Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.07.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 28.07.2005, Qupperneq 6
6 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Fyrsta verk geimfaranna á Discovery var að kanna hvort einhverjar skemmdir hefðu orðið í flugtaki: Tveir hlutir losnu›u af geimskutlunni GEIMSKOT Geimfararnir á banda- rísku geimskutlunni Discovery hófu fyrsta vinnudag sinn úti í geimnum í gær með því að kanna vandlega hvort nokkrar skemmdir hefðu orðið á nefi og vængjum skutlunnar í flugtaki í fyrradag. Fjögurra sentimetra löng ein- angrunarflís losnaði af maga skutl- unnar þegar hún tókst á loft en auk þess virtist sem stærri hlutur, sem sagður er vera úr einangrun skutl- unnar, hafi brotnað frá utanáliggj- andi eldsneytistanki á skutlunni. Talsmenn geimferðarstofnun- arinnar NASA sögðu í gær að enn væri of snemmt að segja til um hvort stykkin sem losnuðu hefðu valdið skemmdum á skutlunni. Flugtak skutlunnar hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig því fresta þurfti áætluðu flugtaki, sem átti að fara fram fyrir um hálfum mánuði, vegna bilunar í eldsneytis- mæli. Ekki tókst að lagfæra bil- unina en flauginni var samt sem áður skotið á loft. Þetta er fyrsta ferð bandarískrar geimskutlu frá því að Columbia fórst í aðflugi fyrir um tveimur árum en þá vissu sérfræðingar NASA af bilun sem var til staðar í búnaði Columbiu. - sda Fasteignaverð í Reykjavík og á Akureyri: Ver›munur aukist sí›ustu ár AKUREYRI Verðbilið á fasteignum í Reykjavík og Akureyri hefur aukist verulega á fimm til tíu árum. Gísli Gunnlaugsson, sölu- maður á Framtíðareign á Akur- eyri, segir að á venjulegri blokkaríbúð hafi verðmunurinn verið 10-15 prósent fyrir nokkrum árum en bilið hafi aukist nú og sé 30-35 prósent. „Við tökum alltaf aðeins seinna við okkur hérna því við viljum sjá hvort háa verðið haldi fyrir sunnan. Það gæti verið hluti af skýringunni. Skortur á lóðum, vaxalækkun og auknir lánamöguleikar hafa valdið stórum hluta af verð- hækkuninni fyrir sunnan. Ég hef á tilfinningunni að sú hækkun eigi eftir að skila sér hér á Akureyri,“ segir hann. Gísli telur að húsnæði á Akureyri eigi eftir að hækka um 10-20 prósent til viðbótar við þá 20 prósenta hækkun sem þegar hefur átt sér stað á þessu ári. „Það er frekar óvenjulegt því að undanfarin ár hefur heldur aukist bilið milli íbúðaverðs í Reykjavík og á Akureyri,“ segir hann. -ghs Styður þú málstað mótmælend- anna við Kárahnjúka? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlarðu í útilegu um verslun- armannahelgina? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 69% 31% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN DISCOVERY TEKST Á LOFT Skutlunni var skotið út í geim í fyrradag. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Tjöld -landsins mesta úrval í Tjaldalandi við Glæsibæ Aztek Plus 4ra manna Rúmgott kúlutjald. Stórt fortjald með þremur gluggum. Verð 19.990 kr. Verð áður 24.990 kr. Forsætisráðherra: Halldór í vesturheim STJÓRNSÝSLA Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, halda í opinbera heimsókn til Kanada í dag. Halldór hittir meðal annarra forsætisráðherra Kanada Paul Martin auk þess sem hann heldur hátíðarræðu og tekur þátt í hátíðarhöldum á Íslendinga- deginum í Gimli í Manitoba. Þá heimsækir Halldór Manitoba-há- skóla í Winnipeg og Íslendinga- byggðir í Norður-Dakóta í Banda- ríkjunum. -hb GÍSLI GUNNLAUGSSON Sölumaður á Framtíðareign telur að fasteignaverð eigi eftir að hækka um 10-20 prósent á Akureyri á næstunni. Um flúsund manns komin á fijó›hátí› Verslunarmannahelgin er a› bresta á. Ví›a um land ver›a skipulag›ar hátí›ir. Ve›urblí›an undanfari› hefur au›velda› mótshöldurum lífi›. fiegar er uppselt í Herjólf nema í næturfer›ir. Húkkaraballi› í Vestmannaeyjum er í kvöld. ÚTIHÁTÍÐIR Tæplega þúsund manns eru þegar komnir til Vestmanna- eyja þótt Þjóðhátið hefjist ekki formlega fyrr en á föstudaginn. „Hér gengur allt saman eins og best verður á kosið,“ segir Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, en félagið hefur umsjón með framkvæmd Þjóðhátíðar- innar í Vestmanneyjum. Í dag verður lögð lokahönd á undir- búninginn enda verður húkkara- ballið svokallaða í kvöld. Veðurblíðan undanfarna daga hefur auðveldað allan undir- búning hjá mótshöldurum víða um land. „Það er miklu auðveldara að fá fólk til að aðstoða og vinna sjálfboðaliðavinnu þegar svona viðrar. Þetta gengur eins og í sögu. Hér voru um sjö til átta þúsund manns í fyrra og við búumst við fleiri gestum í ár enda er þegar orðið uppselt í Herjólf nema í næturferðirnar,“ segir Páll. Á Akureyri er fjölskylduhá- tíðin Ein með öllu haldin í fimmta skiptið í ár. „Við erum búnir að gera góðan samning við veðurguðina og það er stærsti samningurinn sem við gerum. Annars verður nóg af afþreyingu fyrir alla aldurshópa enda er þetta hátíð fyrir alla fjölskylduna,“ segir Bragi Bergmann á Akureyri. Hann ætlar að milli sextán og sautján þúsund manns hafi lagt leið sína til Akureyrar síðastu verslunarmannahelgi og býst við svipuðum fjölda í ár. Í Galtalæk fer fram Bindind- ismót í 45. skipti. „Það er gaman að skemmta sér edrú og fyrir það stöndum við. Þetta er hátíð fjölskyldunn- ar og þeirra sem vilja skemmta sér án vímuefna. Hér er nóg um að vera, mikið af leiktækjum fyrir krakka og afþreying fyrir alla aldurshópa,“ segir Sævar Finnbogason, sem er í undirbún- ingsnefnd mótsins. Hann segir að um fjögur þúsund manns hafi lagt leið sína í Galtalæk í fyrra og vonast eftir fleira fólki í ár. Á Neskaupstað fer fram úti- hátíðin Neistaflug. „Þetta hefur verið undirbún- ingsvinna frá því í maí. Allt er á ætlun og nú er verið að leggja lokahönd á undirbúninginn. Samanlagt má ætla að með heimamönnum hafi verið hér milli þrjú og fjögur þúsund manns og þar af eru því tæplega tvö þúsund gestir. Við hlökkum mikið til hér á Neskaupstað,“ sagði Höskuldur Björgúlfsson. hjalmar@frettabladid.is FJÖR Í DALNUM Víst er að stemning verður í Herjólfsdal um helgina líkt og Verslunarmannahelgina í fyrra. Þegar er fjöldi fólks kominn til Vestmannaeyja. GRÁTIÐ VIÐ RÉTTARSALINN Ónefnd kona grætur fyrir utan réttarsalinn í Angers þar sem réttarhöldin yfir barnaníðingunum fóru fram. Réttarhöld yfir barnaníðingum: Tveir fengu 28 ára dóm FRAKKLAND, AP Franskur dómstóll sakfelldi í gær 62 einstaklinga fyrir þátttöku þeirra í hring þar sem börn voru með kerfisbundn- um hætti misnotuð, þeim nauðgað og sett í vændi. Málið er það stærsta af þessu tagi sem hefur komið upp í Frakklandi. Tveir sakborninganna voru dæmdir í 28 ára fangelsi. Börnin voru á aldrinum sex mánaða til fjórtán ára. Þau voru misnotuð af foreldrum eða föður- foreldrum og vinafólki þeirra, stundum í skiptum fyrir áfengi, tóbak, mat eða sígarettur. Þrír voru sýknaðir. ■ Mannekla hjá Strætó: Aukafer›um sleppt ALMENNINGSSAMGÖNGUR Næstu þrjá daga frá og með deginum í dag verða aukaferðir strætó eftir stofnleiðum á álagstímunum felldar niður. Ekki verður því ekið á tíu mínútna fresti, en að öðru leyti gildir leiðabókin. Á laugar- daginn verður ekið á hálftíma fresti. Hjá Strætó bs. fengust þær skýringar að ástæðan væri fyrst og fremst mannekla. Stöðugildum vagnstjóra hefði fjölgað við til- komu nýja leiðakerfisins og ekki hefði tekist að ráða nógu marga afleysingamenn vegna sumar- leyfa. - grs HALLDÓR ÁSGRÍMSSON. Forsætisráðherra fer til Kanada í dag. Voru í Baath-flokknum: Vilja reka dóm- ara Saddams ÍRAK, AP Sautján af starfsmönnum réttarins, sem undirbýr nú réttar- höldin yfir Saddam Hussein, gætu misst störf sín þar sem þeir voru fé- lagsmenn í Baath-flokki Saddams Hussein. Íraska þingið greiðir at- kvæði um þetta um helgina, en ein- hver andstaða er þó við það innan þingsins. Einn þeirra sem kann að missa vinnuna er aðalrannsóknardómar- inn Raid Juhi, en myndband af hon- um að yfirheyra Saddam hefur birst í sjónvarpi víða um heim. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.