Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 38
30 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
K venritstjórum hjá Fróða er ekkióhætt þessa dagana. Ef þær
bregða sér af bæ vegna barneigna
eða þriggja mánaða blaðamanna-
leyfa er iðulega búið
að ráða í stöðurnar
þegar þær koma til
baka. Ekki er langt
síðan Lóu Aldísar-
dóttur, ritstjóra Húsa
og Híbýla, var sagt
upp störfum, eða
daginn áður en hún
átti að hefja störf eft-
ir barneignaleyfi.
Gullveig Sæmunds-
dóttir, ritstjóri Nýs
Lífs, ætlaði að fara í
sitt þriggja mánaða
orlof á dögunum en
hætti snögglega við
vegna hræðslu um
að missa starfið. Ekki fylgdi sögunni
hvort Gullveig fengi fríið borgað.
Elín Albertsdóttir, ritstjóri Vikunnar,
ætti einnig að taka sitt þriggja mán-
aða blaðamannaleyfi á árinu. Ef fjöl-
miðlakönnun Gallup er að marka er
Elín þó í stórhættu því að Vikan
hrapaði um hálft 5% í síðustu könn-
un eða úr 15,3% niður í 10,8%.
Íferðablaði The Sunday Times færBláa lónið slæma útreið. Talað er
um vonda baðaðstöðu og að ferðin
í Bláa lónið hafi verið ömurleg frá
upphafi til enda. Bláa lónið er
reyndar ekki eini staðurinn sem fær
vonda dóma en fyrirsögn greinar-
innar er: „This place stinks“. Staðirn-
ir Chichen Itza í Mexico, Climbing
Sydney Harbour Bridge í Ástralíu,
Skjaldbökueyja á Fídjieyjum, La
Mamoun í Marokkó fá allir álíka
slæma umfjöllun og Bláa lónið
ásamt Cannes. Þetta hlýtur að verða
mikið áfall fyrir ferðaþjónustuna á
Suðurnesjum enda Bláa lónið talið
vera einn af „heitustu“ stöðum
landsins.
Lárétt: 1 uppsprettan, 6 þjóta, 7 veiðar-
færi + t, 8 sólguð, 9 elskar, 10 beiðni, 12
eldsneyti, 14 ósk, 15 leyfist, 16 bardagi,
17 lofttegund, 18 skrökvaði.
Lóðrétt: 1 nema, 2 svelgur, 3 átt, 4
debetfærsla, 5 hluti dags, 9 ílát, 11 flug-
vél, 13 læsinga, 14 kostur, 17 tveir eins.
Lausn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Fótbraut þriðja
manninn
um helgina
– hefur þú séð DV í dag?
Eyjamaðurinn Páll Hjarðar
er stórhættulegur
andstæðingum sínum
Fyrir sautján árum var tónlistar-
maðurinn JoJo að spila á Strikinu
þegar heldur óvenjulegan gest bar
að garði. Reyndist þetta vera tón-
listargoðið Bruce Springsteen og
fékk kappinn gítar hjá JoJo lánaðan.
Spilaði Springsteen þrjú lög eftir
sjálfan sig, I Am on Fire, The River
og Dancer in the Dark. Síðan skilaði
hann gítarnum aftur til JoJo sem nú
ætlar að selja hann til styrktar
byggingu tónlistarhúss.
„Um haustið fékk Tommi eðal-
borgari, sem þá rak Hard Rock, gít-
arinn til sinnar vörslu ásamt mynd-
um sem ég tók af Springsteen,“
sagði hinn eiturhressi JoJo sem var
nýlega kominn frá Selfossi þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
„Þegar Tommi hætti þar rekstri
endaði gítarinn inni í einhverri
kompu og það var ekki fyrr en eftir
fjórtán ár að mér tókst að finna
hann aftur,“ segir hann og hlær.
JoJo segir marga hafa haft
áhuga á að festa kaup á þessum gít-
ar en hann hafi sjálfur aldrei viljað
selja hann. „Ég vil ekki verða ríkur
á annarra manna kostnað,“ segir
JoJo enda verður gripurinn ekki
seldur dýru verði. „Fyrsta boð verð-
ur fimm þúsund krónur og rennur
peningurinn óskiptur í sjóð til
styrktar byggingu tónlistarhúss,“
bætir JoJo við en tekur skýrt fram
að þetta sé algjört einkaframtak.
Hvort fimm þúsund krónur séu ekki
heldur lítið fyrir gítarinn segir JoJo
að peningarnir skipti ekki máli.
Hann vilji með þessu vekja fólk til
umhugsunar um tónlistarhúsið og
hvað sé að gerast í íslensku tónlist-
arlífi. „Það er hugarfarið sem skipt-
ir máli,“ segir JoJo en gripurinn
verður seldur á menningaruppboði
á Grand Rokk fyrstu helgina í júní
ásamt myndum af Bruce
Springsteen með gítarinn fræga.
freyrgigja@frettabladid.is
JoJo selur loksins Springsteen-gítarinn
JOJO OG ÞÓRÓLFUR ÁRNASON JoJo hefur löngum verið öflugur baráttumaður fyrir
margvíslegum málum og er hér með Þórólfi Árnasyni, fyrrverandi borgarstjóra, með áskor-
un um að gera Laugaveginn að göngugötu.
