréttir að þegar
aðgerðahópur nokkurra félaga-
samtaka samdi drög að aðgerða-
áætlun og afhenti stjórnvöldum,
var drögunum komið til vinnu-
hóps nokkurra ráðuneyta um
kynferðisofbeldi. Sá hópur mun
skrifa minnisblað til ráðuneyt-
anna sem gæti leitt til formlegr-
ar vinnu með þessi mál. Við fögn-
um þessum fréttum og skorum á
íslensk stjórnvöld að láta vinna
þá vinnu sem þarf til þess að við
getum kinnroðalaust borið okkur
saman við nágranna okkar og
sagt með sanni að við höfum gert
allt sem í okkar valdi stendur til
þess að vinna gegn ofbeldi. Hver
vill það ekki? ■
Hjá Stígamótum
höfum við lagt á það
megináherslu gagnvart ráð-
herrum dóms- og jafnréttis-
mála að á Íslandi verði ráð-
ist í metnaðarfulla þverfag-
lega vinnu til þess að semja
nýjan kynferðisbrotakafla
og að samin verði aðgerða-
áætlun ríkisstjórnarinnar í
kynferðisbrotamálum.
Félagsmálaráðherra lofaði
liðsinni, dómsmálaráðherra
hafði færri orð um sinn
skilning, en þolinmæði okk-
ar er á þrotum.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
TALSKONA STÍGAMÓTA
UMRÆÐAN
FYRNING
KYNFERÐISBROTA
GEGN BÖRNUM
,,
- b j ö r t o g b r o s a n d i