Fréttablaðið - 02.05.2005, Page 74
■ TÓNLIST
Sjaldan er ein báran stök, það á al-
veg ótrúlega vel við bresku tón-
listarsenuna. Ef ein sveit slær í
gegn reyna plötufyrirtækin hvað
þau geta til þess að finna svipaða
sveit. Einfaldlega vegna þess að
þau vita að múgurinn hér er nægi-
lega stór og þykkur á köflum til
þess að vilja meira af því sama.
Munið þið eftir Snow Patrol?
Þá gætuð þið haft gaman af þess-
ari sveit, Athlete, sem er að gera
allt vitlaust hérna í London. Tón-
listin er unnin á mjög svipaðan
hátt. Þetta er millivigtarhljóm-
sveit sem semur melódíska tónlist
eftir bresku hljómsveitarformúl-
unni. Hér er búið að gera hana ör-
lítið meira athyglisverða með
talsverði eftirvinnslu eftir að upp-
tökum lauk. Þeir eiga sæmileg-
ustu lög, sem hljóma kunnuglega,
og höfða því vel til fjöldans. Sem
dæmi má nefna lögin Half Light
(sem gæti alveg eins verið lag
með Snow Patrol) og Wires (sem
gæti alveg eins verið lag með
Coldplay). Þetta er þannig alls
ekkert slæm tónlist, en hún er
ansi langt frá því að gefa manni
gæsahúð eða skilja mann eftir
með kjálkann á stofugólfinu.
Þið sem kunnið vel að meta
vandaða breska sönglagahefð,
með smá elektrónísku skrauti,
eigið eftir að elska þessa plötu.
Grúskararnir eiga eftir að missa
áhugann eftir fyrstu 4 mínúturn-
ar.
Birgir Örn Steinarsson
Og einu sinni enn?
ATHLETE:
TOURIST
NIÐURSTAÐA: Breska sveitin Athlete tekur við
kyndlinum þar sem Snow Patrol lagði hann frá
sér. Sæmilegasta hljómsveitarpopp eftir bresku
hefðinni, sem virkar svo auðvitað sérstaklega
leiðigjarnt við ítrekaða hlustun.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
HUGSAÐU STÓRTHEIMSFRUMSÝND 29. APRÍL
SÍMI 564 0000
- allt á einum stað
Sýnd kl. 4 og 6 m/ísl. tali
Sýnd kl. 8 B.I. 14 ára
Sýnd kl. 10.30 B.I. 16 ára
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd í lúxus kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ára
Sýnd kl. 5.30
Iceland International Film Festival
SÍMI 551 9000
- allt á einum stað
Frá leikstjóra „Hero“ kemur nýtt þrekvirki; epísk
bardagamynd og ástarsaga, sem á sér engan líka og
„setur ný viðmið á mörgum sviðum kvikmyndagerðar“.
House of the Flying Daggers
- Sýnd kl. 5.50 og 10.15
SV MBL
Nýjasta mynd eins allra virtasti leikstjóri
heims Pedro Almódavar sem hefur fengið
lof gagnrýnenda og verðlaun um allan
heim. „Sterkasta mynd Almódavar í tvo
áratugi.“ (Village Voice). Í aðalhlutverki
er latneska súperstjarnan Gabriel Garcia
Bernal og Fele Martinez.
Sýnd kl. 8 og 10 B.I. 12 ára
Bad Education
- Sýnd kl. 5.50 og 8
O.H.T. Rás 2
Downfall - Sýnd kl. 6 og 9
Magnþrungið meistaraverk um síðustu dagana í
lífi Hitlers séð með augum Traudl Junge sem var
einkaritari Hitlers. Túlkun Bruno Ganz á Hitler er
stórkostleg. Ein besta stríðsmynd allra tíma.
Hotel Rwanda - Sýnd kl. 5.50, 8
og 10.15
Iceland International Film Festival
www.icelandfilmfestival.is J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
Allra síðasta tækifæri til
að sjá fjölmargar myndir.
LOKADAGUR!
Katie Holmes, sem um þessar
mundir sleikir sólina í Róm með
Tom Cruise, hefur lýst því yfir
að ekkert kynlíf verði stundað
fyrir hjónaband. Þetta hafi hún
ákveðið fyrir löngu og fetar hún
þar með í fótspor Britney
Spears, sem varð jú ólétt strax
eftir giftingu.
Holmes segist ætla að halda
fast í meydóm sinn þangað til
hún hittir þann eina rétta. „Ég er
óendanlega leiðinleg og ef karl-
maður er að leita eftir einhverju
„svæsnu“ þá er hann á röngum
stað,“ sagði hin eiturhressa
Holmes.
Það er þó ekki þar með sagt að
Tom Cruise ætli sér ekki að
reyna enda vanur að leysa óleys-
anleg verkefni. Hann pantaði
tæplega 250 þúsund króna svítu,
lét fylla hana af rósum, sendi
henni skartgripi og hún fékk auk
þess fjörutíu mismunandi gerðir
af fatnaði frá Giorgio Armani. ■
Coldplay er fyrsta breska hljóm-
sveitin sem nær nýrri smáskífu
beint inn á topp tíu vinsældalistans
í Bandaríkjunum síðan Bítlarnir
léku sama leik með lagið Hey Jude
árið 1968.
Smáskífulag Coldplay, Speed of
Sound, fór rakleiðis upp í áttunda
sætið en það verður að finna á
þriðju plötu sveitarinnar, X&Y, sem
kemur út 6. júní. Besti árangur
Coldplay í Bandaríkjunum til þessa
var með Clocks, sem náði 29. sæti
árið 2003. ■
Í sama flokki og Bítlarnir
COLDPLAY Hljómsveitin Coldplay er að gera frábæra hluti í Bandaríkjunum með nýja
lagið sitt.
Katie heldur fast í sitt
KATIE HOLMES Fylgir í fótspor Britney
Spears og ætlar ekki að stunda kynlíf fyrir
hjónaband.