Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 8
8 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR BAGDAD, AP Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættis- mann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um land- ið. Mannskæðustu tilræðin voru framin í gærkvöldi í bænum Tal Afar, skammt frá borginni Mosul í norðurhluta landsins. Þá sprungu tvær sprengjur með stuttu millibili fyrir utan heimili Hassan Baktash, stjórnmálamanns frá bænum sem tengist öðrum stærsta stjórnmála- flokki Kúrda. Í það minnsta tutt- ugu manns týndu lífi og um tvær tylftir særðust alvarlega. Síðdegis í gær sprakk svo sprengja fyrir utan sjíamosku í bænum Mahmoudyia, suður af Bagdad. Tíu manns létust og þrjá- tíu manns slösuðust. Þá féllu sjö og í það minnsta áttatíu slösuðust þegar öflug bíl- sprengja sprakk fyrir utan fjölfar- inn veitingastað í Talibia-hverfinu um hádegisleytið í Bagdad í gær. Ekki er vitað hverjir voru að verki en handbragð árásarinnar ber keim af tilræðum fylgismanna Abu Musab al-Zarqawi sem hafa verið stórtækir í hryðjuverkum að und- anförnu. Menn al-Zarqawi gerðu sér hins vegar lítið fyrir í gær og skutu til bana Wael al-Rubaei, hershöfð- ingja sem hafði yfirumsjón með að uppræta skæruhernað og hryðju- verk í landinu, og bílstjóra hans. Al-Kaída-sellan í Írak sem al- Zarqawi leiðir lýsti verknaðinum á hendur sér í yfirlýsingu á netinu í gær. Þetta er í annað sinn á jafn- mörgum dögum sem íröskum emb- ættismanni er banað en í fyrradag var hátt settur starfsmaður við- skiptaráðuneytisins myrtur. Í bænum Tuz Khormato, skammt suður af Kirkuk, týndu fimm manns lífi þegar maður ók bifreið sinni hlaðinni sprengiefni að hópi fólks og sprengdi hana í loft upp. Þrettán særðust alvar- lega. Í Kirkuk dóu tveir þegar sprengjur úr sprengjuvörpu höfn- uðu á íbúðarhúsi. Meðan á öllu þessu stóð gerðu bandarískar og íraskar öryggis- sveitir rassíu í Abu Ghraib-hverf- inu í Bagdad og handtóku 300 manns sem grunaðir eru um árásir á fangelsið illræmda sem er í hverfinu, og á veginum sem liggur til alþjóðaflugvallarins í höfuð- borginni. ■ Ger›u flér dagamun og fagna›u vorinu á Flughóteli. Vi› bjó›um sannkalla›a draumadaga í maí; gistingu fylgir a›gangur a› golfvellinum í Leiru, heitur pottur og gufa og drykkur. Bóka›u gistingu og láttu drauminn rætast. E N N E M M / S ÍA / N M 16 15 1 Á FLUGHÓTELI Í MAÍ DRAUMADAGAR • Heilsulind - sána, nudd • Fyrsta flokks veitingar • Upphitu› bílageymsla • Vildarpunktar www.icehotels.isNordica I Loftlei›ir I Flughótel I Hamar I Flú›ir I Rangá I Klaustur I Héra› Sími: 444 4000 TILBO‹ Gisting eina nótt, morgunver›arhla›bor›, a›gangur a› golfvelli, heitur pottur og gufa, vínglas í pottinn. á mann alla virka daga 7.900 kr.Frá Frambo› á herb. er takmarka›. Nám sem nýtist þér! Skrifstofubraut I Er tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Kennslutími: 8:20 12:55. Kennsla hefst 24. ágúst Skrifstofubraut I Fjarnám Nú gefst fólki utan höfuðborgarsvæðisins í fyrsta sinn tækifæri til fjarnáms á skrifstofubraut I - sjá frekari upplýsingar á mk.is Framhaldsnám - Skrifstofubraut II Nú stendur einnig yfir innritun í tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Krafist er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun. Þeir nemendur sem lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi ganga fyrir um skólavist. Kennslutími: 8:20 12:55. Kennsla hefst 24. ágúst. Upplýsingar veitir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina í síma 594 4000 milli kl. 9:00 og 12:00. Netfang. ik@mk.is MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI Neytendasamtökin: Meirihluti vill afnema stimpilgjöld NEYTENDUR Tæplega 95 prósent þátttakenda í vefkönnun sem fram hefur farið á vef Neytenda- samtakanna telja að afnemi eigi stimpilgjöld og lýsa samtökin undrun yfir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi á Al- þingi í vetur. Talin er full ástæða til að ítreka að slíkt verði lagt fram að nýju næsta haust enda ófáir þingmenn lýst sig andsnúna stimpilgjöldun- um, sem fyrst og fremst koma niður á fólki sem er að festa kaup á sinni fyrstu íbúð. ■ KIRGISISTAN, AP Stjórnvöld í Kirgisistan hafa meinað flótta- mönnum frá Úsbekistan að koma inn í landið en þeir leituðu þar hælis eftir að átök brutust út í Andijan og nálægum borgum í síðustu viku. Flóttamennirnir ætla því að snúa aftur til Andijan og taka þar þátt í uppreisninni gegn stjórn Islam Karimov. Flóttamennirnir hafa haldið til í búðum Kirgisistanmegin við landamærin undanfarið en stjórn- völd í Kirgisistan virðast hafa ætlað að reka fólkið heim vegna þrýstings frá stjórnvöldum í Taskent. ■ Kraftaverk: Grafin lifandi en bjarga›ist FLÓRÍDA, CNN Átta ára stúlka fannst á lífi í endurvinnslugámi í Lake Worth í Flórída í gær. Lögreglumað- ur sá móta fyrir hönd hennar í gámnum og gróf hana því upp. Telp- an hafði verið misnotuð kynferðis- lega og ljóst að hún var skilin eftir til að deyja. Því má telja kraftaverki líkast að hún hafi fundist. Stúlkan var vel á sig komin eftir atvikum. Hún gat sagt til árás- armannsins sem var handtekinn í kjölfarið fyrir nauðgun og morðtil- raun. Hann er einungis 17 ára en engu að síður verður réttað yfir honum sem fullorðnum manni. ■ Hildarleikurinn heldur áfram Á fimmta tug Íraka bei› bana í árásum gærdagsins, flar á me›al háttsettur hershöf›ingi sem haf›i flann starfa a› uppræta hry›juverk í landinu. HARMLEIKUR Bróðir bílstjóra Wael al-Rubaei var að vonum miður sín þegar hann sá líkið af honum í Bagdad í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FLÓTTAMENN VIÐ LANDAMÆRI KIRGISIST- ANS Flóttamenn ætla aftur til Andijan til að krefjast afsagnar stjórnarinnar í Ús- bekistan. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Úsbeskir flóttamenn: Heim til a› mótmæla

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.