Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 26
Betri laun sem sænsk kona
Sænski markaðurinn hefur verið að taka við sér
undanfarin misseri eftir erfiða tíma þegar netblaðr-
an sprakk. Batnandi hagur á markaði birtist meðal
annars í því að laun þeirra sem stunda viðskipti á
markaðnum hafa hækkað verulega. Dagens
Industri fjallaði um betri daga og þá staðreynd að
laun stjórnenda verðbréfafyrirtækja hafa hækkað
vegna aukinna viðskipta og hækkana á mark-
aði. Kaupthing er meðal þeirra fyrirtækja sem
hefur notið betra umhverfis á sænska mark-
aðnum og er forstjóri fyrirtækisins borinn sam-
an við kollega sína hjá Carnegie og
Hagströmer og Qviberg. Af forstjórum
þessara fyrirtækja er Karin Forseke,
forstjóri Carnegie, með hæstu launin
eða 144 milljónir króna í árslaun.
Hún er með sextíu prósentum
hærri laun en Hreiðar Már Sigurðs-
son sem er með 93 milljónir í árs-
laun í samanburði Dagens
Industri. Þegar umræður voru um kaupréttarsamn-
inga stjórnenda Kaupþings á sínum tíma vísuðu
menn einmitt til launaumhverfis í fjármálagreiran-
um í nágrannalöndum. Spurningin er því hvort
Hreiðar Már væri betur launaður ef hann væri
sænsk kona í sama starfi.
Ein reim að fimm skóm
Breskir fjölmiðlar hafa skrifað um að
Baugur sé að kaupa bresku skóbúðakeðj-
una Jones Bootmaker. Þetta mun þó ekki
vera rétt. Hins vegar hefur ágætur við-
skiptafélagi þeirra Baugsmanna, Tom
Hunter, fjárfest í skóverslun og sú
tenging hefur hugsanlega orðið
kveikjan að sögusögnum um að-
komu Baugs. Í þessu tilviki eins
og mörgum öðrum virðist ein
reim hafa orðið að fimm skópör-
um.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.075
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 202
Velta: 2.826 milljónir
-0,35%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Eignaverðsvísitalan sem KB banki
gefur út hefur hækkað um 24 pró-
sent á síðasta ári. Í apríl hækkaði
hún um 2,6 prósent. Verðmæti
eigna sem vísitalan nær yfir hækkað
um þúsund milljarða á einu ári.
Vísitala launa hækkaði um 0,5
prósent milli mars og apríl. Hækkun-
in á síðsta ári er 6,7 prósent. Þetta
kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Hópur stærstu hluthafa í Þormóði
Ramma – Sæberg hefur gert tilboð í
öll hlutabréf í félaginu á genginu
3,85.
Greiningardeild Landsbankans
hefur gefið út nýtt mat á verðmæti
KB banka. Landsbankinn telur KB
banka vera 347 milljarða virði. Sam-
kvæmt því ætti hver hlutur að kosta
531 krónu.
18 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Knútur G. Hauksson læt-
ur af störfum sem for-
stjóri Samskipa og tekur
við stjórnartaumunum
hjá Heklu. Tryggvi Jóns-
son verður starfandi
stjórnarformaður.
Knútur G. Hauksson hefur verið
ráðinn forstjóri Heklu hf. Hann
tekur við starfinu af Tryggva
Jónssyni sem verður starfandi
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Knútur hefur starfað hjá
Samskipum undanfarin ár og
verið forstjóri þar síðustu tvö.
Hann gengur nú inn í hluthafa-
hóp Heklu en þar eru stærstir
þeir Tryggvi Jónsson, Hjörleifur
Jakobsson og Frosti Bergsson.
„Það hefur verið nokkur að-
dragandi að þessu. Knútur er
gamall skólafélagi minn og við
höfum þekkst býsna lengi. Við
vorum að gera samninga í vor og
ég sagði honum að ég hefði
áhuga á því að beina athygli okk-
ar frekar að framtíðarskipulagi
félagsins til að draga úr sveifl-
um á bílamarkaði og það þróað-
ist í þessa átt,“ segir Tryggvi.
Hann segir að rekstur á bíla-
umboðum sveiflist mjög í takt
við hagsveiflur. „Því höfum við
verið að bæta við okkur ódýrari
umboðum, eins og KIA, sem
selst kannski betur þegar ár-
ferðið er slakara. Eins bættum
við bílaleigu, Atlas-Europecar,
við reksturinn og erum að huga
að fleiri þáttum til að draga úr
þessum sveifluáhrifum,“ segir
hann.
Knútur segir að nýja starfið
leggist vel í sig. „Mér finnst
bæði gaman að koma inn í þenn-
an eigendahóp og ekki síður líst
mér vel á félagið. Þetta er fyrir-
tæki með glæsileg umboð og ég
held þeir eigi framtíðina fyrir
sér,“ segir hann.
Knútur tekur til starfa 1. júní
næstkomandi en mun starfa með
stjórnendum Samskipa fram að
því.
