Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 16
Helstu fréttir eru þær að Kína- ferð forsetans og fylgdarliðs er lokið og Samfylkingin hefur kosið sér nýjan formann. Vonir standa til að seinni atburðurinn eigi eftir að valda miklum breytingum í landinu, ég veit ekki um Kínaferðina. Breyting- arnar sem ný forysta í Samfylk- ingunni mun vonandi valda verða ekki vegna þess að Ingi- björg Sólrún sé svo sæt og snið- ug, hún er það vissulega, en það kemur pólitík ekkert við. For- maður Samfylkingarinnar stendur fyrir ýmsa hluti sem hugnast mörgum, burt með klík- ur sagði hún í lokaræðu sinni. Það yrði mikil breyting í ís- lenskri pólitík ef hlustað yrði á fólk, en ekki bara klíkubræður og -systur. Svo verður unnið að því að búa til skýra stefnu sem byggir á gildum jafnaðarstefn- unnar og þá getur orðið gaman að nota atkvæðið sitt á kjördag. Forsetinn var líka einu sinni í pólitík, hver hefði trúað því fyrir einhverjum áratugum að Ólafur Ragnar yrði aðalpuntu- dúkka landsins gangandi á rauð- um dreglum í Kína fyrir hönd þjóðarinnar. Utanríkisráðherr- ann var ekki með í för. Einhver sagði við mig að hann vildi ekki eða nennti ekki að vera í fylgd- arliði einhvers, hvorki forseta né annarra. Hann væri vanur að vera aðalmaðurinn og því væri ekkert óeðlilegt við að hann nennti ekki að sinna þessu hlut- verki. Viðmælandinn nefndi ekkert um að kannski vildi Davíð ekki vera í hlutverki sem að tilefni dagsins væri án vafa óæðra og minna en það sem Ólafur Ragnar gegnir. Hvort heldur er þá er þetta hið versta mál að mínu mati. Embættum landsins fylgja ákveðnar skyld- ur, þeir sem gegna embættunum eiga ekki að komast upp með að ákveða að þeir vilji ekki gera þetta eða hitt. Hvort heldur þeim finnst það fyrir neðan sína virðingu eða er almennt illa við þann sem þeir eiga að vera og sýna sig með. Það hlýtur að vera hlutverk utanríkisráðherrans að fylgja þjóðhöfðingjanum í opin- berum heimsóknum. Ef fyrr- verandi forsætisráðherrum finnst það fyrir neðan virðingu sína að vera í fylgdarliði, þá eiga þeir að hugsa fyrir því áður en þeir taka að sér embættið, það er að segja þeir eiga ekki að taka að sér embætti sem þeir vilja ekki gegna. En okkar herrar hafa aldrei verið í slíkum pælingum, þeir virðast halda að embættin séu til fyrir þá að leika sér með. Vonandi breytist þetta viðhorf valdamanna einhvern tímann. Ég hef nú alltaf haft mínar efasemdir um forsetaembættið sem formann útflutningsráðs. En þær efasemdir er líklegast rétt að leggja til hliðar þegar haldið er til Kína þar sem ríkis- valdið hefur tögl og hagldir. Enda flykktust viðskiptajöfrar landsins með í för. Forsetafrúin virðist af fréttum hafa vísað þeim veginn í skartgripakaup- um á meðan forsetinn fór í fisk- iðjuver þar sem fídusinn er sá að ekki þarf að nota vélar vegna þess að litlar kínverskar kerl- ingar fá svo lítið kaup. Vissu- lega er ekkert að því samkvæmt kenningum hagfræðinnar að nota kerlingar í staðinn fyrir vélar, ef það er ódýrara, þá gæti fiskurinn sem þær verka líka orðið ódýrari. Verðmyndun fisks er þó ekki þannig að vinnsluaðferðin ódýra sé líkleg til að skila sér til neytenda, nei ég held að eigendurnir haldi bara meiru eftir, stingi því í vas- ann eins og stundum er sagt. Hagfræðin, góð eins og hún nú er til að vísa veginn, býr ekki til mjög aðlaðandi þjóðfélag ef hún ein er höfð að leiðarljósi. Þess vegna er það glíma sem sumir stjórnmálamenn glíma við að koma á einhverju jafn- vægi á milli hagfræðinnar og