Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er þriðjudagur 24. maí, 144. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.44 13.25 23.07 AKUREYRI 3.04 13.09 23.18 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þing- maður fór í heilsuátak fyrir nokkrum árum og hefur breytt um lífsstíl í kjöl- farið þar sem heilsan er í fyrsta sæti. „Ég fer í leikfimi eins oft og ég get, sem er svona 4 til 5 sinnum í viku,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður að- spurð hvernig hún haldi sér í formi. Hún stundar líkamsrækt hjá Dansrækt JSB í Lágmúlanum þar sem Bára ræður ríkjum og aðeins konum er veittur aðgangur. „Stemmningin er frábær hjá Báru og það er alltaf gaman, þar hitti ég konur víða að og finnst ég þannig hafa púlsinn á samfé- laginu,“ segir Ásta Ragnheiður. „Oftast sæki ég leikfimitíma, en ég fer stundum í tækjasalinn. Það finnst mér bara svo leiðinlegt nema ég geti horft á fréttir í leiðinni,“ segir Ásta Ragnheiður og hlær. Félagslíf í tengslum við líkamsræktina skiptir hana máli og hefur hún gaman af því að hitta fólk. „Ég geng á göngustígnum við Ægisíðu með vinkonu minni og þar hitti ég mikið af fólki, auk þess sem mér finnst alveg frábært að sameina gott spjall og rösklega göngu,“ segir Ásta Ragnheiður. En hún lætur ekki þar kyrrt liggja því hún segist reyna að koma hreyfingu að daglega lífinu með því að forðast að taka lyftur og nota stigana frekar, og ganga frekar en að keyra. „Ég fer stundum í sund líka en þá nenni ég reyndar ekki að synda, ég fer bara í pottinn og spjalla við fólk og í gufuna,“ segir Ásta Ragnheiður og brosir. „Ég er mjög meðvituð um hvað ég læt ofan í mig, reyni að borða hollan og góðan mat og forðast allt rusl,“ segir Ásta Ragn- heiður og bætir því við að hún drekki mik- ið vatn og fái sér aðeins einn kaffibolla á dag. „Maður verður að gefa sér tíma fyrir heilsuna og setja hana í fyrsta sæti, manni líður svo miklu betur auk þess sem það hef- ur óbein áhrif á fólkið í kringum mann,“ segir Ásta Ragnheiður að lokum og er öðr- um til fyrirmyndar með sinn heilbrigða lífsstíl. kristineva@frettabladid.is Sameinar gott spjall og rösklega göngu heilsa@frettabladid.is Útfjólubláir geislar eru tilgreind- ir, þ.e. að segja magn þeirra hverju sinni, í lok hvers veð- urfréttatíma á Bretlandi. Þessar upplýs- ingar virðast þó ekki skila sér til áhorfenda því um 70% þeirra skilja ekki um hvað upplýsingarnar snúast. Þetta kemur fram í nýrri könnun þar sem niðurstaðan er jafnframt á þann veg að 73% aðspurðra kváðust sólbrenna að minnsta kosti tvisvar á hverju sumri þrátt fyrir ótta við húðkrabbamein. Heilbrigðisyfirvöld hafa af þessu áhyggjur en 17 þúsund manns deyja árlega á Bretlandi af völd- um húðkrabbameins. Rannsókn íslenskra lækna á ýmsum aldurs- bundnum augnsjúk- dómum hefur vakið athygli víða um heim, að því er fram kemur á fréttasíðu doktor.is. Rannsóknin leiðir meðal annars í ljós sam- band hóflegrar áfengisneyslu og minni hættu á að fólk fái ský- myndun á augastein. Reykingar þrefalda hins vegar líkurnar á skýmyndun á augasteini og sama er að segja um vinnu úti undir beru lofti. Kínversk stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi og fyrirskipað bráðaaðgerðir til að hindra út- breiðslu fuglaflensu, í kjölfar þess að að farfuglar sem fundust dauðir í vesturhluta landsins fyrr í þessum mánuði reynd- ust sýktir af veirunni. Bændum á jörðum sem farfuglar frá Suðaustur-Asíu eiga leið um hefur verið gert að bólusetja alifugla á býlum sín- um og almenningi er ráðlagt að halda sig frá öllu fiðurfé. Fuglaflensa mun geta borist hingað til lands með farfuglum, en ekki hafa verið gerðar skipu- lagðar rannsóknir á villtum fugl- um hérlendis á síðustu árum. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir stundar líkamsrækt hjá Báru Magnúsdóttur í Dansrækt JSB og hér eru þær stöllur á spjalli eftir góða törn í leikfiminni. LIGGUR Í LOFTINU í heilsu FASTEIGNIR HEIM ILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o .f l . KRÍLIN En mamma, hvernig á ég að vita hvað pollurinn er djúpur ef ég er ekki búinn að fara út í hann? Lyf fundið við fótaóeirð BLS. 3 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 SMÁAUGLÝSINGAR Á 995 KR. ÞÚ GETUR PANTAÐ ÞÆR Á visir.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.