Fréttablaðið - 24.05.2005, Side 12
12 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Á FULLRI FERÐ Þátttaka í átakinu Hjólað
í vinnuna var mjög góð.
Verðlaun afhent:
Hjóla› í vinn-
una loki›
Verðlaun voru afhent fyrir
fræðslu- og hvatningarverkefnið
Hjólað í vinnuna í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í gær. Alls voru
yfir 5.000 þátttakendur frá 254
vinnustöðum sem hjóluðu yfir 170
þúsund kílómetra á þeim tveimur
vikum sem átakið stóð yfir.
Hægt var að fá verðlaun fyrir
fjölda daga og kílómetra í flokk-
um eftir fjölda starfsmanna á
vinnustað.
Hlutfallslega voru starfsmenn
Marksins hlutskarpastir en þeir
hjóluðu yfir 200 kílómetra hver.
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar-
innar á Siglufirði hjóluðu suður til
að taka við verðlaunum fyrir
næstflesta daga í flokki vinnu-
staða með 150 til 399 starfsmenn.
- mh
– hefur þú séð DV í dag?
Verstu
nágrannar
Íslands
MÆÐGININ
REKIN ÚR
FIMMTU
ÍBÚÐINNI
Í RÖÐ
Verða þau næstu
nágrannar þínir?
ÞAÐ KOSTAR 300 KRÓNUR FYRIR
FULLORÐNA AÐ SKOÐA BYGGÐA-
SAFN HAFNARFJARÐAR
Heimild: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræðingur,
sem stundum er nefndur skjálfti vegna
sérfræðiþekkingar hans á jarðskjálftum,
er búsettur í grennd við Dalvík. Hann
sinnir fræðistörfum sínum þar og hefur í
nógu að snúast þessa dagana. „Ég er á
fullu í starfi samtakanna Landsbyggðin
lifi, sem hefur það meginmarkmið að
bæta líf íbúa á landsbyggðinni. Síðan er
ég einnig í Framfarafélagi Dalvíkurbyggð-
ar sem hefur þann draum að koma upp
útivistarparadís í Svarfaðardal,“ segir
Ragnar sem greinilega er fullur orku.
Ragnar hefur tekið þátt í stórri rannsókn
sem ber heitið Prepared og snýr að
jarðskjálftum. „Þetta er stórt rannsóknar-
verkefni sem snýr að því að gera spár
fyrir jarðskjálfta nákvæmari. Ég hef unn-
ið að þessu fyrir Veðurstofu Íslands og
með aðilum frá átta Evrópuþjóðum,“
segir Ragnar. Hann bindur vonir við að
þessar rannsóknir muni leiða af sér
merkilegar niðurstöður sem geri mönn-
um kleift að bregðast betur við áður en
jarðskjálftarnir eiga sér stað.
Ragnar gegnir einnig starfi sem for-
stöðumaður rannsóknarútibús Háskól-
ans á Akureyri og er því á fullu í fjöl-
breytilegri rannsóknarvinnu á Norður-
landi.
Fram undan er heimsókn forseta Íslands
í Dalvíkurbyggð þar sem Ragnar mun
kynna fyrir honum jarðskjálftarannsókn-
ir. „Forsetinn bað sérstaklega um þessa
kynningu, þannig að þetta verður örugg-
lega skemmtilegt,“ segir Ragnar.
Hann er annars ánægður með lífið í
Dalvíkurbyggð og segist áfram ætla að
vinna að því að efla umræðu um líf
fólks á landsbyggðinni.
Eflir landsbygg›ina og rannsakar skjálfta
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: RAGNAR STEFÁNSSON JARÐEÐLISFRÆÐINGUR
Fjórði bekkur Flúðaskóla hreppti
100 þúsund krónur í verðlaun í
teiknimyndsamkeppni meðal
fjórðu bekkinga í grunnskólum
landsins. Keppnin var haldin í til-
efni af alþjóðlega skólamjólkur-
deginum og voru úrslit tilkynnt í
gær.
Myndir bárust úr mörgum
skólum svo hundruðum skipti og
valdi dómnefnd tíu bestu að sínu
mati. Fjórar þeirra reyndust
koma úr Flúðaskóla. Myndirnar
tíu verðar notaðar á plaköt og
kynningarefni vegna Skólamjólk-
urdagsins 2005 á næsta hausti.
Verðlaunahafarnir eru Anna
Maggý Grímsdóttir, Snælands-
skóla, Bergdís Rán Jónsdóttir, 4
Þ:S. Barnaskóla Vestmanneyja,
Guðjón Örn Sigurðsson, Flúða-
skóla, Hafþór Ingi Ragnarsson,
Flúðaskóla, Jón Gautason, Flóa-
skóla, Kristín Hulda Kristófers-
dóttir, 4V Snælandsskóla, Marí-
anna Svansdóttir, Flúðaskóla,
Svanborg Signý Jóhannesdóttir,
Ljósafossskóla, Sóley Reynisdótt-
ir, 4 AH Heiðarskóla í Reykjanes-
bæ, Þórmundur Hilmarsson,
Flúðaskóla.
-jss
Stangveiði hefur notið
mikilla vinsælda hér á
landi um árabil, enda að-
stæður hér á Íslandi á
heimsmælikvarða. Veiði-
menn eru nú að taka
fram græjurnar og gera
sig tilbúna fyrir sumarið.
Spenna veiðimanna eftir sumr-
inu er nú að losna úr læðingi.
Pálmi Gunnarsson, veiði- og tón-
listarmaður, er einn af þeim sem
finna vel fyrir því þegar sumarið
nálgast. „Það er alltaf gaman þeg-
ar stangveiðitímabilið er að hefj-
ast, þó það hafi verið frekar kalt á
veiðimenn að undanförnu,“ segir
Pálmi og vonast greinilega eftir
Stangvei›i-
tímabili› hafi›
PÁLMI GUNNARSSON Sumarið er tíminn hjá Pálma. Hann segir það aldrei of langt,
sérstaklega hjá veiðisjúklingum eins og honum sjálfum.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn:
Flú›askóli fékk ver›launin
DÓMNEFNDIN Sigurður Mikaelsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Hildur Ósk Haf-
steinsdótti , Guðlaugur Björgvinsson og Hólmgeir Karlsson mátu verðlaunamyndirnar úr
teiknimyndasamkeppni skólamjólkurdagsins.