Ólafur Borgar Heiðarsson eða
Óli Boggi á hárgreiðslustofunni
Solid hefur um langa hríð haft
dálæti á fallegum fatnaði. Hann
er óhræddur að fara nýjar leiðir
þegar kemur að tísku. Á dögun-
um var hann staddur í New York
þegar hann datt í lukkupottinn.
„Ég var á búðarrápi í Soho þeg-
ar ég ákvað að kíkja inn í Dolce
& Gabbana-verslunina. Ég var
varla kominn inn í verslunina
þegar ég sá skyrtu sem var með
íslenska fánann prentaðan á
kragann. Mér fannst hún rosa-
lega flott en aðallega þó út af
fánanum og féll alveg fyrir
henni,“ segir Óli Boggi. Hann
var svo dáleiddur af þessum ís-
lenska fána á skyrtukraganum
að hann tók ekki eftir risastóru
stöfunum sem á stóð REYKJA-
VÍK. „Það var ekki fyrr en ég
fór að sýna systur minni skyrt-
una að ég fattaði að þetta var
sönn Reykjavíkurskyrta,“ segir
hann og hlær. Þjóðernisskyrta
Óla Bogga er úr bómullarefni og
hingað til hefur hann notað hana
við gallabuxur. „Hún er líka ör-
ugglega flott við jakkaföt og
hvítt bindi.“ Í síðustu viku var
hann staddur í Lundúnum en í
Dolce & Gabbana-versluninni
þar í borg var enga Reykjavík-
urskyrtu að finna né neitt sem
minnti á þjóðernissinnaðan Ís-
lending. Hann kom því nær tóm-
hentur heim úr þeirri ferð.
martamaria@frettabladid.is
TÍSKUFRÍK. Óli Boggi fékk hland fyrir
hjartað þegar hann sá skyrtu frá Dolce &
Gabbana með íslenska fánanum.
ÓLI BOGGI: FANN SKYRTU FYRIR ÍSLENSKA ÞJÓÐERNISSINNA
Reykjavíkurþema
hjá Dolce & Gabbana
FRÉTTIR AF FÓLKI
Dótið? Robomow.
Sem er? Sjálfvirk sláttuvél. Hver myndi ekki vilja
sleppa við að slá lóðina allt sumarið og sitja
þess í stað, njóta sólarinnar og fylgjast með vél-
menni sjá um erfiðið?
Hvernig virkar hún? Robomow er afar einföld í
notkun. Í upphafi er sérstakur vír strengdur utan
um garðinn, í kringum blómabeð og þar sem
vélin á ekki að slá. Vírnum fylgir rafhlaða, svo-
kallað Perimeter Switch, sem fylgir með í kass-
anum. Vírinn sér til þess að sláttuvélin fari ekki
út fyrir sláttusvið sitt. Eftir tvær til þrjár vikur er
vírinn orðinn þakinn grasi og hættur að sjást.
Til að koma sláttuvélinni í gagn er einfaldlega ýtt
á „Go“ takkann. Þá þýtur hún af stað og slær
grasið með fallegu mynstri.
Ein týpan af Robomow, svokölluð RL1000, er
með dagatali þannig að hægt er að forrita hana
þannig að hún slái á ákveðnum tímum dags.
Hvernig slær hún? Robomow er með
rafhlöðuknúin blöð og krafturinn í
þeim jafnast á við 5,5 hestöfl. Hægt er
að stilla hversu mikið hún slær.
Kostir? Vélin er einstaklega hentug og
slær afar vel. Hún léttir fólki svo sann-
arlega lífið á góðum sumardögum. Þar
að auki safnar hún sjálf grasinu saman
svo það þarf ekki að raka eftir hana.
Vélin gengur fyrir rafmagni svo hún er
mjög umhverfisvæn.
Gallar? Vélin er kannski tilvalin á
slétta og kassalaga garða í Bandaríkj-
unum en óvíst er að hún muni slá
hæðótta og hraunilagða garða á Ís-
landi.
Upplýsingar? Allar nánari upplýsingar
um Robomow má finna á heimasíð-
unni www.friendlyrobotics.com.
DÓTAKASSINN
...fær Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir
fyrir að ljá Sollu stirðu rödd sína
í íslensku útgáfunni af Latabæ.
HRÓSIÐ
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Lárétt: 1lindin,6æða,7nó,8ra,9ann,
1oósk,12kol,14von,15má,16at,17
gas,18laug.
Lóðrétt: 1læra,2iða,3na,4innkoma,
5nón,9ask,11þota,13lása,14val,17
gg.