„Undanfarin fjögur ár í Sam-
skipum hafa verið ótrúlega
skemmtileg. Það er búið að
byggja það félag bæði hér heima
og erlendis á alveg gríðarlega
skemmtilegan hátt og það hefur
verið frábært að vinna í því og
vera í þeirri forystusveit. En
mér fannst þetta líka vera
spennandi tækifæri fyrir mig að
prófa þetta,“ segir hann.
thkjart@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 45,00 +0,45% ... Atorka 6,00
– ... Bakkavör 34,20 -0,29% ... Burðarás 14,40 -0,69% ... FL Group 14,65
-0,68% ... Flaga 5,03 – ... Íslandsbanki 13,30 +0,38% ... KB banki
529,00 -0,94% ... Kögun 62,10 -0,32% ... Landsbankinn 16,40 -0,61% ...
Marel 56,50 +0,89% ... Og fjarskipti 4,21 +0,96% ... Samherji 12,10 – ...
Straumur 11,85 +0,42% ... Össur 80,00 -0,62%
Nýr forstjóri Heklu
Nýherji 1,63%
Og fjarskipti 0,96%
Marel 0,89%
Grandi -1,23%
KB banki -0,94%
Burðarás -0,69%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%ðsetningarhlutfall
Seðlabankastjóri Evrópu
segir að verði vextir
lækkaðir komi það niður á
trúverðugleika bankans.
Seðlabankastjóri Evrópu, Jean-
Claude Trichet, segir að ef bank-
inn lækki vexti hafi það neikvæð
áhrif á hagvöxt. Fari bankinn þá
leið muni hann missa trúverðug-
leika, verðbólga aukast og vextir
hækka til lengri tíma litið.
Margir evrópskir stjórnmála-
menn hafa viljað lækka vaxtastig-
ið til að ýta undir hagvöxt á evru-
svæðinu. Trichet telur hins vegar
að slík aðgerð hafi þveröfug áhrif
og segir bankaráð seðlabankans
hafa ákveðið fyrir löngu að verða
ekki við kröfum stjórnmálamann-
anna: ,,Við erum harðákveðnir í að
láta ekki undan þrýstingi,“ sagði
Trichet. ,,Þeir vextir sem við
ákvörðum eru aðeins til skamms
tíma. Síðan tekur markaðurinn
við.“
Hann bætti svo við að lang-
tímavaxtastig væri mjög lágt þar
sem markaðurinn tryði því að
seðlabanki Evrópu myndi sjá til
þess að verðbólga héldist í lág-
marki: ,,Það er algert lykilatriði
að markaðurinn haldi áfram að
trúa á það sem við erum að gera.“
- jsk
Laun í landinu hækkuðu að meðal-
tali um 0,5 prósent í apríl sam-
kvæmt launavísitölu Hagstofunn-
ar. Stafar hækkunin einkum af
samningsbundnum launahækkun-
um á almenna markaðinum og hjá
hinu opinbera. Launaskrið reynd-
ist lítið.
Laun hafa hækkað um 6,7 pró-
sent á síðustu tólf mánuðum og er
það að mestu vegna kjarasamn-
ingsbundinna hækkana.Kaup-
máttur launa hefur aukist um 2,3
prósent á tímabilinu.
Líklegt er að laun hækki áfram
og launaskriðs verði vart á næstu
misserum í ljósi mikils hagvaxtar.
- jsk
Malcolm Glazer, bandaríski auð-
kýfingurinn sem nýlega eignaðist
meirihluta í enska knatt-
spyrnustórveldinu Manchester
United, segist ætla að taka félagið
af hlutabréfamarkaði ekki seinna
en 30. júní næstkomandi.
Glazer á í dag rúm 76 prósent
af hlutabréfum í félaginu og
stefnir á að eignast 90 prósent
þeirra bréfa sem eftir eru. 75 pró-
senta hlut þarf til að afskrá fyrir-
tæki af markaði.
Aðdáendur félagsins eru ósátt-
ir við yfirtöku Glazers og telja að
hann muni reka félagið eingöngu í
gróðaskyni og vanrækja það sem
þeim finnst fyrir öllu, að bæta
bikurum í safnið. - jsk
HÆRRI LAUN Laun í landinu hafa hækk-
að um 6,7 prósent á undanförnum tólf
mánuðum, að mestu vegna kjarasamn-
ingsbundinna hækkana.
Laun hækka
Neitar a› lækka vexti
JEAN-CLAUDE TRICHET SEÐLABANKASTJÓRI EVRÓPU Harðneitar að lækka vexti
þrátt fyrir þrýsting frá stjórnmálamönnum.
United af hlutabréfamarka›num
MALCOLM GLAZER EIGANDI MANCHESTER UNITED Aðdáendur félagsins óttast að
þeir fái ekki mörg tækifæri til að brosa svona breitt eftir að Glazer tekur öll völd í félaginu.
STJÓRNARFORMAÐUR OG FORSTJÓRI Tryggvi Jónsson (t.v.) víkur úr forstjórastólnum
fyrir Knúti G. Haukssyni en verður í staðinn starfandi stjórnarformaður Heklu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A