Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Gulli› í skelinni Svefndrukknir landsmenn sitjamargir hverjir um þetta leyti dags við morgunverðarborðið og moka í sig höfrum og korni. Ekki er víst að allir hafi lesefni við hönd. Á meðan einn flettir blaði starir annar stjarfur í diskinn sinn. Einhverjir eru komnir á það stig að geta haldið uppi samræðum, en aðrir eru djúpt sokknir í lestur þjóðlegs fróðleiks. Þeir stimpast jafnvel orðalaust á um lesefnið og fróðleikur þessa þriðju- dagsmorguns á eldhúsborðinu er orðatiltækið: að draga sig inn í skel. Fram kemur við lesturinn að orðatil- tækið þýði að vilja ekki ræða eitt- hvað. Það er sótt í dönsku með tilvís- un í atferli skeldýra. ÁFRAM lesa morgunhanar – hálf- sofandi þó. Þegar manneskja dregur sig inn í skel getur reynst erfitt fyr- ir aðra að komast inn úr skelinni hjá henni. Enn bætist við fróðleikinn og þetta gerist allt fyrir klukkan átta að morgni – með því einu að góna á mjólkurfernuna. Þegar erfitt er að komast inn úr skelinni hjá einhverj- um er sagt að það sé lítið gull í skel- inni hjá viðkomandi. Það þýðir svo aftur að sá hinn sami sé erfiður við- fangs. Lesefnið er í boði Mjólkur- samsölunnar sem vill efla íslenska tungu og selja mjólk í leiðinni. ÍSLENSKA er okkar mál, segja þeir hjá Samsölunni og þjóðin er þakklát fyrir lesefnið sem stundum er kveikjan að fyrstu rökrænu samræð- um dagsins. Smúþí er enn ein nafn- leysan í endalausri skrípabunu orða sem markaðsmenn hafa hugsað upp. Mjólkurmenn norðan heiða segjast vilja ná til ungs fólks – að kvartanir hafi aðallega borist frá gamlingjum. Það var ekki að sjá á óformlegri skoðanakönnun meðal ungmenna hér á bæ og einn unglingur sagðist ekki viss um að Svali seldist betur þótt hann væri kallaður Kúl. En mjólkur- menn nefna máli sínu til stuðnings aðra nafnleysu: Búster – sem gæti út- lagst á hinu ástkæra en aulalega: orkubót eða bara bót. NORÐAN heiða töluðu menn gjarnan dönsku á sunnudögum í þá gömlu góðu daga. Nú er það fyrir óralöngu aflagður siður enda standa Norðlendingar vörð um kjarnyrta tungu og státa af hljómmiklu máli. Því verður að segjast að það er lítið gull í skelinni hjá Norðurmjólk þessa dagana þar sem slagorðið virðist helst vera: íslenska er ekkert mál – eða bara: nó big díl? BAKÞANKAR KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.