Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 34
www.shortdocs.info R E Y K J A V Í K SHORTS & DOCS HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍD Í REYKJAVÍK Í NYUPPGERDU TJARNARBÍÓI25-29 MAI STAR WARS EP3 B.i. 10 ára Sýnd kl. 16, 17, 19, 20, 22 of 23 Sýnd í Lúxus kl. 16, 19 og 22 STJÖRNUSTRÍÐIÐ ER HAFIÐ! HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Star Wars EP3 B.i. 10 ára Sýnd kl. 17.30, 20.30 og 23.30 Sýnd kl. 22 B.i. 12 ára. Sýnd kl. 16 m.ísl. tali Sýnd kl. 17, 20 og 23 B.i. 16 ára. Sýnd kl. 18 og 20 SK DV O.H.T. Rás 2 Downfall Sýnd kl. 18 og 21 B.i. 16 ára. Sýnd kl. 18, 20 og 22 SK DV Sýnd kl. 18 og 21 Star Wars EP3 B.i. 10 ára Sýnd kl. 16.30, 18, 21 Þegar líf þitt er komið í rúst er gott að eiga snarklikkaða ættingja til að bjarga málunum. Sýnd kl. 17.30, 20 og 22.15 Sýnd kl. 20 og 22.15 Sýnd kl. 16 m. ísl. tali. Einstök upplifun! „Þetta er einfaldlega 100% Star Wars“ Þórarinn Þórainsson , Fréttablaðið ★★★★★ „Allt sem maður getur mögulega viljað í Star Wars-mynd og rétt rúmlega það“ Tómas Valgeirsson, kvikmyndir.is ★★★★1/2 „Lucas tekst það sem Stjörnustríðs- aðdáendur vonuðu: Að loka hringnum með glæsibrag“ Sæbjörn Valdimarsson, MBL ★★★★ Sýnd kl. 16 m. ísl. tali. SÍMI 553 2075SÍMI 551 9000 Sjónvarpsþættirnir um Vinina nutu gríðarlegra vinsælda á sínum tíma og gerðu þau Matthew Perry, Lisu Kudrow, Jennifer Aniston, Cour- teney Cox, Matt LeBlanc og David Schwimmer að stórstjörnum. Ekki er langt síðan síðasti þátturinn var sendur í loftið eftir nær tíu ára sig- urgöngu. Ætluðu leikararnir sér stóra hluti en það hefur ekki geng- ið eftir. Nú ætlar hópurinn víst að lífga upp á ferilinn og telur ekkert betra en að gera það með aftur- hvarfi til fortíðarinnar því nú standa yfir samningaviðræður við sexmenningana um gerð kvik- myndar byggðrar á þáttaröðinni. Er reiknað með að hver og einn leikari fái rúmlega einn milljarð ís- lenskra króna í vasann. Talið er að Jennifer Aniston og David Schwimmer séu þau tvö sem helst vilji að þetta gangi í gegn og því ætti að vera auðvelt að fá hin fjögur til þess að taka þátt. Vinirn- ir frá Central Perk-kaffihúsinu gætu því ratað í kvikmyndahúsin áður en langt um líður. ■ VELGENGNIN EKKI GENGIÐ EFTIR Vinunum úr þáttaröðinni Friends hefur ekki gengið sem skyldi og ætla þeir því að lífga upp á ferilinn með kvikmynd byggðri á þáttaröðinni. Vinir endurn‡ja kynnin RÓSKA Atriði úr heimildarmyndinni Róska – saga og hugsjónir 68 kynslóðarinnar. Tvær opn- unarmyndir Heimildamyndirnar „Róska – saga og hugsjónir 68 kynslóðarinnar“ eftir Ásthildi Kjartansdóttur og „Heimurinn með augum Bush“, þar sem ýmsu er ljóstrað upp um Bush- fjölskylduna, verða opnunarmyndir heimilda- og stuttmyndahátíðar í Reykjavík, sem hefst á miðvikudag og stendur yfir í fimm daga. Hátíðin verður opnuð í nýupp- gerðu Tjarnarbíói, þar sem sköpuð verður bíóstemmning við Tjörnina. Meðal annars verða sýndar fimm ís- lenskar heimildarmyndir á hátíð- inni og níu íslenskar stuttmyndir. Í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar veita Íslandsbanki og 66 North verð- laun fyrir bestu íslensku heimildar- myndina og bestu íslensku stutt- myndina. Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á www.short- docs.info og www.logs.is. ■ Ástamál Evu Longoria virðast vera milli tannanna á fólki. Hvort Longoria sé einfaldlega að markaðs- setja þáttaröðina Desperate Hou- sewives þar sem hún leikur einmitt mjög „leitandi“ konu skal ósagt lát- ið. Hins vegar er alveg ljóst að leik- konan er ekki við eina fjölina felld og í hverri viku berast fréttir af nýj- um ástmönnum hennar. Fyrrverandi unnusti hennar, DJ Chaez úr N'Sync, upplýsti á dögun- um að þau hefðu eytt nótt á hótel- herbergi nýverið, en þau voru par fyrir ekki alls löngu. Kemur þetta á óvart því ekki er langt síðan að aðal- stjarnan úr 24 og Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland bauð henni á nokkur stefnumót þrátt fyrir að vera sagður í tygjum við hina ís- lensku Kristínu Báru. Longoria er nýkomin heim frá Cannes-hátíðinni en þar sögðust sjónarvottar hafa greint einhverja strauma milli hennar og Haydens Christiansen sem leikur einmitt Anakin Skywalker í nýju Star Wars- myndinni. Það má því vera ljóst að Longoria er ein sú heitasta nú um stundir meðal fræga fólksins og þarf karlpeningurinn augljóslega að hafa sig allan við til þess að halda í hina sjóðheitu Longoria. ■ ■ KVIKMYNDAHÁTÍÐ Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þessa nýju Weezer- plötu. Fyrst þegar ég heyrði þessi nýju lög Rivers Cuomo for- sprakka fór notaleg tilfinning um mig. En á sama tíma brotnaði hjarta mitt yfir því hversu steríl og tilfinningalaus þessi plata er. Þetta var eins og að sjá gamlan vin, eftir að hann hafði farið í rót- tæka lýtaaðgerð. Líklegast svipað og að sjá Michael Jackson syngja Billie Jean á tónleikum í dag. Það verður ekki tekið af Rivers að hann er líklegast einn besti lagahöfundur sinnar rokkkynslóð- ar. Konungur nördanna, sem hristir hvern slagarann á fætur öðrum fram úr erminni eins og ekkert sé auðveldara. Þannig er lagið Beverly Hills af þessari plötu, einn besti sumarslagari sem Weezer hefur borið fram. Restin af plötunni er því miður í öðrum gæðaflokki. Og það sem kemur mest á óvart er hversu leiðigjörn þau eru. Þetta er fyrsta Weezer-platan sem ég get ekki hlustað á frá upphafi til enda án þess að neyðast til að taka pásu. Textarnir eru svo eins og þeir séu samdir af sjö ára stelpu. Neistinn sem einkenndi bláu plötuna er víðs fjarri, kraftur og heiðarleiki Pinkerton líka. Ég er kannski svona rosalega neikvæður núna vegna þess að ég er einlægur aðdáandi þessarar sveitar, og þess vegna eru von- brigðin kannski stærri. Þrátt fyrir þessa meingölluðu plötu mun ég halda áfram að dá þessa sveit. Inni á milli leynast lög sem límast við heilahvelið á manni. Það er gjöf sem Rivers fékk í vöggugjöf, sem hann hefur ekki algjörlega misst... ennþá. Birgir Örn Steinarsson Weezer missir kúli›! WEEZER: MAKE BELIEVE NIÐURSTAÐA: Weezer reynir að gera hina full- komnu poppplötu. Niðurstaðan er versta plata sveitarinnar frá upphafi. Nördarnir eru því mið- ur að eldast illa. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN EVA ÁSAMT DJ CHAEZ Ástamálin hjá hinni suður-amerísku kynbombu, Evu Longoria, virðast sífellt verða flóknari og flóknari með degi hverjum. HAYDEN CHRISTIANSEN Eva og Hayden voru sögð vera í tygjum við hvort annað á Cannes-hátíðinni. Me› hverjum er Eva eiginlega?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.