Fréttablaðið - 02.05.2005, Síða 68
FÓTBOLTI Þróttur og KR tryggðu sér
sæti í úrslitaleik deildabikarsins í
gær en þá fóru fram undan-
úrslitaleikirnir í Egilshöllinni.
Þróttur vann ÍA 2–1 í fram-
lengdum leik og KR vann Breiða-
blik, 3–0, í seinni leik kvöldsins.
Það stefndi allt í vítaspyrnu-
keppni í leik Þróttar og ÍA þegar
Sævar Eyjólfsson tók til sinna
ráða og skoraði sigurmarkið á 118.
mínútu leiksins. Ólafur Tryggva-
son hafði komið Þrótti yfir á 14.
mínútu en fyrirliði Skagamanna,
Gunnlaugur Jónsson, jafnaði 16
mínútum síðar. Ekkert var síðan
skorað í 88 mínútur þar til Sævar,
sem gekk til liðs við Þrótt frá
Haukum, tryggði sínum mönnum
sæti í úrslitaleik deildabikarins í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
Þróttur hefur aldrei unnið mót á
vegum KSÍ en nú eru það ná-
grannarnir úr Vesturbænum sem
standa í vegi fyrir að liðið ná
sögulegum áfanga.
KR-ingar unnu Blika 3–0 í
seinni leiknum, sem seinkaði um
rúman hálftíma vegna framleng-
ingarnar í fyrri leiknum. Blikar
komu mjög á óvart í átta liða
úrslitunum með því að slá úr
Íslandsmeistara FH í vítakeppni
en þeir réðu ekki við hið sterka lið
KR sem er komið í úrslit í fjórða
sinn í níu ára sögu keppninnar.
Sigurvin Ólafsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir KR á 31.
mínútu og ungu strákarnir Gunnar
Kristjánsson og Arnljótur Ást-
valdsson gulltryggðu síðan sæti
KR í úrslitaleiknum með tveimur
mörkum í seinni hálfleik. KR-
ingar komust þar með í úrslit
deildabikarsins annað árið í röð en
þeir töpuðu 1-2 fyrir FH í
úrslitaleiknum í fyrra. KR vann
deildabikarinn 1998 og 2001.
Valskonur fóru illa með Eyja-
stúlkur í undanúrslitaleik kvenna.
Þær Dóra Stefánsdóttir og Nína
Ósk Kristinsdóttir skoruðu báðar
tvö mörk í 8–1 sigri en Valur lék
samt án þeirra Margrétar Láru
Viðarsdóttur og Pálu Marie
Einarsdóttir, sem eru meiddar. Í
úrslitaleiknum mætir Valur KR,
sem vakti mikla athygli með því að
slá Breiðablik út í vítakeppni í
hinum undanúrslitaleiknum á
laugardaginn.
ooj@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
29 30 1 2 3 4 5
Mánudagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
15.45 Helgarsportið á RÚV.
Endurtekinn þáttur.
16.10 Ensku mörkin á RÚV.
17.15 Þrumuskot – ensku mörkin
á Skjá einum.
18.30 NBA-boltinn á Sýn.
Útsending frá leik New Jersey Nets
og Miami Heat í úrslitakeppni NBA-
deildarinnar í körfubolta.
20.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.40 Enski boltinn á Skjá einum.
Útsending frá leik WBA og Arsenal í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta sem
fram fór fyrr um kvöldið.
23.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn. Endurtekinn þáttur.
23.55 Ensku mörkin á RÚV.
Endurtekinn þáttur.
01.00 Þrumuskot – ensku mörkin
á Skjá einum. Endurtekinn þáttur.
Bara einn Kani leyfður næsta vetur
24 2. maí 2005 MÁNUDAGUR
> Við gleðjumst yfir því ...
... að fulltrúar á þingi Körfu-
knattleikssambands Íslands,
sem fram fór á Ísafirði um
helgina, hafi haft vit á því að
leyfa aðeins einn Banda-
ríkjamann í hverju liði
Intersportdeildarinnar á
komandi tímabili.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... Heiðari Helgusyni fyrir að sýna Tony
Pulis, stjóra Stoke, að íslenskir knatt-
spyrnumenn eru oft betri en enginn.
