Fréttablaðið - 02.05.2005, Side 66
Jón Böðvarsson íslenskufræðing-
ur, sem talinn er einn helsti sér-
fræðingur Íslendinga í Njálssögu,
hélt upp á 75 ára afmæli sitt með
því að fara út að borða á Lækjar-
brekku með konu sinni um helgina.
Jón hætti öllu fyrirlestrahaldi
fyrir tveimur árum og hefur haft
það náðugt síðan. Hann segist
ekki sakna þess tiltakanlega enda
hafi ágætir menn tekið við af
honum. Sér til dægrastyttingar
rifjar hann nú upp kynni sín af
nokkrum merkilegum ævisögum
frá 17. og 18. öld. Það eru Píslar-
saga Jóns Magnússonar, Reisu-
bók Jóns Ólafssonar Indíafara og
ævisaga Jóns Steingrímssonar,
þar sem hann fléttar inn ná-
kvæmri lýsingu á Skaftáreldum.
„Ég skipti mér lítið af bókum úr
öðrum hlutum heimsins,“ segir
Jón, sem les helst fræðilegar
bækur um mannlíf og náttúru-
fræði á Íslandi.
Ferðalög standa fyrir dyrum í
sumar hjá Jóni og konu hans Guð-
rúnu Björgvinsdóttur ef allt fer að
óskum. Þau stefna á að fara til
Þýskalands og á Vestfirði, en þær
eru ófáar ferðirnar sem þau hafa
farið um Mið-Evrópu. „Við fáum
okkur bílaleigubíl, ökum án áætl-
unar og veljum okkur gististaði
þar sem við erum stödd,“ segir Jón
en hann var mikið í leiðsögn bæði
innanlands og utan og hefur farið
með tæpa 40 hópa um Evrópu. Þar
leiddi hann fólk um slóðir Íslend-
inga frá víkingatímanum.
„Ég er ánægður með mína
ævi. Ég hef verið það gæfusam-
ur að vinna við það sem ég hef
áhuga á, bæði í skólastarfi og
öðru sem ég hef tekið mér fyrir
hendur,“ segir Jón, sem var
lengst af kennari og skólameist-
ari.
Nú segist Jón vera sestur í
helgan stein og segir það vel
eiga við, því hægt sé að rekja
hugtakið til þess þegar gamlir
höfðingjar létu völd sín í hendur
sona sinna og fóru að sinna bók-
lestri í klaustrum. Til dæmis
hafi Þorvaldur Gissurarson reist
klaustur í Viðey á þrettándu öld
og sest í þann helga stein.
„Steinninn minn er heimilið
mitt,“ segir Jón að lokum. ■
22 2. maí 2005 MÁNUDAGUR
J. EDGAR HOOVER (1895-1972)
lést á þessum degi.
TÍMAMÓT: JÓN BÖÐVARSSON ÍSLENSKUFRÆÐINGUR 75 ÁRA
Rifjar upp kynni sín af
Píslarsögu og Reisubók
„Mér þykir það leitt að alríkislögreglan geti
ekkert aðhafst til að koma í veg fyrir að fólk
hafi munnmök, nema það hindri á einhvern hátt
verslun á milli ríkja.“
J. Edgar Hoover var yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar í nær hálfa
öld. Óhætt er að segja að hann hafi látið sér fátt mannlegt óviðkomandi og
sveifst hann einskis til að grennslast fyrir um einkalíf borgara.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Sigurður Grétarsson knattspyrnumaður
er 43 ára.
Cecil B. Haraldsson prestur er 62 ára.
Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður
er 42 ára.
Sigrún Inga Hrólfsdóttir listakona er 32
ára.
Garðar Thor Cortes söngvari er 31 árs.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, fyrrverandi
formaður Stúdentaráðs, er 28 ára.
ANDLÁT
Ásdís Pálsdóttir, Kópavogsbraut 61,
Kópavogi, síðast til heimilis í Sunnuhlíð,
andaðist þriðjudaginn 19. apríl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Baldur Ingvarsson, Sólbrekku 14, Húsa-
vík, lést laugardaginn 23. apríl. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
JÓN BÖÐVARSSON Ætlar að ferðast á bílaleigubíl um Þýskaland í sumar.
Á þessum degi árið 1957 dó
bandaríski öldungadeildarþing-
maðurinn Joseph McCarthy. Hann
fór fremstur í flokki í baráttunni
gegn „rauðu hættunni“; ofstækis-
fullum nornaveiðum gegn meint-
um kommúnistum í Bandaríkjun-
um á eftirstríðsárunum.
McCarthy fæddist í smábæ í
Wisconsin árið 1908. Hann barð-
ist í síðari heimsstyrjöldinni en
ákvað að gerast stjórnmálamaður
þegar hann sneri aftur heim. Eftir
eina misheppnaða tilraun vann
hann sæti á öldungadeild banda-
ríska þingsins árið 1946. Fyrstu ár
hans í embætti voru tíðindalítil
og þegar nær dró kosningum árið
1950 sárvantaði hann málefni til
að gera út á. Þó hann þekkti lítið
til málsins ákvað hann að beina
spjótum sínum að kommúnistum
í Bandaríkjunum og vakti mikla
athygli þegar hann hélt því fram
að í utanríkisráðuneytinu störf-
uðu rúmlega 200 kommúnistar.
Á næstu fjórum árum náði
„rauða hættan“ hysterískum
hæðum en fáir áttuðu sig á að
McCarthy afhjúpaði ekki einn ein-
asta kommúnista í nornaveiðum
sínum.