mannúðarinnar. Svo eru auðvit- að stjórnmálamenn sem vilja láta lögmál hagfræðinnar gilda í sem flestu og enn aðrir sem ekk- ert eða sem minnst vilja af henni vita þó þeir kannski neyð- ist til að láta sem þeir taki eitt- hvað tillit til þeirra vísinda. Stundum virðist sem allir stjórnmálaflokkar séu til í að láta alla hagfræði lönd og leið, eins og þegar ákveðið er að byggja Héðinsfjarðargöng. Þá eru þingmenn sem segjast þurfa betri lífeyrisrétt en aðrir vegna þess hve óöruggt atvinnu- ástand þeir búa við að kaupa fá atkvæði fyrir milljarðana okkar, svo þeir haldi vinnunni. Væri nú ekki gaman ef þetta breyttist einhvern tímann? ■ Ú rslitin í héraðsþingskosningunum í Nordhrein-Westfa-len í Þýskalandi á sunnudag komu Gerhard Schröder,kanslara Þýskalands, greinilega ekki á óvart, enda höfðu skoðanakannanir fyrir kosningar bent til þess að jafnað- armenn myndu tapa þessu vígi sínu. Þetta er í sjöunda skiptið sem jafnaðarmenn tapa í héraðsþingskosningum frá því 1999. Schröder hafði því snör handtök og boðaði að kosningum til sambandsþingsins í Berlín yrði flýtt, þær færu fram síðar á þessu ári í stað haustsins 2006. Þetta hljómar eins og örvænt- ingarfullt útspil kanslarans, en gæti líka verið klókindi af hans hálfu gagnvart kristilegum demókrötum, stærsta stjórnarand- stöðuflokknum. Þar innanborðs hafa verið nokkrar væringar varðandi skipan leiðtoga flokksins og ekki allir verið sáttir við Angelu Merkel. Talað hafði verið um að skipt yrði um leiðtoga síðar á þessu ári eða því næsta, alltént fyrir kosningarnar haustið 2006, en nú virðist ljóst að svo verður ekki. Schröder ætlar greinilega að nýta tímann vel fram að kosningum og reyna að rétta hlut sinn. Hann telur heillavæn- legra að flýta kosningunum en að bíða með dóm þjóðarinnar í nærri eitt og hálft ár. Reyndar er það svo að ekki er á þessari stundu ljóst hvernig hann fer að að því að flýta kosningunum, því að stjórnarskráin í Þýskalandi gerir ekki ráð fyrir því að hægt sé að leysa sambandsþingið upp og efna til kosninga nema samþykkt sé vantraust á stjórnina. Aðeins þá getur for- setinn leyst upp þingið og boðað til kosninga. Vegna þessara ákvæða stjórnarskrárinnar hefur það komið fyrir að þing- menn stjórnarflokkanna hafa greitt atkvæði með vantrausti, til að hægt sé að rjúfa þing og efna til kosninga. Jafnaðarmenn hafa verið í meirihluta á héraðsþinginu í Nordhrein- Westfalen, þéttbýlasta hluta Þýskalands, í tæplega 40 ár og þetta hefur verið eitt helsta vígi jafnaðarmanna. Þótt þetta hafi ekki verið kosningar til sambandsþingsins í Berlín, heldur héraðsþingsins í Dusseldorf, þá skipta þessar kosning- ar sköpum. Í þessu sambandslandi búa 18 milljónir manna, og það hefur verið eitt öflugasta efnahagssvæðið innan alls Evr- ópusambandsins. Landsframleiðslan þar er meiri en í mörgum ríkjum ESB, enda hafa stóriðnaðarfyrirtæki löngum sett svip sinn á Nordhrein-Westfalen. Á síðari árum hefur heldur sigið á verri hliðina hjá mörgum þessara fyrirtækja. Ein helsta ástæða þess hvers vegna hallað hefur undan fæti hjá jafnaðarmönnum í Þýskalandi er hið mikla atvinnuleysi þar í landi. Það mælist nú um 12 af hundraði sem þýðir að um fimm milljónir manna eru atvinnulausar, þar af um ein millj- ón í hinu þéttbýla landi Nordhrein-Westfalen. Úrslit héraðs- þingskosninganna í Þýskalandi á sunnudag eru kannski for- smekkurinn að því sem búast má við í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni um breytingar á stjórnarskrá Evrópusambandsins í Frakklandi um næstu helgi. Í báðum þessum fjölmennu og víð- feðmu Evrópulöndum væru þá kjósendur að sýna hug sinn til valdhafanna, og verðugt rannsóknarefni hvort almenn þreyta gagnvart þeim sé að brjótast upp á yfirborðið í mörgum vest- rænum ríkjum. ■ 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Mikið atvinnuleysi meðal Þjóðverja skýrir úrslit kosninganna í Nordhrein-Westfalen. Schröder tapar og tapar í fi‡skalandi FRÁ DEGI TIL DAGS Portúgal Júníveisla frá kr. 39.990 Frá kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2- 11 ára. Stökktu tilboð í viku, 8. eða 22. júní. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar, kr. 1.800 á mann. Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Portúgal í júní. Þú getur notið lífsins á þessum frábæra sumarleyfisstað við frábæran aðbúnað. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Úrval glæsilegra gististaða í boði í hjarta Algarve. Síðustu sætin Frá kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð. Stökktu tilboð í viku, 8. eða 22. júní. Ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar, kr. 1.800 á mann. Vangaveltur í tilefni af Kínafer› Ekki að virka Egill Helgason gerir viðhafnarviðtal við Gísla Martein Baldursson í Tímariti Morgunblaðsins á sunnudaginn að umtalsefni á Vísi í gær, en Gísli er sem kunnugt er að falast eftir leiðtogasæti í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna: „Gísli setur fram gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn í borgar- stjórn sem allir sjá að er rétt“, skrifar Egill. „Þetta er ekki að virka hjá þeim – það þýðir ekki að tala enda- laust um fjármála- óstjórn R-listans og LínuNet. Gísli aug- lýsir eftir nýrri póli- tík, hljómar kannski ekki svo ólíkt Ingibjörgu Sólrúnu á hinum kant- inum. Hjá þeim báðum finnst manni vanta eitthvað konkret – eitthvað meira en orð. Hver nákvæmlega á stefnan að vera? Gísli gefur þó pínulítinn ádrátt um það þegar hann segir að hann seg- ist vilja götur í stokka og flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni. Á þessu hefur hingað til ríkt bannhelgi í flokknum.“ Forskrift Og Egill heldur áfram: „Hins vegar skjöplast Gísla aðeins þegar hann fer að gagnrýna R-listann fyrir að vilja „segja fólkinu hvernig það á að lifa líf- inu“ – þá er eins og hann hafi fengið bakþanka og vilji líka þóknast jeppalið- inu og gröfukörlunum. Hann gagnrýnir R-listann fyrir að setja upp of mikið af hraðahindrunum, þröngum götum og ljósum, líkt og hann sé að reyna að troða öllum í strætó. Afsakið. Er ekki allt skipulag forskrift að því hvernig menn lifa lífinu? Barcelona er skipu- lögð þröngt og þar getur fólk gengið, Los Angeles vítt – þar er maður glatað- ur nema á einkabíl“. Upphaf að einhverju? Egill bindur vonir við framboð Gísla Marteins: „Maður vonar að framboð Gísla sé upphaf að einhverju. Hann auglýsir eftir „kynslóðaskiptum í hug- myndum“. Veitir ekki af, því eins og ég hef áður bent á ríkir djúp stjórn- málakreppa í borginni. Verst er að flokkarnir í borgarstjórn eru í raun sam- mála um allt; það er enginn ágreining- ur um úthverfastefnuna.“ gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA Í DAG KÍNAFERÐ ÓLAFS RAGNARS VALGERÐUR BJARNADÓTTIR Ég hef nú alltaf haft mínar efasemdir um forseta- embætti› sem formann útflutningsrá›s. En flær efasemdir er líklegast rétt a› leggja til hli›ar flegar haldi› er til Kína flar sem ríkisvaldi› hefur tögl og hagldir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.