Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 8
28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Viðræður um kjarnavopnaáætlun Norður-Kóreu:
Beina kröfum til Bandaríkjamanna
NORÐUR-KÓREA Fulltrúar Norður-
Kóreustjórnar sögðu í gær að hún
myndi þá aðeins hætta við kjarna-
vopnaáætlun sína ef sú ógn sem
hún teldi Kóreuskaganum stafa af
bandarískum kjarnavopnum yrði
fjarlægð og samskipti við Banda-
ríkjastjórn færð í eðlilegt horf.
Frá þessu greindi suður-kóreska
fréttastofan Yonhap.
Norður-Kóreumenn krefjast
þess enn fremur að Bandaríkja-
stjórn hverfi frá öllum áformum
um að steypa kommúnistastjórn-
inni í Pyongyang, að hún komi á
kerfi sem geri friðsamlega sam-
búð mögulega og lofi því að beita
ekki kjarnorkuvopnum. Að því er
fullyrt er í frétt Yonhap er þetta
haft eftir formanni viðræðu-
nefndar Norður-Kóreustjórnar,
varautanríkisráðherranum Kim
Kye Gwan, á öðrum degi nýrrar
lotu sex ríkja viðræðnanna svo-
nefndu, sem fram fara í Kína. Hlé
hafði verið á viðræðunum frá því
í júní 2004. Að þeim koma fulltúar
Norður- og Suður-Kóreu, Kína,
Japans, Rússlands og Bandaríkj-
anna. - aa
Undrandi á fjölgun
í Reykjanesbæ
Fleiri en flúsund n‡jar íbú›ir eru anna› hvort í byggingu e›a í undirbúningi í
Reykjanesbæ. firátt fyrir a› nær enginn sé enn fluttur inn í n‡ju hverfin hefur
íbúum bæjarins fjölga› um meira en 2,3 prósent frá áramótum.
REYKJANESBÆR Íbúum í Reykjanes-
bæ hefur fjölgað um meira en 2,3
prósent frá áramótum og er íbúa-
fjöldi bæjarins kominn yfir 11.200
manns. Þetta er þrátt fyrir að nýtt
Tjarnarhverfi sé enn í byggingu og
þangað séu fáir fluttir inn.
Þegar Tjarnarhverfið verður
fullbyggt verða þar 550 nýjar íbúð-
ir sem gera má ráð fyrir að hýsi í
kringum 1.500 manns. Árni Sigfús-
son bæjarstjóri í Reykjanesbæ
segist vera undrandi á þessari
fjölgun og vart átta sig á því
hvernig á henni standi. Hann segir
þetta vera athyglisverðan árangur,
ekki síst í ljósi þess að nær enginn
sé fluttur inn í nýju íbúðirnar í
Tjarnarhverfinu.
Í nýja hverfinu er nú unnið að
byggingu nýs skóla og leikskóla og
segir Árni áhersluna vera á að þær
stofnanir verði komnar í gagnið
áður en þorri fólks flytji inn í
hverfið. Árni segist búast við því
að skólastarf hefjist í hverfinu nú í
haust og íbúarnir flytji inn á haust-
mánuðum og eitthvað fram yfir
áramót. Fyrstu íbúðirnar í hverf-
inu, við Skólabraut, voru fullbúnar
nú í júlí og er fólk flutt inn í hluta
þeirra.
Austan Tjarnarhverfis stendur
svo til að byggja annað hverfi,
Dalshverfi, sem fullbúið rúmar
álíka margar íbúðir og Tjarnar-
hverfið. Því er ljóst að ef allt geng-
ur eftir fjölgar íbúum Reykjanes-
bæjar um tvö til þrjú þúsund á
allra næstu árum. Nú þegar hafa
yfir hundrað umsóknir borist um
byggingarlóðir í Dalshverfinu.
Aðspurður hvort atvinnuástand-
ið á svæðinu sé til þess fallið að
taka við hinni miklu fjölgun segist
Árni síður en svo hafa áhyggjur af
því. Hann segir að nóg sé að gera,
sérstaklega í byggingariðnaðinum.
„Það þarf marga í verkin og sér-
staklega vantar iðnaðarmenn jafnt
sem óbreytta til að vinna við að
reisa nýju hverfin,“ segir Árni.
Eins segir Árni að fólk hafi
vantað í margs konar störf í bæn-
um undanfarið, til dæmis í iðnað,
verslun og skrifstofustörf.
oddur@frettabladid.is
ÁRNI SIGFÚSSON OG VIÐAR MÁR AÐALSTEINSSON Bæjarstjórinn og framkvæmdastjóri Umhverfis- og skipulagssviðs í nýju Tjarnarhverfi í
Reykjanesbæ.
ÁRÓÐRI HÆTT Suður-kóreskir hermenn taka niður hátalara sem notaðir voru til að út-
varpa áróðri til Norður-Kóreu. Ríkin tvö hafa samið um að hætta slíkum áróðri til að draga
úr spennu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R
NAUÐGANIR „Tilgangur átaksins er
að fá karla til þess að velta fyrir
sér eðli og alvarleika nauðgana,“
segir Arnar Gíslason, meðlimur í
Karlahóp Femínistafélagsins.
Hópurinn ýtti átakinu „Karlmenn
segja nei við nauðgunum“ úr vör í
gær.
„Karlmenn eru í lykilstöðu til
þess að breyta þessu máli,“ segir
Arnar. „Það hefur lengi verið litið
á nauðganir sem vandamál
kvenna en því viljum við breyta.“
Arnar segir erfitt að segja til
um árangur af átakinu strax, þar
sem tilgangur þess sé fyrst og
fremst að breyta hugsunarhætti
fólks. „Við vonumst þó til þess að
með tímanum skili þetta sér í
meiri virðingu karla fyrir konum
og komi þannig í veg fyrir nauðg-
anir.“
Átakinu er hrint í framkvæmd
nú fyrir verslunarmannahelgina,
þegar umræða um nauðganir er
oft áberandi. „Við viljum þó
leggja áherslu á það að nauðganir
eru vandamál allan ársins hring,
ekki bara um verslunarmanna-
helgina,“ segir Arnar. - ht
Átaki gegn nauðgunum hrint úr vör:
Vilja breyta hugsunarhætti
GEGN NAUÐGUNUM Karlahópur
Femínistafélagsins og V-dags
samtökin kynntu stefnu sína og
baráttumál gegn nauðgunum í
Hljómskálagarðinum í gær.