Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 1
Dansar á N‡listasafn-
inu í kvöld
GUNNLAUGUR EGILSSON:
▲
FÓLK 46
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LÍTILSHÁTTAR SKÚRIR sunnan og
vestan til. Léttir smám saman til norðaustan
og austan til þegar líður á daginn. Hiti 11-
22 stig hlýjast norðaustan og austan til.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
28. júlí 2005 - 202. tölublað – 5. árgangur
Valsmenn halda spennunni í
toppbaráttunni
Valsmenn unnu níunda
sigur sumarsins í
Landsbankadeild karla
þegar þeir unnu
Fylkismenn 3–1 á
heimavelli sínum á
Hlíðarenda í gær.
ÍÞRÓTTIR 28
Skinkufeitt festival
Reggísveitin Hjálmar sló í
gegn á G!festival í Fær-
eyjum sem haldið var
um helgina. Á hátíð-
inni spiluðu líka
sænsku rokkhund-
arnir í Europe og
Eivör Pálsdóttir en há-
tíðin er haldin í heim-
bæ hennar Götu.
TÓNLIST 40
Bankar og völd
Það er engin tilviljun að vestur-
evrópskir einkabankar hafa
undangengin ár eignazt
talsverðan og sums staðar
ráðandi hlut í
viðskiptabönkum í
Mið- og Austur-
Evrópu.
Í DAG 18
NÍNA BJÖRK GEIRSDÓTTIR:
Er me› tvískiptan
fataskáp
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● heimili ● matur SKAPANDI Í SUMARFRÍI
▲
VEÐRIÐ Í DAG
15-90%
Afsláttur
ÚTSALA
vi› Smáralind
í fullum gangi
Nýtt Hagkaupsblað
fylgir Fréttablaðinu í dag* *á völdum svæðum
Hvannadalshnúkur:
Hæ› tindsins
loks sta›fest
HVANNADALSHNÚKUR Góða verið í
gær var notað til þess að koma
fyrir nákvæmum mælitækjum á
Hvannadalshnjúki sem mæla með
óyggjandi hætti hæð hæsta tinds
landsins á Vatnajökli. Ýmsum
tölum um hæð Hvannadalshnjúks
hefur verið fram haldið, en lands-
menn sennilega vanastir tölunni
2.119 metrar.
Landmælingar Íslands, Land-
helgisgæslan og Jarðvísinda-
stofnun tóku höndum saman við
mælinguna. Mælitækin safna
næsta tvo sólarhringa gögnum með
hjálp gervitungla áður en hægt
verður að staðfesta hæðina. Hún
getur að vísu verið breytileg eftir
snjóalögum og árstíma. Tveir
mælipunktar á öskjunni sjálfri
voru settir niður til að mæla hreyf-
ingu á jarðskorpunni á Vatnajökli.
Mjög gott veður var á tindinum
þegar leiðangursmenn komu þang-
að. Skyggni var gott alla leið norð-
ur í Herðubreið, austur að Snæ-
felli, yfir í Kerlingarfjöll og vestur
að Langjökli. Skyggni var hins
vegar lítið sem ekkert til suðurs,
skýjalög komu í veg fyrir það. ■
Sala Símans:
Úrslitin í dag
EINKAVÆÐING Seinnipartinn í dag
verður ljóst hver býður hæsta verð
í Símann og gengur til viðræðna
við einkavæðingarnefnd um kaup á
fyrirtækinu.
Þær viðræður eigi ekki að taka
langan tíma að sögn Jóns Sveins-
sonar, formanns einkavæðingar-
nefndar. Drög að kaupsamningi
liggi þegar fyrir og þeir sem skili
inn bindandi tilboðum þurftu að
vera búnir að samþykkja drögin í
stórum dráttum í gærkvöldi. Því
eigi að vera hægt að ljúka stærstu
einkavæðingu á Íslandi fyrir lok
sumars.