Pulis vill ekkert með íslenska leikmenn
hafa og því hefur Þórður Guðjónsson
kynnst frá fyrstu hendi í
vetur. Heiðar skoraði sitt
19. mark á tímabilinu
þegar hann tryggði
Watford 1–0 sigur á
Stoke og öruggt sæti í
deildinni.
Tveir meistarar
Vikan sem leið var glæsileg hjá
íslensku boltaíþróttamönnum í
Evrópu. Jón Arnór Stefánsson og
félagar hans í rússneska körfubolta-
liðinu Dynamo St. Pétursborg unnu
Evrópudeild FIBA á fimmtudaginn og
á laugardaginn varð Eiður Smári
Guðjohnsen enskur meistari með
Chelsea. Til hamingju!
Menn fóru missáttir af þingi Körfuknattleikssambands Íslands
um helgina. „Þetta endaði illa,“ sagði Birgir Már Bragason,
varaformaður Keflvíkinga, sem var engan veginn sáttur við að
fækkun úr tveimur erlendum leikmönnum utan EES í einn liti
dagsins ljós. „Þetta þýðir það að við förum að öllum líkind-
um ekki í Evrópukeppnina, það er ósköp ein-
falt.“
Birgir kvaðst vera mjög hissa á að tillagan
hefði verið samþykkt. „Mér fannst skrítið
að lið eins og Höttur og Þór vildu
leyfa einn Bandaríkjamann. Einnig
voru lið sem voru með flesta út-
lendinga í vetur hlynnt því að
fækka um einn.“
Er íslensk lið lögðu leið sína í Evr-
ópukeppnina hér á árum áður var oft
gripið til þess ráðs að fá lánsmann úr
öðru liði. „Það er ekki hægt lengur þar
sem menn innan FIBA eru bara skráðir
hjá einu liði. En ef það væri hægt færu menn ekkert
að lána sinn mann í þetta hvort eð er.“
Birgir sagði einnig að afar erfitt yrði að fá leikmann
til að spila eingöngu í Evrópukeppninni. „Menn tækju
það ekki í mál enda ekki hægt að segja: Spilaðu þrjá
leiki með okkur og svo búið. Það gengur ekki upp.“
Aðspurður hvort breytingin myndi auka líkurnar á
að Damon Johnson, sem er með íslenskan ríkis-
borgararétt, myndi snúa aftur til Keflavíkur taldi
Birgir það afar ólíklegt. „Hann er að fá góð laun
úti og það er náttúrlega búið að lækka launa-
þakið.
Mín spurning er: Af hverju máttu kaupa
Júgóslava en ekki Bandaríkjamann? Við erum
t.d. að spila gegn liðum í Evrópukeppninni sem
eru með fullt af Bosman-leikmönnum. Hver er
munurinn?“ sagði Birgir Már Bragason, ósáttur við
þróun mála.
Ársþing KKÍ fór fram á Ísafirði um helgina. Samþykkt var að lækka launaþak og fækka erlendum leik-
mönnum utan EES úr tveimur í einn á hvert lið. Ný stjórn var kosin til næstu tveggja ára ásamt varastjórn.
KEFLVÍKINGAR ERU ÓSÁTTIR: ÚRSKURÐUR ÁRSÞINGS KKÍ UM FÆKKUN Á LEIKMÖNNUM UTAN EES
Evrópukeppnin er líklega úr sögunni
KÖRFUBOLTI Ársþing Körfuknatt-
leikssambands Íslands fór fram á
Ísafirði um helgina og litu ýmsar
breytingar dagsins ljós. Það bar
hæst að erlendum leikmönnum
utan Evrópska efnahagssvæðisins
var fækkað úr tveimur í einn á
hvert lið. Í samræmi við það var
launaþak liðanna lækkað úr 500
þúsund krónum á mánuði í 400
þúsund krónur. Leikmaður utan
Evrópu má ekki kosta meira en
200 þúsund á mánuði, áður 300
þúsund.
