Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 30
FÓTBOLTI Nýliðar Vals eru með eitt besta lið landsins í dag og það sönnuðu þeir gegn ÍA í gær Það var lítill nýliðabragur á Hlíðar- endapiltum þegar þeir lögðu ÍA sannfærandi. Fyrri hálfleikur byrjaði með miklum látum en Hjörtur Hjartarson fékk dauða- færi strax á fyrstu mínútu og var klaufi að skora ekki. Skagamenn voru mikið mun frískari og það var nokkuð gegn gangi leiksins þegar Garðar Gunnlaugsson kom heimamönn- um yfir á 8. mínútu. Hann fékk þá frábæra sendingu frá Guðmundi Benediktssyni, lék fram hjá Páli Gísla í markinu og lagði boltann auðveldlega í netið. Vel gert. Síðari hálfleikur var ívið skemmtilegri og líflegri en sá fyrri. Bæði lið sóttu strax af krafti en sóknir heimamanna voru alltaf markvissari og hættu- legri. Valur uppskar annað mark þegar Reynir Leósson braut á Garðari Gunnlaugssyni. Dómur sem þjálfari ÍA, Ólafur Þórðar- son, var ósáttur við. „Þetta var ekki víti fyrir fimmaura og þessi dómur eyðilagði leikinn,“ sagði Ólafur. Skagamennn náðu aldrei að ógna marki Vals að neinu viti eftir þetta og Valsmenn fögnuðu sanngjörnum sigri. Varnarleikur liðsins var frábær, miðjuspilið traust og Garðar Gunnlaugsson sýndi að hann getur vel stað- ið undir vænt- ingum frammi en hann lék mjög vel í gær. Sóknarleikur S k a g a m a n n a var bitlaus með öllu og það felldi liðið. Þetta ÍA-lið virkar ekki sannfærandi og þarf að bæta sig mikið ef liðið ætlar að fá eitthvað úr sumrinu. „Þetta var fín frammi- staða og mikill baráttuleikur. Við reyndum að spila boltanum og það tókst ágætlega á köflum,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálf- ari Vals, en hann var ánægður með Garðar. „Hann spilaði eins og engill í dag.“ Ólafur Þórðarson sagði að sín- ir menn hefðu verið betri í leikn- um. „Við áttum fínar sóknir og áttum meira í fyrri hálfleik. Ég er þokkalega sáttur en við áttum að gera betur,“ sagði Ólafur. henry@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 21 22 23 24 25 26 27 Þriðjudagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  19.00 Þór/KA/KS tekur á móti Fylki í Visa-bikarkeppni kvenna.  19.30 Þriðji landsleikur Íslands og Hollands í Ásgarði í Garðabæ. ■ ■ SJÓNVARP  07.00 Olíssport á Sýn. Endursýnt fjórum sinnum frá kvöldinu áður.  16.35 Valur – ÍA á Sýn. (e)  18.15 Olíssport á Sýn. (e)  19.30 Þáttur um Meistaradeild Evrópu á Sýn.  20.00 Man. Utd. – Bayern München á Sýn. Endursýndur úr- slitaleikur Meistaradeildar frá 1999.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 NBA á Sýn. Endursýndur leikur.  01.00 Phoenix Suns – San Anton- io Spurs í úrslitum vesturstrandar- deildarinnar. Annar leikurinn beint. San Antonio vann fyrsta leikinn 121- 114 en hann var líka spilaður á heimavelli Phoenix Suns. Lítill nýliðabragur á Valsmönnum 22 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR > Við hrósum ... ... framherjanum Garðari Gunnlaugssyni sem lyfti leik sínum á æðra plan um leið og framherji var fenginn að utan til Vals. Garðar heldur sæti sínu í liðinu eftir frammistöðuna í gær og Daninn fer því væntanlega á bekkinn. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... Gunnari Heiðari Þorvaldssyni sem skoraði þrennu fyrir Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið vann 5–1 sigur á Landskrona. Gunnar Heiðar skoraði öll mörkin í seinni hálfleik, á 69., 83. og 87. mínútu. Gunnar Heiðar kórónaði síðan leikinn með því að leggja upp fimmta mark Halmstad sem er nú í 2. sæti sænsku deildarinnar. Þrír fótbrotnir eftir Pál Páll Hjarðar, leikmaður ÍBV, hefur þegar á stuttum ferli fótbrotið þrjá leikmenn inni á knattspyrnuvellinum. Fyrst Davíð Búason, leikmanns Bruna, í deildarbikarnum í mars 2000, þá Hjalta Jónsson á 21 árs landsliðsæfingu í október 2000 og loks Keflvíkinginn Ingva Rafn Guðmundsson í leik liðanna á sunnudaginn. „Já, eitt mark og metið er þá bara fall- ið,“ sagði Ingi Björn Albertsson hlæj- andi við blaðamann Fréttablaðsins sem innti hann eftir viðbrögðum vegna um- mæla Alberts Brynjars, sonar hans, í DV í gær. Eftir að hafa skorað sigurmark Fylkis gegn Þrótti opnaði Albert marka- reikning sinn á Íslands- mótinu en karl faðir hans er markahæsti leikmaður mótsins frá upphafi, með 126 mörk. „Ég ætla að slá metið hans pabba,“ sagði hann án þess að blikna. Semsagt, eitt mark komið og 125 eftir. „Ég á nú þá ósk heitasta að hann felli metið ekki,“ sagði Ingi Björn. „En það er nú vegna þess að ég vil að hann fái að spila eitthvað er- lendis. Það er nú ekki út af neinu öðru. Mér líst afskaplega vel á strákinn og vona að hann eigi framtíðina fyrir sér í boltanum og að hún sé þá annars staðar en hér heima.“ Markagen- ið er þó greini- lega til staðar í Alberti Brynjari. „Hann er búinn að vera marka- kóngur allt sitt líf og er sennilega markahæstur leikmaður Fylkis í sögu fé- lagsins. Hann hefur alltaf búið yfir þeim hæfileikum að geta skorað mörk og nú er að sjá hvort þeir hæfileikar verði við- varandi og nýtist honum í keppni hinna bestu.“ Albert Brynjar er uppalinn Ár- bæingur en systkini hans, pabbi og afi (Albert Guðmundsson) voru og eru öll miklir Valsarar. „Hann er alinn upp í Ár- bænum og er gegnheill Fylkismaður. Enda höfum við aldrei lagt að honum að yfirgefa það félag,“ sagði Ingi Björn. „Og ég mun mæta á alla Fylkisleiki sem ég kemst á í sumar, það er klárt.“ FH, Valur og KR eru öll me› fullt hús á toppi Landsbankadeildar karla eftir fyrstu tvær umfer›irnar. Gar›ar Gunnlaugsson var sínum gömlu félögum í ÍA erfi›ur ljár í flúfu á Hlí›arenda í gær. INGI BJÖRN ALBERTSSON SVARAR SYNI SÍNUM: YFIRLÝSINGAGLAÐUR EFTIR EITT MARK Vonar a› strákurinn slái ekki meti› FÓTBOLTI Þau mistök urðu við tæknilega vinnslu blaðsins á sunnudagskvöld að tákn fyrir gul spjöld og mark færðust öll upp um einn mann í liðsuppstillingum KR og Fram. Þannig skoraði Rógvi Jacobsen mark KR og fékk einnig gult spjald, sem og Sölvi Davíðs- son. Þórhallur Dan Jóhannsson og Kristján Hauksson Framarar fengu líka gult spjald. Vegna búningavandræða Kefl- víkinga á sunnudaginn klæddist Gunnar Hilmar Kristinsson treyju félaga síns Ásgríms Albertssonar. Þess var ekki getið á leikskýrslu og það var Gunnar Hilmar sem kom inn á sem varamaður í leikn- um á 80. mínútu, ekki Ásgrímur. Landsbankadeild karla: Mistök í vinnslu Lið ársins hjá Guðna Bergs: Ei›ur fyrstur af bekknum FÓTBOLTI Í sunnudagsblaði Frétta- blaðsins valdi Guðni Bergsson lið ársins í ensku úrvalsdeildinni. Í fréttinni vantaði málsgrein þar sem fram kemur að Eiður Smári Guðjohnsen ætti að vera tólfti maðurinn hjá Guðna. „Strákurinn átti náttúrulega frábært tímabil. Hann er tólfti maðurinn í þessu liði og fyrstur inn af bekknum,“ sagði Guðni. „Hann hefði svo væntanlega unnið sér sæti í byrj- unarliðinu fljótlega.“ ÞRIGGJA MARKA TAP Jóna Margrét Ragnarsdóttir og félagar hennar í íslenska landsliðinu töpuðu með þremur mörkum fyrir Hollandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GARÐAR Í GÍSLINGU Skagamenn reyndu að halda Garðari Gunnlaugssyni í gær en það skilaði litlu. Garðar fór oft á tíðum verulega illa með sína gömlu félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Kvennalandsliðið mætti Hollandi í handbolta: Mjög gó› byrjun dug›i ekki HANDBOLTI Íslenska kvenna- landsliðið í handbolta tapaði öðrum vináttulandsleik sínum gegn Hollandi með þremur mörkum, 23–26, í Garðabæ í gær. Íslenska liðið komst í 6–1 en hollenska liðið náði síðan undirtökunum og vann öruggan sigur líkt og í fyrsta leiknum á sunnudaginn. Stefán Arnarson, þjálfari íslenska liðsins, er ánægður með að fá þessa leiki við Holland og segir íslensku stelpurnar græði mikið á að mæta sterkara liði. „Það er frábært að fá þetta verkefni því þetta er mjög sterkt lið. Við erum eins og er aðeins á eftir en viljum bæta okkur. Þessi leikur var mun betri en fyrsti leikurinn og þá sérstaklega varnarlega,“ sagði Stefán við Fréttablaðið í gær. Mörk Íslands: Hanna G. Stefánsdóttir 6, Drífa Skúladóttir 3, Guðbjörg Guðmanns- dóttir 3, Guðrún Hólmgeirsdóttir 3, Hrafn- hildur Skúladóttir 3, Anna Úrsula Guð- mundsdóttir 2, Rakel Dögg Bragadóttir 2, Gunnur Sveinsdóttir 1. Berglind íris Hansdóttir varði 15 skot og Helga Torfadótir varði 2 á síðustu 5 mínútunum. 2-0 Valsvöllur, áhorf: 987 Garðar Ö. Hinriksson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–7 (4–5) Varin skot Kjartan 5 – Páll Gísli 1 Horn 6–2 Aukaspyrnur fengnar 19–19 Rangstöður 1–3 1–0 Garðar Gunnlaugsson (8.) 2–0 Sigurbjörn Hreiðarsson, víti (56.) Valur ÍA FÓTBOLTI Í gær kom til landsins leikmaður sem heitir Issa Abdulkadir og verður hann til reynslu hjá Keflvíkingum næstu daga. Hann er fæddur í desember 1986 og er því 18 ára gamall. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, segir að þessi leik- maður sé varnarmaður en geti þó einnig nýst á miðjunni í íslensku deildinni. ,,Hann verður hjá okkur til 1. júní og ætlum við að reyna að fá leikheimild fyrir hann svo hann geti leikið þá tvo leiki sem við eig- um þangað til. Eftir það munum við taka ákvörðun í samráði hvort hann verði áfram hjá okkur,“ sagði Kristján. -egm Leikmannaleit Keflavíkur: Arsenalma›- ur til reynslu *BESTUR Á VELLINUM VALUR 4–4–2 Kjartan 7 Steinþór 7 Atli Sveinn 7 Grétar 8 Bjarni Ólafur 7 Matthías 7 (85. Hálfdán –) Sigurbjörn 6 Stefán Helgi 6 Sigþór 6 *Garðar 8 (79. Baldur –) Guðmundur B. 7 (88. Kristinn –) ÍA 4–3–3 Páll Gísli 5 Finnbogi 6 Reynir 5 Gunnlaugur 6 Guðjón Heiðar 6 Pálmi 5 Pesic 6 Kári Steinn 3 (58. Sigurður Ragnar 4) Ellert Jón 5 (77. Jón Vilhelm –) Hjörtur 6 (61. Andri 5) Hafþór 5

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.