Tilboðin verða opnuð laust eftir
hádegi í dag og ef minna en fimm
prósenta munur er milli hæstu
boða hafa menn frest til klukkan
fimm að skila hærra tilboði. Það til-
boð ræður þá hver kaupir Símann.
-bg/Sjá síðu 24
ÁFENGISVERSLUN „Við spáum því að
við munum selja um 700 þúsund
lítra af áfengi fyrir verslunar-
mannahelgina,“ segir Höskuldur
Jónsson, fráfarandi forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins.
Höskuldur hefur þann fyrir-
vara að um spá sé að ræða en
gangi hún eftir, eins og margt
bendir til, sé um tíu prósenta
aukningu að ræða frá síðasta ári.
Það verður þá mesta magn
áfengis, í lítrum talið, sem ÁTVR
hefur selt á einni viku og er sölu-
andvirðið um 500 milljónir króna.
Höskuldur segir að um níutíu pró-
sent af þessu magni sé bjór.
Af þeim 700 þúsund lítrum
sem búist er við að afgreiða fyrir
helgi fari um 100 þúsund lítrar
norður á Akureyri. „Ætli við fjór-
földum ekki birgðarnar miðað
við venjulega viku,“ segir Ólafur
Þorsteinsson í Vínbúðinni á Ak-
ureyri. Í Reykjavík er mest selt
af áfengi í vínbúðunum í Holta-
görðum, Kringlunni og Heiðrúnu
en á landsbyggðinni taka mest til
sín, auk Akureyrar, vínbúðirnar
á Egilsstöðum og í Vestmanna-
eyjum.
-bs /Sjá síðu 12.
Innkaup fyrir verslunarmannahelgina:
Hálfur milljar›ur í áfengi
HVANNADALSHNÚKUR MÆLDUR Þórarinn Sigurðsson landmælingamaður (t.h.) og Guðmundur Valsson koma mælitækjunum fyrir á
Hvannadalshnúki. Mælitækin safna á næstu sólarhringum gögnum með hjálp gervitungla áður en hægt verður að staðfesta hæð
hnúksins.
Fimmtán milljar›a
aukning tekjuskatts
Tekjur ríkisins vegna tekjuskatts einstaklinga hækka úr 130 milljör›um króna
í 145 milljar›a milli ára. fietta jafngildi 11,5 prósenta hækkun. Ríkisskattstjóri
segir hækkunina einkum sk‡rast af mikilli grósku í fljó›lífinu.
EFNAHAGSMÁL „Álagning tekju-
skatta í ár er um 145 milljarðar
króna að útsvarinu meðtöldu.
Barnabætur og vaxtabætur eru
samtals um tíu milljarðar,“ segir
Indriði H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri. Hann segir að sömu skattar
hafi verið um 130 milljarðar á
síðasta ári. Skatttekjur ríkissjóðs
af tekjuskatti einstaklinga hafi
því aukist um fimmtán milljarða
króna, eða 11,5 prósent, milli
áranna 2003 og 2004.
Aðspurður um ástæður þess-
arar aukningar segir Indriði:
„Þetta er hærra en í fyrra sem
eðlilegt er því það hefur náttúr-
lega verið mikil gróska í þjóðlíf-
inu. Laun hafa hækkað og þá
hækka skattarnir af sjálfu sér.
Þetta fylgist að.“
Indriði segir að stór hluti skatt-
anna, aðallega skattar í stað-
greiðslu og barnabætur, hafi verið
greiddir fyrir fram þannig að lítill
hluti þessara fjárhæðar komi til
uppgjörs nú. Hann segir að nokkuð
jöfn skipting sé á milli framtelj-
enda sem ættu endurkröfu og út-
borganir til framteljenda.
„Hins vegar eru endurkröfur
eða viðbótarálagning ekki mjög
miklar þar sem staðgreiðslukerfið
virkar mjög vel og tekur þetta
samtímis,“ segir Indriði.
Skattstjórar leggja á morgun
fram skrár með álagningu opin-
berra gjalda árið 2005. -gag
- hb
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA