Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 2
2 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Lyfjaútgjöld Tryggingastofnunar aukast um milljarð: Kostna›ur vi› ge›lyf eykst um 357 milljónir króna HEILBRIGÐISMÁL Kostnaður Trygg- ingastofnunar vegna tauga- og geðlyfja jókst um 212 milljónir á síðasta ári, um 357 milljónir frá árinu 2002, en það er alls 23 prósenta hækkun á tveimur árum. Lyfjaútgjöld stofnunar- innar jukust alls um 8,1 prósent eða um 481 milljón á síðasta ári meðan notkunin tauga- og gefðlyfja jókst um 5,5 prósent. Lyfjaútgjöld Tryggingastofn- unar hafa alls hækkað um millj- arð á tveimur árum og um þriðj- ungur af þeirri hækkun er vegna tauga- og geðlyfja. Kostnaður vegna tauga- og geðlyfja jókst um þrettán pró- sent frá síðasta ári en notkun þeirra jókst þó aðeins um fjögur prósent. Kostnaður jókst mest vegna ofvirknilyfsins Concerta sem hefur verið að leysa ritalín af hólmi, eða um 51 milljón. Aukning varð í notkun allra lyfjaflokka á árinu og er aukin lyfjanotkun fyrst og fremst rak- in til þess að hlutfall eldri borg- ara á Íslandi hefur hækkað. Einnig hefur kostnaður hækkað vegna nýrra og dýrari lyfja- gerða. - grs Veðurspáin fyrir Verslunarmannahelgina: Spá› er vætu ví›a um land VEÐURFAR „Við gerum ráð fyrir góðu veðri á föstudag víðast hvar á landinu en næstu þrjá daga á eftir verður það eitthvað síðra,“ segir Haraldur Eiríksson, veður- fræðingur á Veðurstofu Íslands, um veðurspá helgarinnar. „Á föstudag verður víða létt- skýjað en það verður skýjað vest- urlands og þar með talið í Reykja- vík og ef til vill smá súld. Á laug- ardag er gert ráð fyrir sunnanátt með rigningu og síðan skúrum en lítil úrkoma verður norðaustan til á landinu en við gerum ekki ráð fyrir samfelldri rigningu allan daginn. Á sunnudag er svo gert ráð fyrir hægviðri eða hægri vestlægri átt. Lítilsháttar skúrir verða víða um land en líklega bjartviðri á Austurlandi þar sem ætti að verða hlýjast,“ segir Har- aldur. Á mánudag segir Haraldur að gert sé ráð fyrir austanátt með rigningu, einkum sunnanlands en það geti þó breyst enda sé sú spá nokkuð langt fram í tímann. „Ef sú spá gengur eftir er um að ræða frekar blautan dag en það á eftir að koma í ljós þegar nær dregur,“ segir Haraldur. -hb Mótmælendur setja upp n‡jar tjaldbú›ir Um tuttugu lögreglufljónar voru vi› Kárahnjúka um hádegi í gær flegar mót- mælendum haf›i veri› gert a› yfirgefa tjaldbú›ir sínar. fieir hafa sett upp n‡jar tjaldbú›ir sem eru töluvert langt frá virkjanasvæ›inu. Mótmælandi á hálendinu: Gagnr‡nir brottvísun MÓTMÆLI „Aðferðir Prestssetra- sjóðs lýsa ekki kristilegu hugar- fari,“ segir Benóný Ægisson, einn mótmælenda við Kára- hnjúka sem staddur er í Reykja- vík. Benóný er ósáttur við að hópi mótmælenda var vísað frá tjald- búðum sínum í landi Valþjófs- staða við Kárahnjúkavirkjun. „Þau skilyrði sem sett voru í upphafi, að ganga vel um landið, hafa ekki verið brotin,“ segir Benóný. Þá gagnrýnir Benóný stuttan frest sem tjaldbúar fengu til þess að yfirgefa búðirnar. - ht Átök við Kárahnjúka: Impregilo kærir MÓTMÆLI Ítalska verktakafyrir- tækið Impregilo hefur sent Sýslumanninum á Seyðisfirði kæru vegna eignaspjalla af völd- um mótmælenda Kárahnjúka- virkjunar að sögn Ómars R. Valdimarssonar, upplýsingafull- trúa fyrirtækisins. Þá kærði einn yfirmanna Impregilo líkamsárás að sögn Ómars. Yfirmaðurinn hafi verið að taka myndir af mótmæl- endum þegar veist var að honum og hann sleginn. Landsvirkjun hefur ekki lagt fram formlega kæru vegna eignaspjalla mótmælenda. - ht Fíkniefnasmyglari: Gæsluvar›- hald sta›fest DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti á mánudaginn gæsluvarðhaldsúr- skurð yfir manni sem héraðs- dómur hafði dæmt í sex og hálfs árs fangelsi fyrir að flytja inn tæp átta kíló af amfetamíni og tvö þús- und skammta af lýsergíði. Einnig virðist maðurinn hafa átt fjögur þúsund skammta í íbúð sinn í Hollandi. Maðurinn áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar og kærði úrskurð þess efnis að hann ætti að sæta gæsluvarðhaldi þar til málsmeð- ferðinni væri lokið. - grs Kolmunnaveiðar: Kvótinn ni›ur um fimmtung KOLMUNNI Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum fiski- skipum verði heimilt að veiða alls 590 þúsund tonn af kolmunna. Þetta er 123 þúsund tonnum minna en heimilt var að veiða í fyrra. Sjávarútvegsráðuneytið segir að tekið sé mið af ráðleggingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins um mikilvægi þess að draga úr kolmunnaveiðum. Norðmenn bönnuðu kolmunna- veiðar fyrir sitt leyti í maí. Þeir hafa nú aflétt banninu en ekkert veitt enn sem komið er. Ríki innan Norðaustur Atlants- hafsráðsins hafa ekki náð sam- komulagi um skiptingu kolmunna- kvótans. Brýnt er talið að þau geri tilslakanir og semji um veiðar úr stofninum. ■ SPURNING DAGSINS Lárus, hannar›u flína eigin netaboli? „Nei, ég kaupi þá bara.“ Lárus Þór Pálmason netagerðarmeistari ætlar að stofna alþjóðlegan skóla í veiðafæragerð. Hann segir netagerð ekki ósvipaða vinnu klæðskera. Lyfjaflokkur 2002 2003 2004 kr. hlutf. Blóðlyf 49 61 71 10 17% Sýkingalyf 60 60 69 8 14% Tauga- og geðlyf 1.500 1.645 1.857 212 13% Öndunarfæralyf 632 661 727 66 10% Æxlishemjandi og ónæmistemprandi lyf Önnur hormónalyf Þvagfæralyf, kvensjúk- dómalyf og kynhormóna 237 237 254 17 7% Vöðvasjúkdóma og beinagrindarlyf Sníklalyf 4 4 4 0 6% Meltingarf. - og efnask.lyf 917 977 1.028 51 5% Augn- og eyrnalyf 153 165 173 7 4% Hjarta- og æðasjúkd.lyf 1.180 1.344 1.389 45 3% Önnur lyf 5 8 10 2 26% Samtals 5.441 5.940 6.422 481 8% *Tölur eru í milljónum króna 240 272 300 28 10% 78 76 84 8 10% 276 312 330 18 6% breyting frá 2004 FRÁ AKUREYRI Buslað í sjónum í veðurblíðunni. Hætt er við að vætusamt verði víða um land um helgina. MÓTMÆLI Um tuttugu lögreglu- þjónar voru staddir á Kárahnjúk- um um hádegisbilið í gær en þá rann út fresturinn sem mótmæl- endur höfðu til þess að ganga frá og taka saman föggur sínar að sögn Helga Jenssonar, fulltrúa sýslumannsins á Seyðisfirði. Síð- asta tjaldið féll hins vegar ekki fyrr en síðdegis án þess þó að til átaka kæmi milli mótmælenda og lögreglu. Lögregla skildi við mótmæl- endurna um leið og þeir komu í hlaðið á Vaði í Skriðdal hjá Guð- mundi Árnasyni bónda og for- manns Félags um verndun há- lendis Austurlands. „Það var nú eiginlega bara af mannúðarástæðum sem ég bauð þeim að koma til mín,“ segir Guð- mundur. „Kirkjan var búin hrekja þau í burtu sem samrýmist nú ekki kenningum biblíunnar. Þannig að ég ákvað að bjóða þeim að vera hérna á túninu hjá mér.“ Um níutíu mínútna akstur er frá Vaði til Kárahnúka. Áfram verður hert löggæsla við Kárahnjúka að sögn Helga en lögreglumönnum á Egilsstöðum hefur borist liðsstyrkur frá Ríkis- lögreglustjóra. Þá komu lögreglu- þjónar frá Eskifirði að löggæsl- unni við Kárahnjúka í gær. Þremur Bretum, sem hand- teknir voru í átökunum við Kára- hnjúka aðfaranótt þriðjudags, var sleppt í fyrrakvöld eftir að í ljós kom að Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til þess að vísa þeim úr landi. Fólkið fór aftur að Kára- hnjúkum eftir að þeim var sleppt að sögn Gísla M. Auðbergssonar, sem skipaður hefur verið verjandi þeirra. Gísli fór að Kárahnjúkum í gær og fundaði með mótmæl- endum sem hann telur hafa verið þrjátíu til fjörutíu talsins. „Ég fór yfir lögfræðilega hlið málsins með hópnum,“ segir Gísli. Mótmælendahópurinn saman- stendur að mestu af Englend- ingum og Skotum en auk þess voru á svæðinu nokkrir Íslend- ingar. Ekki er um skipulögð sam- tök að ræða að sögn Birgittu heldur einstaklingsframtak hvers og eins. helgat@frettabladid.is grs@frettabladid.is TJALDBÚÐIRNAR TEKNAR NIÐUR Mótmælendurnir sem hafa hafst við í tjaldbúðum við Kárahnjúka yfirgáfu svæðið í gær. Þeir eru nú komnir á land bóndans á Vaði í Skriðdal en um 90 mínútna akstur er þaðan til Kárahnjúka. M YN D /H JA LT I S TE FÁ N SS O N LYFJAÚTGJÖLD TRYGGINGASTOFNUNAR 2002-2004 Kostnaður Tryggingastofnunar vegna lyfjakostnaðar hefur hækkað jafnt og þétt á síðustu árum. Tauga- og geðlyf eru ekki að hækka hlutfallslega mest en það munar langmest um þau. ÚTKROTAÐ SKILTI Mótmælendurnir krotuðu á skilti, hús og vinnuvélar. LÖGREGLUFRÉTTIR STÚLKA VARÐ FYRIR BÍL Tveggja ára stúlka varð fyrir bíl í Garði í gærmorgun þegar hún hljóp í veg fyrir hann. Bíllinn var ekki á mikilli ferð. Stúlkan slasaðist ekki alvarlega.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.