Guðbjörg Norðfjörð, Hannes S.
Jónsson og Jón Halldórsson voru
kosin í stjórn næstu tveggja ára en
Hrannar Hólm, Guðjón Þorsteins-
son og Örvar Kristjánsson í vara-
stjórn.
Guðjón fékk gullmerki
Þá var Guðjón Þorsteinsson
sæmdur Gullmerki KKÍ og ÍSÍ
fyrir sín störf í þágu körfuboltans.
„Svona lítil merki eru það eina
sem þarf til að gleðja vitleysing
eins og mig. Svona klapp á bakið
gerir mann bara staðfastari í sinni
trú og starfi,“ sagði Guðjón,
kampakátur eftir þingið.
„Þetta var stórkostlegt þing
enda ekki við öðru að búast þegar
svona er haldið á Ísafirði, sjálfri
höfuðborginni,“ bætti Guðjón við
hlæjandi við blaðamann Frétta-
blaðsins eftir þingið í gær.
Að sögn Guðjóns var mætingin
á þingið framar öllum vonum.
„Það voru 63 þingfulltrúar, sem er
stórkostlegt. Fólk hefur svo mikið
talað um hversu dýrt sé að fara til
Ísafjarðar en þessir aðilar voru
greinilega ekkert á því.“
Guðjón sagði að fækkun leik-
manna utan EES væri mikið fram-
faraskref. Sjálfur átti hann ekki
von á að deildin myndi fyllast af
leikmönnum innan EES. „Ég held
einfaldlega að fólk þori það ekki.
Hingað til hefur frammistaða
Bosman-leikmanna á Íslandi verið
fremur slök. Svo má ekki gleyma
að þeir geta orðið mjög dýrir. Ég
held að þetta verði til þess að
menn fái sér betri Kana og spili
meira á eigin mannskap.“
Eins og í gamla daga
Fólk má, að mati Guðjóns, eiga
von á að staðall bandarískra leik-
manna sem rata hingað til lands
muni hækka.
„Þetta gæti orðið eins og í
gamla daga þegar menn fengu að
sjá einvígi tveggja frábærra
Bandaríkjamanna. Þá mátti sjá
menn á borð við David Bevis og
Rondey Robinson, sem leiddi af
sér öflugar rimmur leikmanna á
milli. Á þessum tíma þurftu menn
einnig að treysta betur á innlenda
leikmenn. Fólk stóð upp og klapp-
aði þegar þetta var kunngjört enda
er þetta mikið framfaraskref fyrir
íslenskan körfubolta,“ segir
Guðjón, sem er alltaf að leita
nýrra leið til að efla körfuna á
Ísafirði sem og úti um allt land.
„En svo datt okkur í hug, af því að
það eru lausir samningar varðandi
Intersportdeildina. KFÍ var að spá
í að kaupa deildina og yrði hún þá
kölluð KFÍ-deildin. Svo myndum
við afhenda bikara og öll verðlaun
sem myndu náttúrlega heita KFÍ-
bikarinn og þar fram eftir götun-
um. Þú mátt skrifa þetta, ný hug-
mynd úr smiðju Gauja.“
smari@frettabladid.is
– hefur þú séð DV í dag?
Spókaði sig í bænum fjórum árum eftir morðið
Atli Helgason dældi
bensíni og keypti ís
BARA PLÁSS FYRIR EINN Keflvíkingar hafa aðeins pláss fyrir einn Kana á næsta tímabil
eins og önnur lið í Intersportdeildinni eftir að reglum um fjölda erlendra leikmanna var
breytt á Ársþingi KKÍ um helgina. Það er því ljóst að Anthony Glover og Nick Bradford
geta ekki komið báðir aftur á næsta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1–0 FYRIR ÞRÓTT Þróttarar tryggðu sér sæti í úrslitaleik deildabikarsins í fyrsta sinn
með 2-1 sigri á Skagamönnum í framlengdum leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Undanúrslit deildabikars karla í knattspyrnu fóru fram í Egilshöllinni í gær:
Þróttur og KR komust í úrslitaleikinn