Árið 1954 var farið að síga á
ógæfuhliðina hjá McCarthy og
kornið sem fyllti mælinn var þegar
hann sakaði bandaríska herinn
um linkind gagnvart kommúnist-
um. Sama ár var yfirheyrslum
hans sjónvarpað og almenningur
sá ofstækisfulla hegðun hans með
eigin augum.
JOSEPH MCCARTHY
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1497 John Cabot heldur af
stað til Norður-Ameríku.
1679 Jón Ólafsson Indíafari
deyr, 86 ára.
1780 William Herschel upp-
götvar fyrsta tvístirnið.
1902 Vísindaskáldsaga kvik-
mynduð í fyrsta skipti.
1919 Ljósmæðrafélag Íslands
stofnað. Það er elsta
stéttarfélag faglærðra
kvenna.
1933 Fréttir herma að sést hafi
til Loch Ness-skrímslisins.
1952 Fyrsta farþegaþotan hef-
ur áætlunarflug milli
Lundúna og Jóhannesar-
borgar.
1970 Búrfellsvirkjun er vígð.
1992 Jón Baldvin Hannibals-
son undirritar samning
um Evrópska efnahags-
svæðið, með fyrirvara um
samþykki Alþingis.
Joseph McCarthy ber beinin
!" # $
%
#
& ' #
( )
'
*)
( "#
+"
# ,
'
% -
.(!"
$$ ( "
#
' !- '
, '
/ )*0 (
% -
# .(!" " # 11 "
' !-
& 2 ,
% ' ' "(
33 4
!" 5 ( 6 / % 0$ 2
" &
# ( (
&
7
(6 ' #
""( "
- 8( (
4&
# "( +!'
4&
9! :( ! !!
# " ;#"( !" -
8
( '
"- 4- +"( #
:( '
!
"
5 ( + !" " &
7)7
:( 1 # 1 #
+"(
4 <
# #
+"(( =
%% !' &!
9(" ># ( (
#
- ( ?
!(
.(!"
' 8 > 8# '# #
5# #
' !'
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
Auðuns Kl. Sveinbjörnssonar
svæfingarlæknis, Hlein, Álftanesi.
Ingibjörg Óskarsdóttir
Guðmundur Auðunsson Elizabeth Goldstein
Sveinbjörn Auðunsson Guðrún Elísabet Árnadóttir
Guðbjörg Auðunsdóttir Hartmann Kárason
Erna Sif Auðunsdóttir Dagur B. Agnarsson
Ósk Auðunsdóttir Hermann Sigurðsson
barnabörn og aðrir aðstandendur
FYRSTA STARFIÐ: BJARNI FELIXSON FRÉTTAMAÐUR
Seldi blöð í samkeppni við Óla blaðasala
„Ég seldi Morgunblaðið, Alþýðu-
blaðið og Tímann niðri í bæ í sam-
keppni við Óla blaðasala,“ segir
Bjarni Felixson fréttamaður um
sitt fyrsta starf. Þá var Bjarni sjö
ára að safna sér fyrir fótbolta-
skóm, en það átti hann eftir að
gera oftar en einu sinni yfir
ævina. Hann segir að auðvelt hafi
verið að komast inn í starfið.
„Maður þurfti ekki að sækja um
með neinum fyrirvara heldur fór
bara í afgreiðslu blaðanna
snemma á morgnana og sagðist
vera kominn að selja blöð,“ segir
Bjarni, sem passaði sig þó alltaf á
því að taka ekki meira en hann gat
haldið á undir hendinni enda var
blaðabunkinn þungur. „Það var
gríðarlega erfitt stundum, að
minnsta kosti fyrsta klukku-
tímann.“
Bjarni seldi blöðin í kringum
Lækjartorgið en passaði sig á því
að hafa sig ekki mikið í frammi
niðri við pósthúsið til að styggja
ekki Óla blaðasala. Einnig seldi
hann blöð í Hressingarskálanum,
þar sem hann hitti oft fyrir mikla
andans menn eins og Tómas Guð-
mundsson.
Þegar Bjarni lítur til baka
segist hann hafa lært heilmikið á
blaðasölunni sem nýttist honum
síðar. Þegar hann hóf að starfa
sem sendill hjá Vélsmiðjunni
Hamri var hann þegar málkunn-
ugur ýmsum mönnum sem settu
svip sinn á bæinn á þeim tíma.
„Eftir á að hyggja var gaman að
þessu, þó það hafi ekki verið það
meðan á því stóð,“ segir Bjarni,
sem er ekki viss um að hann hafi
náð að safna sér fyrir fótbolta-
skónum þau tvö sumur sem hann
starfaði sem blaðasali.
- sgi
Gils Guðmundsson, fyrrv. alþingismað-
ur og rithöfundur, lést föstudaginn 29.
apríl.
Jónas Kristján Einarsson frá Hjalteyri
lést í Noregi fimmtudaginn 14. apríl.
Útförin hefur farið fram.
Lilla Moss (Ragnhildur E. Hjaltested)
lést í Bandaríkjunum 16. apríl.
JARÐARFARIR
14.00 Guðmundur Sæmundsson,
Víkurbraut 30, Hornafirði, verður
jarðsunginn frá Hafnarkirkju.
15.00 Hjálmar S. Helgason, Holtagerði
84, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Digraneskirkju.
15.00 Halldóra Auður Jónsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Langholtskirkju.
15.00 Svavar Gíslason vörubílstjóri frá
Viðey, Traðarlandi 4, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
BJARNI FELIXSON Starfaði fyrst sem
blaðasali í miðbæ Reykjavíkur, þegar hann
var sjö ára gamall.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA