Fréttablaðið - 24.05.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,90 65,20
118,71 119,29
81,44 81,90
10,93 11,00
10,03 10,09
8,87 8,92
0,60 0,60
96,41 96,99
GENGI GJALDMIÐLA 23.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
113,14 +0,03%
4 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Formaður Húseigendafélagsins:
Byggingarstjóri er ekki skrautblóm
HÚSBYGGINGAR „Sumir telja að bygg-
ingarstjóri sé nánast eins og
skrautblóm þegar kemur að bygg-
ingarframkvæmdum og hann beri
nánast enga ábyrgð. Ég tel það aug-
ljóst að byggingarstjóri ber mikla
ábyrgð og ef fram koma gallar á
húsnæði þá þarf hann að svara fyr-
ir sig. Við höfum ekki mörg
dómafordæmi en það eru að koma
upp mörg mál núna,“ segir Sigurð-
ur Helgi Guðjónsson, hæstaréttar-
lögmaður og formaður Húseig-
endafélagsins.
„Stóra vandamálið er það að til
eru verktakar sem standa sig ekki.
Þeir eru að skófla upp húsum og þá
koma oft fram gallar eins og geng-
ur og gerist þegar menn eru að
flýta sér of mikið. Ég vil gjarnan
horfa til fleiri þátta og sérstaklega
til hins opinbera byggingareftirlits.
Þar þarf að kanna hvort pottur sé
ekki brotinn. Fólk á ekki að þurfa
að annast mál af þessu tagi sjálft.
Um svona mál á að vera alveg eins
og í löggæslu almennt, lögreglan
sér um að góma glæpamennina,
ekki fólkið,“ sagði Sigurður. - hbg
Tjónflolar fá hlut sinn bættan
Tryggingafélögin eru bótaskyld ef byggingarstjórar vanrækja skyldur sínar og gerast sekir um brot í starfi.
Íbúar í fjölb‡lishúsi í Grafarholti segjast hafa or›i› fyrir tjóni sem fleir rekja til vanefnda verktakanna
sem bygg›u húsi› og byggingarstjóri ger›i ekki athugasemdir vi›.
HÚSBYGGINGAR „Tjónþolar sem
verða fyrir tjóni af völdum van-
rækslu byggingarstjóra geta sett
sig beint í samband við trygginga-
félag byggingarstjórans. Megin-
reglan er sú að tryggingin tekur á
þeim tilvikum þegar þriðji aðili
verður fyrir almennu fjártjóni
sem rekja má til þess að bygging-
arstjórinn fer ekki eftir sam-
þykktum uppdráttum, lögum og
reglugerðum,“ segir Rafn Mart-
einsson, deildarstjóri hjá VÍS.
Rafn segir það skipta mestu máli
þegar meta á fjártjón af því tagi
sem hér um ræðir að orsakasam-
band sé milli tjónsins og hátternis
þess sem valdið hefur tjóninu.
Ekki megi líta á lokaúttekt hús-
næðis sem einhvers konar vottorð
um verksmiðjuábyrgð og bygg-
ingarstjóri sé ekki þar með laus
frá sinni ábyrgð.
Íbúar fjölbýlishúss í Grafar-
holti rekja skemmdir á fimm ára
gömlu fjölbýlishúsi til vanefnda
verktaka og galla á byggingunni
og vilja tjón sitt bætt. Í Frétta-
blaðinu í gær var fjallað um mál
þeirra og þá staðreynd að ekki
hafði farið fram lokaúttekt bygg-
ingarstjóra á húsnæðinu en einn
íbúa hússins hefði óskað eftir að
slík úttekt færi fram þar sem
byggingarstjórinn hafði ekki
sjálfur óskað eftir slíkri úttekt til
byggingarfulltrúa Reykjavíkur-
borgar.
Bjarni Þór Jónsson, staðgengill
byggingarfulltrúa Reykjavíkur-
borgar, segir að starfsábyrgðar-
trygging taki strax gildi og gefið
hafi verið út byggingarleyfi. „Það
getur enginn byggingarstjóri
skráð sig á verk nema hann hafi
lögbundna tryggingu og við höf-
um upplýsingar um það frá um-
hverfisráðuneytinu hverjir hafa
slíkar tryggingar. Þannig að það
er vel fylgst með slíku,“ segir
Bjarni.
Dómskvaddur matsmaður hef-
ur nú verið fenginn til að meta
hvort rekja megi þær skemmdir
sem orðið hafa á húsinu til van-
rækslu verktakafyrirtækisins
sem annaðist bygginguna eða
byggingarstjóra. Verktakinn neit-
aði að tjá sig um málið þegar
Fréttablaðið óskaði eftir við-
brögðum hans. hjalmar@frettabladid.is
SLÆMUR DAGUR FYRIR BJÓRSVELGI Bresk-
ir pöbbar ætla að hætta að vera með
„Happy-Hour“.
Bretland:
Engin
gle›istund
LONDON, AP Breskir bjórsvelgir
eiga ekki von á góðu núna. Hópur
sem kemur fram fyrir hönd um
helmings breskra kráa hefur lýst
því yfir að nú eigi að hætta að vera
með svokallaðan „Happy-Hour“
eða gleðistundir. Þetta er gert
vegna mikils þrýstings frá stjórn-
völdum sem vilja ekki að almenn-
ingur drekki jafn mikið og gert er.
Áfram má þó bjóða bjór á hálf-
virði, en einungis ef það er gert á
ábyrgan hátt, eins og í matartil-
boði. Víða hefur það tíðkast að bar-
ir bjóði aðalsvelgjunum að borga
ákveðið verð fyrir eins mikið af öli
og þeir geta í sig látið á gleðistund-
um. Þetta þykir stuðla að óskyn-
samlegri drykkju. ■
VEÐRIÐ Í DAG
Samkeppniseftirlit:
N‡ stjórn
skipu›
SAMKEPPNISEFTIRLIT Valgerður Sverr-
isdóttir viðskiptaráðherra hefur
skipað nýja stjórn Samkeppniseftir-
litsins sem tekur til starfa sam-
kvæmt nýjum lögum 1. júlí. Sam-
kvæmt lögunum er hlutverk stjórn-
arinnar að móta áherslur í starfi og
fylgjast með starfsemi og rekstri
Samkeppniseftirlitsins. Þeir sem
skipaðir voru í stjórnina eru þau
Gylfi Magnússon dósent við HÍ,
Jóna Björk Helgadóttir aðstoðar-
maður hæstaréttardómara, og Jó-
hann R. Benediktsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli. - oá
SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON Formaður húseigendafélagsins segir mörg mál að koma
upp sem reyni á ábyrgð byggingarstjóra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÍBÚAR Í FJÖLBÝLISHÚSI Í GRAFARHOLTI TELJA HLUT SINN SKERTAN VEGNA GALLA SEM ÞEIR TELJA VERKTAKANN OG BYGGINGARSTJÓRA
BERA ÁBYRGÐ Á Húsin á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar.
Vanefndir í Hverager›i
Verktakafyrirtækið sem byggði
fjölbýlishúsið í Grafarholti hef-
ur nú verið tekið til gjaldþrota-
skipta og hefur Guðjón Ægir Sig-
urjónsson lögmaður verið skip-
aður skiptastjóri í þrotabúinu.
Fyrirtækið, sem um ræðir, mun
vera í eigu bræðra og tók annar
þeirra að sér að annast fram-
kvæmdir á skrifstofu- og íbúðar-
húsnæði í Hveragerði í eigin
nafni.
Eigendur þess húsnæðis hafa
nú látið fara fram óháða úttekt á
framkvæmdinni sem þeir telja
verulega ábótavant en verktak-
inn átti meðal annars að klæða
húsið. Hann mun ekki hafa lokið
verkinu á tilskildum tíma, fengið
frest en lauk ekki við verkið inn-
an þess frests sem hann hafði
fengið. Nú telja eigendur hússins
að verkinu sé ábótavant og hafa
haldið eftir hluta greiðslu vegna
framkvæmdarinnar og bíða þess
að fá niðurstöðu á úttektinni.
Verktakinn vildi ekki tjá sig
um málið þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann.
- hbg
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
NATO-fundur í Svíþjóð:
Svíar andvígir
a›ild a› NATO
SVÍÞJÓÐ Andstæðingum þess að Sví-
þjóð sæki um aðild að Atlantshafs-
bandalaginu fer fjölgandi.
Ný könnun sýnir að tæpur helm-
ingur sænskra kjósenda er andvíg-
ur aðild en fylgjendur eru ekki
nema 20 af hundraði og hefur fækk-
að um tvö prósentustig frá 2003.
Árlegur öryggismálafundur
NATO hófst í bænum Åre í Svíþjóð í
morgun, en hann sækja margir
helstu leiðtogar ríkja bandalagsins.
Gunnar Gunnarsson, fastafulltrúi
Íslands hjá NATO, sækir fundinn
fyrir Íslands hönd.
Miklar öryggisráðstafanir eru
gerðar vegna fundarins og verða
um 1.700 lögreglumenn til taks. ■